Íþróttablaðið - 01.06.1978, Page 26
Þeir lögðu
heiminn að
fótum sér
Uwe Seeler var fæddur einu ári of
seint til þess að verða heims-
meistari í knattspyrnu. Eftirmið-
daginn þegar Vestur-Þýzkaland
vann heimsmeistaratitilinn í Bern 1954,
léku tvö unglingalið, að viðstöddum nokkur
hundruð áhorfendum í útborg Hamborgar
og í öðru þessu liði var Uwe Seeler. Hann
hafði þá fyrir nokkru vakið á sér verulega
athygli sem knattspyrnumaður og fengið
nafn sitt í fyrirsagnir íþróttafrétta dagblað-
anna. Uwe lék með vestur-þýzka unglinga-
landsliðinu í knattspyrnu sem komst í úrslit
í Evrópumeistaramóti unglinga á móti
Englendingum. og í móti þessu skoraði
hann hvorki fleiri né færri en 13 af þeim 20
mörkum sem Þjóðverjarnir gerðu í mótinu.
Sepp Herberger, sem þá var þjálfari vest-
ur-þýzka knattspyrnulandsliðsins fékk
fréttir af piltinum og kallaði hann til æfinga
með landsliðinu. Þegar á herti fannst hon-
um Uwe Seeler of ungur til þess að leika í
svo þýðingarmikilli keppni sem heims-
meistarakeppninni og sagði við hann að
hans tími myndi koma að ári.
Uwe Seeler þurfti þó ekki að bíða svo
lengi. f október þetta sama ár léku Þjóð-
verjar landsleik við Frakka 1 Hannover og
var Seeler valinn varamaður í liðið. Sjálfum
fannst honum ólíklegt að hann fengi tæki-
færi í leik þessum og var búinn að sætta sig
við það fyrirfram að verma varamanna-
bekkinn leikinn út. Þegar 20 mínútur voru
til leiksloka meiddist einn leikmanna þýzka
liðsins, Ottmar Walther, og Sepp Herberger
ákvað að nota þetta tækifæri til þess að
reyna hinn unga pilt. Var auðheyrt að
áhorfendur, sem voru fjölmargir á leik