Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.06.1978, Page 43

Íþróttablaðið - 01.06.1978, Page 43
Þekkir þú landið þitt? { síðasta íþróttablaðið birtum við mynd af sex fögrum stöðum á íslandi og spurðum lesendur hvort þeir þekktu þá. Sjálfsagt hafa margir víðförlir kannast við þessa staði en þeir voru eftirtaldir. Efst til vinstri á bls. 8: Karl og Kerling í Jökulsárgljúfrum; í miðið á bls. 8: Múlafoss i Fjarðará. Neðst á bls. 8: Barði. Efst á bls. 9: Tungustapi. í miðið á bls. 9: Gýgjarfoss og neðst á bls. 9: Flosagjá. Bobby of dýr Svo sem sagt var frá í síðasta íþrótta- blaði gerði danska 3. deildarliðið Herning samning við Bobby Moore, fyrrverandi fyrirliða enska knatt- spyrnulandsliðsins, um að hann léki með liðinu í sumar. Átti Moore að fá 800 pund fyrir leik, og að auki flugfar- gjöld fram og til baka, þar sem hann ætlaði aðeins að koma til leikjanna, en ekki æfa með Herning. Sú varð fljótt raunin á að samningur þessi var danska liðinu ofraun og tókst því að fá honum riftað. Bobby Moore, sem þarna sést í Herning-búningnum, olli líka áhang- endum Herning-liðsins vonbrigðum og var alls ekki sá töframaður, sem þeir voru búnir að gera sér vonir um að hann væri. Þrír fengu úr Fyrirtæki eitt er framleiðir arm- bandsúr ákvað að gefa þeim leik- mönnum sem fyrstir yrðu til að skora í leikjum HM gullúr og þau reyndar ekki af verri endanum. Úrin fengu þeir Bemard Lacombe frá Frakk- landi sem skoraði eftir 38 sekúndur í leik Frakklands og Ítalíu, Elasques frá Perú sem skoraði eftir 1,51 mín- útu í leik Perú og íran og Austurrík- ismaðurinn Schacher sem skoraði eftir 9,17 mínútur í leik liðs síns við Spánverja. Hollenska knattspyrnustjarnan Joyan Cruyff hefur nú lagt skóna á hilluna, a.m.k. í bili, eftir 12 ára keppnisferil, fyrst með hollenzka liðinu Ajax og síðar með spánska liðinu FC Barcelona. Ekki eru allir jafn ánægðir með þá ákvörðun Johans að hætta í knattspyrnunni, og enginn er þó óánægðari en tengdafaðir hans, sem verið hefur nokkurs konar framkvæmdastjóri tengdasonarins undanfarin ár, og séð um alla samninga fyrir hann. Lét karl hafa það eftir sér þegar Cruyff hætti, að hann skildi ekk- ert í þessu. Cruyff væri enn á bezta aldri og gæti vafalaust haft mikla fjármuni í viðbót fyrir knattspyrnuþátttöku sína. Gaf karl í skyn að fjárhagur Cruyff væri ekki alltof góður, en hið sanna mun vera að Johan Cruyff er nú orðinn vellauðugur og þarf ekki að hafa neinar áhyggjur af framtíðinni. Leikreyndir Vestur- Þjóöverjar í Vestur-Þýzkalandi leika nú átta leik- menn sem leikið hafa meira en 400 leiki í 1. deildar keppninni. Leikjahæsti maðurinn er Sepp Maier sem leikið hefur 437 leiki, en síðan koma Horst Höttges (Werder Bremen) 421 leikur, Heinz Simmet (Köln) 417 leikir, Berti Vogts (Borussia Mönchengladbach) 411 leikir, Wolfgang Overath (Köln) 409 leikir, Gerd Múller (Bayern Mún- chen) 406 leikir, Michael Bella (Duis- burg) 402 leikir og Klaus Zaczyk (HSV) 400 leikir. Flestir þessara leikmanna eru enn í fullu fjöri og bæta vafalaust mörgum leikjum enn í safn sitt. Búbbi markhæstur Jóhannes Eðvaldsson var markhæsti leikmaður Celtic-liðsins á síðasta keppnistímabili, en þá skoraði hann samtals 12 mörk í úrvalsdeildarkeppn- inni og í skozku bikarkeppninni. Markhæsti leikmaðurinn í Skotlandi á siðasta keppnistímabili var hins vegar Johnstone (Rangers) sem skoraði 25 mörk í úrvalsdeildinni, 6 mörk í bikar- keppninni og 6 mörk í deildarbikar- keppninni. Næst markhæsti leikmað- urinn var Harper (Aberdeen) sem skoraði 27 mörk, Smith (Rangers) 26 mörk og McLeod (Hiberian) og McGarvey (St. Mirren) sem skoruðu 20 mörk. Afrek Jóhannesar er þeim mun athyglisverðara þegar það er tekið með í reikninginn að hann leikur stöðu varnarmanns í liði sínu. Eftirsóknar- verðar stöður Það er ekki nema von að enskir knatt- spyrnuþjálfarar sækist eftir að fá stöður í arabaríkjunum, a.m.k. ef þeir hafa það eins og Ronnie Allen, fyrrverandi framkvæmdastjóri West Bromwich Albion. Hann starfar nú sem landsliðs- þjálfari í Saudi-Arabíu, þar sem hann ekur um í Pontiac-bifreið af stærstu gerð — auðvitað með loftkælingu, býr í stóru einbýlishúsi, þar sem m.a. er sér- stakur salur fyrir borðtennis, og í garð- inum er auðvitað stór útisundlaug. Þjónaliðið er samtals 10 manns, auk tveggja matsveina og bifreiðarstjóra því ekki má stjórinn hafa fyrir því að aka Pontiac-bifreiðinni sjálfur. „Þetta er eins og í ævintýrinu þúsund og ein nótt,“ sagði Allen í viðtali við brezkan blaðamann sem heimsótti hann í sæl- una fyrir skömmu. Givens hættir Allar líkur eru á því að hinn þekkti knattspyrnumaður Queens Park Rang- ers og írska landsliðsins, Don Givens, skipti um félag áður en næsta keppnis- tímabil hefst. Givens sem nú er orðinn 28 ára hefur samning við Q.P.R. sem rennur út í sumar, og hefur hann fullan hug á að breyta til. Helzt vill hann þó búa í London áfram, og sagt er að hann hafi mikinn hug á að komast til Tottenham Hotspur, og að það félag hafi einnig mikinn áhuga á að fá þenn- an frækna garp til sín. 43

x

Íþróttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.