Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.06.1978, Síða 55

Íþróttablaðið - 01.06.1978, Síða 55
ÞJÓÐHETJAN Ef nokkur knattspyrnumaður hefur orðið að þjóðhetju þá er það Mario Kempes, sem tví- mælalaust var maður leiksins í úrslitum heimsmeistarakeppn- innar í knattspyrnu í Argentínu. Þessi 24 ára leikmaður var mað- urinn á bak við flestar hættuleg- ustu sóknaraðgerðir Argentínu- manna og sjálfur skoraði hann tvö mörk í leiknum á 37. og 103. mínútu. Sú gagnrýni sem haldið var uppi á argentínska iandsliðs- þjálfarann fyrir keppnina að kalla á Kempes frá Spáni breytt- ist því í ótvíræðar traustsyfirlýs- ingar. andstæðinga sinna með hraða sínum og óbilandi kjarki. Þeir höfðu því ákveðið fyrirfram að hafa sérstakar gætur á Kempes, og segir sagan að hollenzku leikmennirnir hafi fengið þau fyrirmæli að „láta Kempes finna fyrir því“ strax frá upphafi leiksins. En allt kom fyrir ekki. Kempes smaug frá mótherjum sínum, stökk upp úr „taklingum“ þeirra og var illviðráðanlegur. — Var sigur Argentínu verðskuldað- ur? spurðu blaðamennirnir á fundin- um. — Eftir gangi leiksins tel ég að svo hafi verið, sagði Kempes. — Þegar Ardiles var tekinn út af í seinni hálf- leiknum náðu Hollendingar reyndar betri tökum á leiknum um tíma. Var varla við öðru að búast þar sem Ardiles hefur stjórnað spili okkar meira og minna í keppninni og verið feiknalega dugmikill leikmaður. En þrátt fyrir allt áttum við fleiri góð tækifæri í leiknum en Hollendingar og áttum því að vinna, sem við og gerðum. Þegar harka leiksins var rædd við Kempes sagði hann: — Hollendingarnir voru alltof grófir og hugsuðu oft um það eitt að sparka okkur niður. Þegar við tókum á móti var ekki við öðru að búast en leikurinn yrði nokkuð grófur. Nú blandaði hollenzkur blaðamaður sér í viðræðurnar við Kempes og sagði: — Hvar hafa argentínsku leikmenn- irnir lært að detta svo fagurlega og sannfærandi sem þeir gerðu í úrslita- leiknum? — Hefðir þú leikið knattspyrnu vissir þú hvað þessi spurning er heimskuleg, svaraði Kempes og bandaði blaða- manninum frá sér. — Varstu ánægður með dómarann? var spurt. — Hann hefði átt að reka verstu Hollendingana útaf, svaraði Kempes og bætti því við að það væri haugalygi í Hollendingum að Argentínumenn hefðu viljandi slegið þá í andlitið. — Það verður hátíð í Argentínu næstu vikurnar, sagði Kempes í lok fundarins. — Við, leikmennirnir, gleðj- umst yfir því að hafa breytt svita og erfiði undanfarinna æfingavikna í gull. Það var það bezta sem við gátum hugs- að okkur. Á blaðamannafundi sem haldinn var eftir úrslitaleikinn var Kempes mið- punkturinn og virtist hann kunna því vel. Allar auglýsingar koma honum til góða, og hjálpa honum að ná því markmiði að vinna sér inn sem allra mesta peninga sem atvinnumaður í íþróttinni. Hann leikur nú með spánska liðinu Valencia, og sagði á umræddum fundi, að frammistaða sín í keppninni yrði væntanlega til þess að hann gæti aukið kaupkröfur sínar þar, og haft það betra fjárhagslega eftir en áður. — Hvernig var að skora tvö mörk í úrslitaleiknum? spurðu blaðamennirnir Kempes. — Það var dásamleg reynsla. En ég hefði ekki skorað tvívegis ef félagar mínir hefðu ekki hjálpað mér. Þetta var sigur Argentínu, ekki einstakra leik- manna liðsins. Mario Kempes skoraði bæði mörkin í leiknum með vinstri fótar skotum, en fyrir þau er hann frægur. Hann getur þó einnig skotið með hægri fætinum og hefur gert mörg mörk þannig. Líkist hann að þessu leyti hollenzka snill- ingnum Johan Cruyff, þótt þeir eigi raunar afarfátt sameiginlegt annað. Hollendingar vissu fyrirfram að Kempes kynni að verða þeim hættu- legur. í fyrri leikjum sínum með Argentínu í keppninni hafði hann hvað eftir annað gert mikinn usla í vörnum Mario Kempes 55

x

Íþróttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.