Íþróttablaðið - 01.10.1989, Blaðsíða 14
sinnum bikarmeistari. „Ég lék með
FH til 27 ára aldurs en þá var hand-
boltaiðkunin farin að stangast á við
félagsmálin og pólitíkina. Reyndar
þjálfaði ég Reyni Sandgerði í 3. deild
og 2. deild um þriggja ára skeið og
síðan Njarðvík í eitt ár. Þótt um lang-
an vegværi aðfaravarað mörgu leyti
auðveldara að þjálfa en að standa í
slagnum í 1. deild. í fyrra var heimil-
að að B-lið 1. deildar liða tækju þátt í
deildarkeppninni og sigruðum við
FH-ingar í 3. deild á síðasta keppnis-
tímabili. Við leikum því í 2. deild í
vetur en tökum það svona hæfilega
alvarlega. Lítill tími gefsttil æfingaen
sigurviljinn hjáokkur„|>ömlu körlun-
um" er samur og fyrr. Ég á alveg eins
von á því að við munum sigla um
miðja deild. Okkur er víst bannað að
vinna okkur upp f 1. deild."
— Þú hefur ekki látið glepjast af
golffþróttinni eins og svo margir
boltaíþróttamenn?
„Nei, golfið er svo fjandi tímafrekt.
Mín skoðun er sú að þegar menn hafa
iðkað keppnisíþróttir, þar sem ávallt
er leikið til sigurs og barist til síðasta
blóðdropa, þá komi fátt annað til
greina. Ég finn mig allavega illa í
þessum skokkíþróttum. Ég vil hafa
keppni og hasar í málunum. Golfið
kemur kannski síðar."
— Einsettir þú þér að styðja vel við
bakið á íþróttastarfseminni í bænum
þegar þú varst kjörinn bæjarstjóri?
„Það liggur í augum uppi að ég
þekki íþróttamálin vel af eigin raun
og vil veg þeirra sem mestan. Þegar
ég hef síðan tækifæri til að láta gott af
mér leiða reyni ég að nýta það og
beita áhrifum mínum í þá veru. Það
er engin sýndarmennska eða fagur-
gali þegar fullyrt er að íþróttaiðkun
fólks á öllum aldri sé gefandi og
nauðsynleg á svo fjölmargan hátt.
Hún skiptir máli bæði uppeldislega
og heilsufarslega, þ.e. bæði fyrir lík-
ama og sál. Mér finnst stundum að
stjórnmálamenn geri sér ekki nægi-
lega vel grein fyrir því hversu gífur-
lega umfangsmikil starfsemi á sér
stað í sambandi við íþróttírnar. Bæði
ég og fleiri, sem vorum kjörnir til
trúnaðarstarfa í síðustu bæjarstjórn-
arkosningum, vorum klárir á því að
það þyrfti að gera stórátak í þessum
málum. Nú sjáum við vonandi fram á
betri tíð með blóm í haga hvað varðar
aðstöðu fyrir fþróttir hér í bæ.
Fyrst bera að nefna nýja íþrótta-
húsið sem verður opnað í febrúar á
komandi ári. Það er algjör bylting
fyrir íþróttalíf í Hafnarfirði. Þar verða
tveir keppnisvellir fyrir handbolta
enda er húsið 47x47 metrar. Ég held
ég fari rétt með að stærri gólfflötur,
þar sem hægt er að stunda íþróttir,
fyrirfinnist ekki á íslandi. Húsið er á
athafnasvæði FH en engu að síður
Guðmundur Arni Stefánsson bæjar-
stjóri í Suðurbæjarsundlauginni sem
verður opnuð núna í október.
liggur fyrir samningur þess efnis að
bærinn muni reka það sem venjulegt
íþróttahús fram til ársins 2005. Þá
eignast FH húsið til eigin afnota.
í desember verður tekið f notkun
hús fyrir fimleikafélagið Björk sem er
mjög öflugt. Þar verður gryfja sem er
nauðsynleg öllum þeim sem iðka
fimleika en húsið verður samtengt
íþróttahúsi Hauka. Núna í október
verður opnuð sundlaug f Suðurbæn-
um sem kallast Suðurbæjarlaug en
þar verður bæði inni- og útilaug.
Þessi sundlaug var löngu orðin tíma-
bær því hin gamla er komin til ára
sinna en þjónar bæjarbúum vel og
kemur til með að gera það áfram.
Hvað útiíþróttum viðkemur hefur
mesta áherslan verið lögð á svæðið f
Guðmundur Árni lék um 10 ára
skeið með meistaraflokki FH. Hann
sést hér í kunnugri stöðu.