Íþróttablaðið - 01.10.1989, Blaðsíða 20
LINDA STEINUNN
íslandsmeistari í fimleikum
íslandsmeistarinn í fimleikum,
Linda Steinunn Pétursdóttir, hefur
staðið í ströngu að undanförnu því
dagana 14,- 22. október tók hún þátt
í heimsmeistaramótinu í fimleikum
sem fór fram í Stuttgart. Auk hennar
voru Fjóla Olafsdóttir og Bryndís
Guðmundsdóttir á meðal keppenda
en íþróttablaðinu er ekki kunnugt
um frammistöðu stúlknanna.
Undirbúningur Lindu fyrir mótið
var skammur því vegna mistaka eða
misskilnings hjá Fimleikasamband-
inu fékk hún og þjálfari hennar, Hlín
Árnadóttir, ekki að vita að ísland
sendi keppendur á mótið fyrr en 20.
ágúst. „Við settum allt á fullt þegar
Ijóst var að við færum á heimsmeist-
aramótið en tíminn til þess að komast
í gott keppnisform var mjög knapp-
ur," sagði Linda.
„Eg æfði Iftið síðastliðið sumar en
við fórum 12 stelpur saman til Ítalíu
og sýndum fimleika. í júlístundaði ég
heilsurækt í sex vikur og um miðjan
ágúst byrjuðu æfingar hjá Björkun-
um."
Linda var spurð um möguleikana
sem hún hefurtil að hljóta verðlaun á
heimsmeistaramótinu. „Þeireru eng-
ir. Við öðlumst fyrst og fremst dýr-
mæta reynslu með því að keppa á
mótinu."
— Hvernig líst þér á næsta íslands-
mót?
„Vel, en ég held að keppnin þar
verði mjög jöfn. Annarserógjörning-
ur að dæma um það núna því það er
svo langtþartil mótiðverðurhaldið."
— Ert þú betri í fimleikum í ár en í
fyrra?
„Já, ég myndi segja að ég væri
sterkari. Ég er þegar komin í það
keppnisform sem ég var í á Islands-
mótinu í fyrra."
— Áttu mörg ár eftir í fimleikum?
„Ég ætlaði að hætta eftir síðasta
veturþvíég varorðin þreytt. Það þarf
að leggja svo ofsalega mikið á sig til
þess að ná góðum árangri í fimleik-
um. I lok þessa keppnistímabils ætla
ég að sjá hvað setur. Það breytist svo
margt þegar ég byrja í framhalds-
skóla næsta vetur. Allar vinkonur
mínar eru hættar í fimleikum og er ég
því ein eftir úr hópnum. Ég sakna
félagsskaparins."
— Eru strákarnir nokkuð að trufla
Þ'g?
„Nei, ekkert að ráði. Það fer samt
smá tími í þá. Annars dunda ég mér
við ýmislegt þegar ég er ekki að æfa.
Mér þykir gaman að fara í bíó og hitta
hressa krakka."
20