Íþróttablaðið - 01.10.1989, Síða 28
meiðsli. Alls léku 8 leikmenn alla 18
leikina í deildinni og Birgir lék 17
leiki. Það að þurfa ekki að gera mikl-
ar breytingar á liðinu frá leik til leiks
var mjög þýðingarmikið."
— Ertu taktískur þjálfari sem veltir
fyrir sér leikaðferðum hinna liðanna?
„Leikaðferð FH er afar einföld. Við
verjumst þegar við missum boltann
og sækjum þegar við höfum hann.
Auðvitað spái ég í leik annarra liða
og geri leikmönnum Ijóst hvernig
þau spila. En ég haga leik liðsins ekki
eingöngu eftir leik andstæðinganna.
Maður verður að reyna að hafa frum-
kvæðið sjálfur."
— Varstu ánægður með leik ein-
stakra leikmanna í sumar?
„Já, ég var það. Markvarslan var
góð og varnarmennirnir spiluðu
skynsamlega. Þeir þekkja sín tak-
mörk og léku samkvæmt því. Miðju-
mennirnir voru traustir og við eigum
markahæsta leikmann deildarinnar.
Pálmi og Hörður voru eitt skæðasta
framlínuparið í deildinni og Hörður
naut góðs af Pálma sem er mjög klók-
ur leikmaður. í raun spilaði allt liðið
yfir getu miðað við það sem ég átti
von á í upphafi móts. Staðreyndin er
sú að þegar leikmenn finna að þeim
vegnar vel og ná saman, hafa þeir
mun meiragaman afþvísem þeireru
að gera og árangurinn kemur í kjöl-
farið."
— Er engum erfiðleikum háð að
vera leikmaður og þjálfari í senn?
„Jú, vissulega er það erfitt en ég var
með mjög góðan aðstoðarmann sem
Viðar er. Hann sá alfarið um allar
innáskiptingar og var ómetanlegur
fyrir liðið. Ég var aldrei óánægður
með það sem hann gerði."
— Heldurðu að FH nái að fylgja
þessum góða árangri eftir?
„Ég á fyllilega von á því. Liðin taka
væntanlega öðruvísi á móti okkur
næsta sumar en þeir gerðu sl. sumar.
Sum lið reiknuðu ekki með okkur
sterkum og álitu okkur auðvelda
bráð. Við skulum vona að liðin álíti
það áfram. Ef við höldum sama
mannskap kvíði ég engu."
— Takið þið þátt í þeim hrossa-
kaupum sem nú eiga sér stað?
„Já, viðverðumaðgera þaðtil þess
að vera með í baráttunni. Það verður
þó að vera innan skynsamlegra
marka."
— Er það rétt að sumir leikmenn
hafi verið að reyna bjóða sig til
kaups?
„Já, landsliðsmaður hafði sam-
band við FH og spurði hvort þörf væri
fyrir sig. Honum var tjáð að félagið
stæði öllum opið."
— Er mikill munur á því að leika í
1. deild eða 2. deild?
„Já, munurinn er mikill og stað-
reyndin er sú að lið undirbúa sig allt
öðruvísi fyrir keppnina í 1. deild. Það
er líka mín skoðun að menn nái að
sýna meira í 1. deild og leggja harðar
að sér. Menn eru meira í sviðsljósinu
í 1. deild og vita að mun fleiri fylgjast
með gangi mála þar. Knattspyrnan f
1. deild er líka mun betri. Fylkir, sem
var í 2. sæti í 2. deild í fyrra og í raun
mörgum stigum á undan liðinu sem
var í 3. sæti, féll strax aftur niður og
sýnir það styrkleikamuninn á milli
deilda."
— Hvað gera FH-ingar í gúrkutíð-
inni í vetur?
„Við ætlum að reyna að æfa tvisv-
ar sinnum fram eftir hausti ef veðrið
verður skaplegt því það er búið að
setja flóðlýsingu á malarvöllinn. Síð-
an hefst undirbúningur liðsins fyrir
alvöru 15. febrúar 1990."
Góður árangur Hafnfirðinga
ííþróttum er ekki tiluiljun
enda bgggja þeir eins og uið
Á traustum grunni
BYCGÐAVERK HF.
Reykavíkurvegi 60 Hafnarfirði. Símn 546 44
28