Íþróttablaðið - 01.10.1989, Page 30
Guðríður Guðjónsdóttir meðal læri-
sveina minna."
Ingvar Jónsson hefur starfað sem
þjálfari hjá Haukum frá árinu 1974
og jafnan verið með 2-3 flokka á ári.
Hann þjálfaði unglingalandsliðið um
tíma og meistaraflokk Fram í eitt ár.
„Ég þjálfaði flesta þá stráka sem leika
körfubolta með meistaraflokki
Hauka í dag, t.d. Pálmar Sigurðsson
og fleiri. Það var í raun meiri heppni
hjá mér að fá að þjálfa alla þessa
stráka og eiga þess kost að kynnast
þeim, en fyrir þá að lenda hjá mér.
Þegar ég byrjaði að þjálfa í Hafnar-
firði fannst mörgum það óðs manns
æði að fara af stað með körfubolta í
handboltabænum, en ég vildi stuðla
að því að Hafnarfjörður yrði fyrst og
fremst íþróttabær. Hinn góði árangur
á handboltasviðinu hefur lyft íþrótta-
lífinu f bænum upp á hærri stall og
byggt upp margar íþróttagreinar. Ég
rökstuddi ávallt körfuboltaþjálfunina
á mjög einfaldan hátt. Hér í Hafnar-
firði eru líklega um 300 12 ára gamlir
krakkar. Af þeim eru 150 strákar og
20 þeirra fara í handboltann og kom-
ast ekki fleiri að. Um 70% stráka vilja
vera í íþróttum og vantaði því verk-
efni fyrir fjölda stráka. Við fórum af
stað með öfluga starfsemi í yngri
flokkunum ogá þeim 19 árum sem ég
hef þjálfað hjá Haukum, höfum við
20 sinnum orðið íslandsmeistarar í
yngri flokkunum. Og ég hef ekki tölu
yfiraðratitlasem við höfum unniðtil.
Mottóið hjá okkur er að sinna
þeim mjög vel sem koma á æfingar
og þjálfa þá á sem bestan máta. Við
reynum ekki að fiska stráka úr öðrum
íþróttagreinum en til okkar eru allir
velkomnir. Lykillinn að velgengni
Hauka er sá að hjá okkur líður öllum
vel."
— Hvað liggur á bak við þennan
góða árangur þinn sem þjálfari?
„Það eru margir sem telja körfu-
bolta mjögerfiða íþrótt þar sem mjög
flóknar reglur séu notaðar. Sumir eru
hræddir viðflóknar reglurenég reyni
ávallt að einfalda hlutina og það er
ein af ástæðum þess að mínir flokkar
hafa náð góðum árangri. Til þess að
ná góðum árangri í körfubolta þarf að
hafa þrennt að leiðarljósi. ífyrsta lagi
þarf hvereinstaklingurog liðið íheild
að spila góða vörn. í öðru lagi þarf
liðið að ná fleiri fráköstum en and-
stæðingarnir. í þriðja lagi er körfu-
bolti leikur 5 manna og það þarf að
Glæsilegt körfuskot hjá einum ungum og efnilegum í Haukum.
vera góður samleikur í sókninni. Mér
finnst fátt eins ánægjulegt og að sjá
góðan samleik sem endar með körfu.
Til þess að þessir hlutir gangi upp
þarf mikla samstillingu í liðið. Þetta
þýðir ekki að engar stjörnur þrífist í
liðunum því fá lið ná góðum árangri
án stjörnuleikmanna. í góðum jarð-
vegi fæðast stjörnur og þær vaxa og
dafna eins og falleg blóm við góð
skilyrði. Grunnatriði körfuboltans í
æfingum eru ætíð höfð að leiðarljósi
hjá mér og það skilar góðum ár-
angri."
— Ertu sáttur við þróunina hjá
Haukum síðan þú hófst þar þjálfun?
„Já, ég er það. Við erum með góð-
an meistaraflokk og mjög öfluga
unglingastarfsemi. Það hlýtur að
leiða til réttrar þróunar. Ég er t.d.
ánægður með að búið sé að leyfa
erlenda leikmenn hér á landi því með
þeim kemur nýtt blóð í körfuboltann.
Menn eru oft feimnir við að taka út-
lendinga í lið sín en við getum alveg
haldið sérstöðu okkar þótt útlending-
arnir lífgi upp á boltann hjá okkur. Ég
vil benda á fordæmi ítónlistinni. Hér
á landi er vart sett upp sú ópera að
útlendingur fari ekki með stórt hlut-
verk í henni. Við verðum bara að
gæta þess að erlendu leikmennirnir
30