Íþróttablaðið - 01.10.1989, Side 32
íslandsmeistarar í 5. flokki FH
„GULLIT BESTUR"
Arnar Viðarsson, Isiandsmeistari með 5. flokki FH
Arnar Viðarsson.
Arnar ásamt félögum sínum í 5.
flokki, Ólafi, Trausta og Jóhanni.
Einn af framtíðarmönnum FH í
knattspyrnu og íslandsmeistari í 5.
flokki er Arnar Viðarsson. Arnar á
ekki langt að sækja knattpspyrnu-
hæfileikana því hann er sonur Viðars
Halldórssonar, fyrrum leikmanns FH
og íslenska landsliðsins.
Arnar er 11 ára og er í 5. bekk í
Engidalsskóla í Hafnarfirði. Hann
segist hafa mest gaman af stærðfræði
í skólanum og segir ennfremur að
það sé fullt af sætum stelpum í
bekknum hans.
Arnar byrjaði að sparka bolta 3 ára
gamall og var það án efa pabbinn
sem kom honum á bragðið. Hann
hefur tvisvar sinnum orðið íslands-
meistari í fótbolta en auk þess að
hljóta titilinn í sumar sigraði FH í 6.
flokki fyrir tveimur árum. Á Tomma-
móti 6. flokks í Vestmannaeyjum í
fyrra var Arnar kjörinn besti leikmað-
urinn og er það mikil viðurkenning.
Hann var spurður hvort hann hefði
búist við að vera valinn sá besti.
„Nei, eiginlega ekki. Ég hélt að
GuðmundurSævarsson FH eða Eiður
Smári Guðjohnsen yrðu valdir."
— í hvaða stöðu leikur þú?
„Ég hef stundum verið „center",
stundum á miðjunni en oftast varnar-
maður. Ég lék í vörninni í sumar."
— Töpuðu þið mörgum leikjum í
sumar?
„Nei, bara einum gegn ÍR á ESSO-
mótinu og svo gerðum við jafntefli
við Breiðablik á íslandsmótinu. Úr-
slitaleikinn á íslandsmótinu unnum
við 4:0 og var sá leikur á móti ÍR."
Arnaræfir handbolta með 5. flokki
FH en hann hefurorðið fslandsmeist-
ari með 6. flokki fgreininni. „Fótbolt-
inn er samt skemmtilegri en það er
fínt að vera í handbolta á veturna."
— Hver er uppáhalds fótbolta-
maðurinn þinn?
„Steve Nichol í Liverpool."
— En hver er bestur í heimi?
„Gullit, það er engin spurning.
Pabbi sá hann um daginn á hóteli í
Hollandi."
— Leikur þú þér stundum með
pabba þínum í fótbolta f stofunni?
„Nei, við megum aldrei vera í stof-
unni því mamma verður svo rosalega
reið. Við erum stundum í fótbolta á
ganginum en samt er ég búinn að
brjóta einn vasa og eina mynd. Jú,
auðvitað varð mamma líka reið þá."
32