Íþróttablaðið - 01.10.1989, Page 39
möguleika á verðlaunum á stórmót-
um."
— Hvernig æfir þú í vetur?
„Ég er byrjaður í hoppæfingum og
innan skamms byrja ég að lyfta lóð-
um. Ég ætla að styrkja mig vel í vetur
og er ákveðinn í því að kasta 65
metranæstasumar. Þaðer löngu orð-
ið tímabært að ýta undir sleggjukast-
ið og hefja greinina til vegs og virð-
ingar. Ég er staðráðinn í því að bæta
þetta lélega íslandsmet. Auk þess
ætla ég að drífa nokkra unga menn
með mér í sleggjuna því það eru fleiri
sem geta náð langt í greininni."
Þess má til gamans geta að Guð-
mundur Karlsson var á sínum tíma
einn afokkaret'nilegustu spjótköstur-
um ogsló meðal annars metSigurðar
Einarsson íflokki 16 ára og yngri. „Ég
kastaði 56,86 metra þegar ég var 16
ára og strax næsta vor, þegar ég var
orðinn 17 ára, kastaði ég 62,02
metra. í kjölfar þess fór ég í æfinga-
búðirtil Danmerkurogskemmdi égá
mér olnbogann. Kappið var svo mik-
ið að ég kastaði allt of mikið og því
„Skammtímamarkmiðið er að kasta
sleggjunni 70 metra. Því ætla ég að
ná innan tveggja ára."
fór sem fór. Það verður að viðurkenn-
ast að mig tók það sárt að þurfa að
hætta í spjótinu því ég átti góða fram-
tíð fyrir mér í þeirri grein. En svona
eru íþrótti rnar."
Guðmundur stundaði nám við
íþróttaháskólann í Köln í Vestur-
Þýskalandi um 5 ára skeið, með
frjálsíþróttir og handbolta sem aðal-
greinar. Sjálfur lék hann handbolta
með yngri flokkum FH en í dag þjálf-
ar hann meistaraflokk kvenna í félag-
inu. „Það verður að segjast eins og er
að kvennahandboltinn í FH er illa á
vegi staddur. Fyrir 2 árum hófst upp-
bygging í yngri flokkunum en fram til
þess tíma var þar algjör ördeyða. Um
þessar mundir er gott starf í 3. og 4.
flokki en 2. flokkur félagsins er ekki
til. Það bitnar vitanlega á meistara-
flokki því endurnýjunin þar er engin.
Frá síðasta keppnistímabili hafa fjór-
ar stelpur dregið sig í hlé og er hópur-
inn því ansi rýr. Við erum því ekki
líkleg til afreka í vetur þótt FH hafi
lent í 2. sæti á íslandsmótinu síðast-
liðin 3 ár."
Það er okkur sérstök ánœgja
að óska hafnfirsku íþróttafólki
til hamingju með árangurinn
í jafn mörgum greinum íþrótta
og raun ber vitni.
— Við fylgjumst með —
Baráttukveðjur
SPAREJDÐUR
HAFNARFJARÐAR
39