Íþróttablaðið - 01.10.1989, Síða 45
hef ég ávallt leikið hægra megin fyrir
utan því það er svo mikill hörgull á
örvhentum mönnum. Sumir halda
því fram að markmenn og örvhentir
leikmenn séu sérstök fyrirbæri en ég
er vitanlega ekki sammála því," segir
Kristján og brosir.
— Hver mótaði þig, að þínu mati,
sem handboltamann?
„Hvað sóknarleik mínum viðkem-
ur álít ég að Geir Hallsteinsson eigi
mestan þátt í þeim framförum sem ég
tók. Hann var með fjölbreyttar skot-
æfingar þar sem var ekki einungis
stokkið upp og skotið. Þessu hef ég
haldið við og getað nýtt mér í gegn-
um tíðina. Geir þjálfaði mig í 5 ár í
meistaraflokki. Hvað seinni tíð við-
kemur má segja að Bogdan hafi kom-
ið mér á toppinn og gert mig að heil-
steyptari leikmanni. Sumir vilja
meina að ég sé of fastur í kerfisbolt-
anum hans en það hefur hjálpað mér
á mikilvægum mótum. Nægir þar að
nefna heimsmeistarakeppnina í Sviss
1986. í stórmótum þar sem mikið
liggur við leika taugarnar stórt hlut-
verk. Þegar maður hefur ákveðin
leikkerfi til að fara eftir fer ekki óþarfa
tími í að koma sér í færi heldur skap-
ast þau sjálfkrafa þegar leikkerfi
ganga upp. Auðvitað verður maður
að brjótast út úr þessu annað slagið.
Landslið fyrri ára sýndu oft mjög
góða leiki en stöðugleikann vantaði
til að halda út heilt mót. Þetta breytt-
ist við komu Bogdans og landsliðið
Joachim Deckarm, vestur-þýski landsliðsmaðurinn, sem lamaðist íleik, heilsar
Kristjáni Arasyni. Deckarm var talinn besti handknattleiksmaður heims árið
1978.
leikur mjög agaðan handbolta í dag."
— Stundaðir þú aukaæfingar á
unga aldri?
„Ég æfði aldrei einn en þar sem ég
Haustið 1985 var Kristjáni boðinn at-
vinnumannasamningur við 2. deild-
ar liðið Hameln í Þýskalandi og sló
hann til. Það var ekki að sökum að
gamall en þá var hann á fyrsta ári í 2.
flokki. Ákveðin kynslóðaskipti voru
að eiga sér stað í FH því menn eins og
Geir, Viðar, Gils og Birgir Finnboga-
son voru að leggja skóna á hilluna.
Okkur strákunum var teflt fram þótt
við værum ungir að árum og tókum
við smám saman yfir í liðinu.
Kristján varð síðan íslandsmeistari
með FH árin 1984 og1985 en seinna
árið lauk hann einmitt prófum í við-
skiptafræði frá Háskóla íslands.
spænska landsliðsmenn en voru
óákveðnir í þeim málum. Ég skrifaði
undir samning með þeim fyrirvara að
ef leikmennirnir yrðu ekki keyptir
gæti ég fengið mig strax lausan. Ég
sætti mig ekki við neina meðal-
mennsku og vil vinna til titla. Mér
finnst nauðsynlegt að vera í liði sem
hugsar stórt. Sum lið á íslandi hugsa
svona og nægir þar að nefna FH, Val
og Víking.
Það er líka gaman til þess að vita
45