Fréttablaðið - 04.07.2020, Síða 27
L AU G A R DAG U R 4 . J Ú L Í 2 0 2 0
Sólheimar90 ára
Í tilefni af 90 ára starfsafmæli Sól-heima hefur afmælisnefnd verið að störfum frá því fyrir áramót,
sem leidd er af Magnúsi Ólafssyni,
varaformanni stjórnar Sólheima.
Starfsemi Sólheima frá upphafi
mun kristallast í metnaðarfullri
dagskrá og leika menning og
listir þar stórt hlutverk. Menn-
ingarveisla Sólheima var sett 6.
júní síðastliðinn með glæsilegri
afmælisdagskrá, sem mun lifa
fram í lok ágúst með veglegum
tónleikum í Sólheimakirkju alla
laugardaga í sumar, en auk þess er
í gangi sýning um sögu Sólheima
í myndum og máli sem unnin er í
samstarfi við Reyni Pétur, um starf
Sesselju á Sólheimum og framlag
Lionsklúbbsins Ægis til starfsins,
allar götur frá árinu 1957.
Vígslubiskup í Skálholti verður
með messu í Sólheimakirkju á
sjálfan afmælisdaginn sem er á
morgun, 5. júlí, að viðstöddum
forseta Íslands Guðna Th.
Jóhannessyni og frú Elizu Reid,
auk þess sem velgjörðarkona Sól-
heima, frú Vigdís Finnbogadóttir,
heiðrar okkur með nærveru sinni.
Þá stendur til að bjóða öllum
íbúum í Grímsnes- og Grafnings-
hreppi í opið hús á Sólheimum
og fá þeir leiðsögn, kynningu
og kaffi, ásamt því að félögum í
Lionsklúbbnum Ægi verður gert
hátt undir höfði.
Þá má nefna að nú stendur yfir
afmælissýning á listaverkum íbúa
Sólheima í sýningarsal Völu.
Glæsileg afmælisdagskrá