Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.2020, Blaðsíða 38
Matseðill
Sveins
Morgunmatur
Ég vakna um klukkan sex og
byrja á að fá mér snafs af Lýsi.
Hef gert það í 20 ár. Fæ mér
síðan góðan kaffibolla, jafnvel
tvo. Í vinnunni er boðið upp á
morgunmat og þar borða ég oft
hafragraut um klukkan tíu.
Hádegisverður
Ég fæ mér léttan hádegisverð
um klukkan tvö. Ég borða það
sem er í matinn í vinnunni. Yfir-
leitt fæ ég mér salat og fisk, kjöt
eða grænmetisrétt. Ef ég var
orðinn orkulítill fyrr fæ ég mér
oft ávöxt.
Millimál
Fer eftir hvað ég tek mér fyrir
hendur. Ef ég fer í sund eftir
vinnu fæ ég mér oft hafraklatta
eftir sund. Stundum fæ ég mér
eit thvað sætt þó ég viti að ég
hafi ekki gott af því.
Kvöldmatur
Ég elda yfirleitt heima á hverju
kvöldi, oftast bara eitthvað ein-
falt. Fiskur og grænmeti verða
gjarnan fyrir valinu.
Svart linguine með reyktum silungi og skjaldfléttusalati
Pasta
250 g linguine pasta
Salt
Ólífuolía
100 g valhnetur
200 g birkireyktur silungur
Þroskuð pera
2 vorlaukar
2 msk. valhnetuolía
Svartur pipar
5 stönglar sítrónutimjan
Sjóðið pastað samkvæmt leiðbein-
ingum á umbúðum, kælið, sigtið og
setjið í skál.
Ristið valhneturnar á pönnu og
kælið.
Skerið reyktan silunginn í þunnar
sneiðar og setjið í skál með pastanu.
Hreinsið peruna og skerið í sneiðar.
Blandið saman við pastað.
Skerið vorlaukinn og blandið út í
pastað ásamt valhnetunum.
Setjið valhnetuolíuna og pipar á
pastað og blandið varlega saman.
Setjið sítrónutimjan yfir, í heilum
stönglum eða tínið laufin af stöngl-
unum og dreifið yfir.
Salat
Handfylli af skjaldfléttulaufi
4 skjaldfléttublóm
2 tsk. valhnetuolía
Setjið allt saman í skál og dreifið
valhnetuolíu yfir.
Erla
Hlynsdóttir
erlahlyns@dv.is
38 MATUR 24. JÚLÍ 2020 DV
Mikilvægt að svindla
með góðri samvisku
Meistarakokkurinn Sveinn Kjartansson borðar almennt hollan mat
en þykir gott að stelast af og til í dökkt súkkulaði með myntufyllingu.
Sveinn Kjartansson hefur áratuga reynslu sem fagmaður í eldhúsinu. MYNDIR/VALLI
S veinn Kjartansson er einn þekktasti mat-reiðslumaður landsins.
Hann hefur vakið athygli
fyrir sjónvarpsþætti sína,
Fagur fiskur í sjó, og rak til
að mynda AALTO Bistro í
Norræna húsinu í tæp fimm
ár áður en hann söðlaði um í
fyrra og starfar nú sem for-
stöðumaður matar- og veit-
ingasviðs Seðlabanka Íslands.
„Ég reyni að halda mig
í hollari kantinum eins og
flestir. Að því sögðu þá finnst
mér að þegar maður svindlar
– ekki ef heldur þegar – þá
eigi að gera það með góðri
samvisku,“ segir Sveinn.
Hann er mikill nammigrís
og heldur sérstaklega upp á
dökkt súkkulaði með myntu-
fyllingu þegar hann vill gera
vel við sig.
Ostabakan í útrás
Sveinn hefur verið í mat-
reiðslugeiranum í 35 ár
og þykir sérlega vænt um
minningar frá því hann var
nýbúinn að læra og vann
á veitingastöðum um öll
Bandaríkin. „Ég bara mætti
í eldhúsið og þurfti strax að
sanna mig. Þá bjó ég alltaf til
ostaböku sem ég hafði gert
á Listasafni Íslands í gamla
daga og heppnaðist alltaf vel.
Ég var ekki með ferilskrá
þannig að ostabakan var eig-
inlega mín ferilskrá,“ segir
Sveinn.
Á sumrin finnst honum best
að borða létta rétti, gjarnan
fisk og salat, en hann er líka
hrifinn af því að búa til græn-
metisrétti. n