Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.2020, Blaðsíða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.2020, Blaðsíða 44
44 STJÖRNUFRÉTTIR 24. JÚLÍ 2020 DV Í maí vakti nafn nýfædds sonar frumkvöðulsins Elon Musk og tónlistarkonunn- ar Grimes mikla athygli en hann var nefndur X Æ A-12, sem var svo síðar breytt í X Æ A–Xii. Nú hefur ástralska söngkonan og rapparinn Iggy Azalea greint frá nafni sonar síns en hann ku heita Onyx. Þessar fréttir þýða aðeins eitt; það er kominn tími á að renna yfir skrítnustu nöfn stjörnu- barnanna í gegnum tíðina. Það er nefnilega svo að Musk, Grimes og Azalea eru ekkert að finna upp hjólið í einkenni- legum nafngiftum því það hefur löngum loðað við fræga fólkið að fara langt út fyrir kassann í þeim málum. Exin Eins og glöggir lesendur hafa tekið eftir innihalda framan- greind nöfn bókstafinn x en slík nöfn hafa löngum átt upp á pallborðið hjá fræga fólkinu. Angelina Jolie skírði syni sína Maddox, Pax og Knox. Dóttir Cameron Diaz og Benji Mad- den heitir Raddix, Robert Downey Jr. á soninn Exton og sonur Ashlee Simpson og Pete Wentz státar af nafninu Bronx. Dóttir Penn Jillette heitir Moxie CrimeFighter og Bob Geldof og Paula Yates tóku tvennu og eiga dæturnar Fifi Trixiebell og Little Pixie. Gamalt og gott Tónlistarmaðurinn Frank Zappa átti fjögur börn, þau Moon Unit, Dweezil, Ahmet Emuukha Rodan og Diva Thin Muffin Pigeen. Nicolas Cage skírði son sinn Kal-El í höf- uðið á Súperman, leikarinn Jason Lee féll fyrir nafninu Pilot „Standard“ Inspektor sem sonur hans fékk og sonur leikkonunnar Shannyn Soss- amon heitir Audio Science. Gwyneth Paltrow og Chris Martin skírðu dóttur sína Apple, Toni Braxton sýndi ást sína á gallaefni þegar sonur hennar fékk nafnið Denim og tónlistarmaðurinn John „Co- ugar“ Mellencamp á soninn Speck Wildhorse en það nafn er af svipuðu kalíberi og nafn sonar Sylvesters Stallone; Sage Moonblood. Svo eru það löngu nöfnin Þriðja barn leikkonunnar Umu Thurman heitir Rosalind Arusha Arkadina Altalune Florence. Paula Yates og Mic- hael Hutchence skírðu dóttur sína því virðulega nafni Hea- venly Hiraani Tiger Lily og dóttir Bono heitir Memphis Eve Sunny Day. Ofurkokkur- inn Jamie Oliver og frú hrífast einnig af löngum og væmnum nöfnum og börnin þeirra bera nöfnin Poppy Honey Rosie, Daisy Boo Pamela, Buddy Bear Maurice, Petal Blossom Rainbow og River Rocket Blue Dallas. Söngkonan Gwen Stef- ani á þrjá syni með fyrrver- andi manni sínum, tónlistar- manninum Gavin Rossdale, og þeir heita Apollo Bowie Flynn, Kingston James McGregor og Zuma Nesta Rock. Fólk, staðir og dýr Sonur fyrirsætunnar Amber Rose heitir Slash Electric í höfuðið á gítarleikara Guns N’ Roses. Dóttir Clueless leikar- ans Jeremy Sisto heitir Char- lie Ballerina, Ode Mountain er sonur Jennu Malone, sonur Drea de Matteo heitir Black- jack og dóttir kvikmynda- gerðarmannsins George Lu- cas heitir Everest. Söngkonan Erykah Badu valdi stutt og laggóð nöfn; Seven, Puma og Mars og sonur áströlsku leik- konunnar Rachel Griffiths heitir einfaldlega Banjo. En allra skemmtilegastir eru orðaleikirnir. Dóttir leikar- ans Rob Morrow heitir Tu Morrow og elsta dóttir Kim Kardashian og Kanye West fékk líka orðaleik í nafnið sitt; North West. Svona getur nú fræga fólkið verið fyndið. n CrimeFighter, Banjo, Trixiebell og Blackjack eru nokkur af þeim sérstöku nöfnum sem fræga fólkið hefur valið fyrir börnin sín. Stjörnubörnin með skrítnu nöfnin SLASH ELECTRIC Foreldrar hans eru Amber Rose og Alexander Edwards. APPLE MARTIN Með mömmu sinni, Gwyneth Paltrow. CHARLIE BALLERINA Dóttir leikarans Jeremy Sisto. ROSALIND ARUSHA ARKADINA ALTALUNE FLORENCE THURMAN- BUSSON Yngri dóttir Umu Thur- man. NORTH WEST Sætar mæðgur. ZUMA, KINGSTON OG APPOLO Synir Gwen Stefani og Gavin Ross- dale. KAL–EL Sonur Nicolas Cage. MOXIE CRIME- FIGHTER Með pabba, þáttastjórn- andanum Penn Jillette. Ritstjórn dv@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.