Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.2020, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.2020, Blaðsíða 22
STAÐAN Á VINSTRI VÆNGNUM Framboðsmál Vinstri grænna og Samfylkingar. Steingrímur er talinn vera á útleið og Dagur mun ekki ætla sér í landsmálin. Rósa Björk fer jafnvel fram fyrir Samfylkinguna. E ftir að Samfylkingin varð til sem þingflokk-ur árið 1998 virtist sem draumurinn um sameiningu vinstrimanna hefði að miklu leyti ræst. Hæst reis Sam- fylkingin í 31% fylgi í alþing- iskosningunum 2003 og það var þá sem farið var að tala um „turnana tvo“ í íslenskum stjórnmálum, Sjálfstæðisflokk og Samfylkingu. Björn Valur aftur á þing? Vinstrihreyfingin – grænt framboð var jafnan mun minni en Samfylkingin. Þetta hefur snúist við á seinni árum vegna innanflokksmeina og for- mannsrauna Samfylkingar. Á sama tíma hafa Vinstri grænir átt prýðilegu fylgi að fagna undir forystu Katrínar Jakobs- dóttur. Hún nýtur yfirburða- trausts sem forsætisráðherra, en samkvæmt könnun Gallups frá í vor eru 59% landsmanna ánægðir með störf hennar. Þrátt fyrir miklar vinsældir Katrínar mælist flokkurinn að jafnaði aðeins með um 12,5% í könnunum, en hlaut rétt tæp 17% fylgi í síðustu alþingis- kosningum. Steingrímur J. Sigfússon, fyrrverandi formaður VG, hefur setið á Alþingi sam- fleytt síðan 1983. Steingrímur var þekktur fyrir að mæta hvarvetna á mannamót í sínu kjördæmi. Gjarnan sást til hans taka í nefið með bændum upp undir húsvegg. Fólk í kjör- dæminu kveðst lítið hafa orðið vart við hann undanfarin miss- eri og hefur til marks um að hann ætli ekki fram aftur. Margir velta fyrir sér mögu- legum arftaka. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttur, sem situr í öðru sæti lista flokksins í kjör- dæminu, mun án efa sækjast eftir oddvitasætinu hverfi Steingrímur á braut. Sumir heimildarmanna nefna Björn Val Gíslason skipstjóra, en hann var þingmaður VG í kjör- dæminu 2009–2013. Sæti fyrir varaformanninn Lilja Rafney Magnúsdóttir er nú oddviti Vinstri grænna í Norðvesturkjördæmi en vara- maður hennar er Bjarni Jóns- son, fiskifræðingur og leiðtogi flokksins í Skagafirði. Bjarni er sonur Jóns Bjarna- sonar, fyrrv. þingmanns VG, og því bróðir Ásgeirs seðla- bankastjóra. Bjarni kann að taka slaginn um fyrsta sætið. Guðmundur Ingi Guðbrands- son umhverfisráðherra var í fyrra kjörinn varaformaður flokksins. Hann er úr Mýra- sýslu og mun ef til vill sækj- ast eftir oddvitasætinu á lista flokksins í kjördæminu, en vera má að hann taki slaginn í einhverju hinna kjördæm- anna. Vinstri grænir hafa löngum haft minnst fylgi í Suðurkjör- dæmi. Þingmaður flokksins þar er Ari Trausti Guðmunds- son. Margir aðspurðra telja líklegt að hann gefi ekki kost á sér á nýjan leik, en hann verð- ur 72 ára á næsta ári. Það er hár aldur í íslenskum stjórn- málum, ólíkt því sem tíðkast vestanhafs. Hvað gerir Rósa Björk? Þingmenn flokksins í Reykja- víkurkjördæmunum, auk Katrínar formanns, eru þau Svandís Svavarsdóttir, Kol- beinn Óttarsson Proppé og Steinunn Þóra Árnadóttir. Telja má líklegt að þau gefi öll kost á sér áfram. Aftur á móti er óvíst með Rósu Björk Brynj- ólfsdóttur, oddvita flokks- ins í Suðvesturkjördæmi. Hún hefur ekki stutt ríkis- stjórnina og kunnugir segja hana eiga meiri samleið með Samfylkingunni en VG. Hún hugsi sér jafnvel að fara fram fyrir Samfylkinguna í kjör- dæminu. Rósa Björk er kona Kristjáns Guy Burgess, fyrrv. framkvæmdastjóra Samfylk- ingarinnar og aðstoðarmanns Össurar Skarphéðinssonar ut- anríkisráðherra. Samfylkingin á fyrir einn þingmann í Krag- anum, Guðmund Andra Thors- son, sem þykir ekki hafa sýnt mikil tilþrif í þingsal. Einn viðmælenda orðaði það svo að þetta væri „einfaldlega ekki hans deild“. Guðjón S. Brjánsson, þing- maður Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi, þykir sömuleiðis litlaus og má telja líklegt að teflt verði fram nýju oddvitaefni í kjördæminu. Þar er sér í lagi horft til Akraness þar sem flokkurinn hlaut 31,2% fylgi í síðustu bæjar- stjórnarkosningum, en um fjórðungur íbúa kjördæmisins býr á Skaganum. Ýmsir nýliðar nefndir Þingmenn Samfylkingar í Reykjavíkurkjördæmunum þykja líklegir til að halda sinni stöðu. Þar sitja fyrir þau Helga Vala Helgadóttir og Ágúst Ólafur Ágústsson. Með- al mögulegra nýrra kandídata í Reykjavík eru Heiða Björg Hilmisdóttir borgarfulltrúi og Jóhanna Vigdís Guðmunds- dóttir varaþingmaður. Karen Kjartansdóttir, framkvæmda- stjóri flokksins, hefur líka verið orðuð við þingmennsku, sem og Gunnar Alexander Ólafsson. Gunnar hefur lengi stefnt að þingmennsku en hann starfar hjá Umhverfisstofnun. Þá er Finnur Beck nefndur sem mögulegur nýr oddviti flokksins í Suðurkjördæmi þar sem fyrir situr Oddný G. Harðardóttir, en Finnur var á lista flokksins í Suðvestur- kjördæmi fyrir síðustu al- þingiskosningar. Þau Finnur og Karen eru bæði fyrrver- andi fréttamenn og vel þekkt andlit. Samfylkingin á góða möguleika Ýmsa rótgróna flokksgæð- inga dreymir um endur- komu Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, sem nú er hætt störfum fyrir ÖSE, en innan- búðarmenn segja útilokað að hún gefi kost á sér. Pólitískur fóstursonur hennar, Dagur B. Eggertsson, er víst heldur ekki á leiðinni í þingframboð. Ekki er því annað að sjá en Logi Einarsson verði áfram leiðtoginn. Samfylkingin hlaut 12,1% fylgi í síðustu kosningum en hefur mælst með talsvert meira fylgi á kjörtímabilinu, um 15,1% það sem af er þessu ári, ef litið er til kannana Gall ups. Þeir sem hyggja á framboð fyrir Samfylking- una geta því hugsað sér gott til glóðarinnar, en á brattann verður að sækja fyrir Vinstri græna. – Þrátt fyrir vinsælan skipstjóra í brúnni er ekki víst að það dugi til að sigla fleyinu heilu til hafnar. n Á ÞINGPÖLLUM Björn Jón Bragason eyjan@eyjan.is Þrátt fyrir miklar vinsældir Katrínar mælist flokkurinn að jafnaði aðeins með um 12,5% í könnunum. MYND/ERNIR Fylgi frá stofnun Fylgi Samfylkingarinnar og Vinstri grænna í alþingiskosningum frá stofnun. 1999 2003 2007 2009 2013 2016 2017 26 ,8 % 9, 1% 31 ,0 % 8, 8% 26 ,8 % 14 ,4 % 29 ,8 % 21 ,7 % 12 ,9 % 10 ,9 % 5, 7% 15 ,9 % 12 ,1 % 16 ,9 % 22 EYJAN 24. JÚLÍ 2020 DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.