Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.2020, Side 22
STAÐAN Á VINSTRI VÆNGNUM
Framboðsmál Vinstri grænna og Samfylkingar. Steingrímur er talinn vera á útleið og
Dagur mun ekki ætla sér í landsmálin. Rósa Björk fer jafnvel fram fyrir Samfylkinguna.
E ftir að Samfylkingin varð til sem þingflokk-ur árið 1998 virtist sem
draumurinn um sameiningu
vinstrimanna hefði að miklu
leyti ræst. Hæst reis Sam-
fylkingin í 31% fylgi í alþing-
iskosningunum 2003 og það
var þá sem farið var að tala
um „turnana tvo“ í íslenskum
stjórnmálum, Sjálfstæðisflokk
og Samfylkingu.
Björn Valur aftur á þing?
Vinstrihreyfingin – grænt
framboð var jafnan mun minni
en Samfylkingin. Þetta hefur
snúist við á seinni árum vegna
innanflokksmeina og for-
mannsrauna Samfylkingar. Á
sama tíma hafa Vinstri grænir
átt prýðilegu fylgi að fagna
undir forystu Katrínar Jakobs-
dóttur. Hún nýtur yfirburða-
trausts sem forsætisráðherra,
en samkvæmt könnun Gallups
frá í vor eru 59% landsmanna
ánægðir með störf hennar.
Þrátt fyrir miklar vinsældir
Katrínar mælist flokkurinn að
jafnaði aðeins með um 12,5%
í könnunum, en hlaut rétt tæp
17% fylgi í síðustu alþingis-
kosningum.
Steingrímur J. Sigfússon,
fyrrverandi formaður VG,
hefur setið á Alþingi sam-
fleytt síðan 1983. Steingrímur
var þekktur fyrir að mæta
hvarvetna á mannamót í sínu
kjördæmi. Gjarnan sást til
hans taka í nefið með bændum
upp undir húsvegg. Fólk í kjör-
dæminu kveðst lítið hafa orðið
vart við hann undanfarin miss-
eri og hefur til marks um að
hann ætli ekki fram aftur.
Margir velta fyrir sér mögu-
legum arftaka. Bjarkey Olsen
Gunnarsdóttur, sem situr í
öðru sæti lista flokksins í kjör-
dæminu, mun án efa sækjast
eftir oddvitasætinu hverfi
Steingrímur á braut. Sumir
heimildarmanna nefna Björn
Val Gíslason skipstjóra, en
hann var þingmaður VG í kjör-
dæminu 2009–2013.
Sæti fyrir varaformanninn
Lilja Rafney Magnúsdóttir er
nú oddviti Vinstri grænna í
Norðvesturkjördæmi en vara-
maður hennar er Bjarni Jóns-
son, fiskifræðingur og leiðtogi
flokksins í Skagafirði.
Bjarni er sonur Jóns Bjarna-
sonar, fyrrv. þingmanns VG,
og því bróðir Ásgeirs seðla-
bankastjóra. Bjarni kann að
taka slaginn um fyrsta sætið.
Guðmundur Ingi Guðbrands-
son umhverfisráðherra var í
fyrra kjörinn varaformaður
flokksins. Hann er úr Mýra-
sýslu og mun ef til vill sækj-
ast eftir oddvitasætinu á lista
flokksins í kjördæminu, en
vera má að hann taki slaginn
í einhverju hinna kjördæm-
anna.
Vinstri grænir hafa löngum
haft minnst fylgi í Suðurkjör-
dæmi. Þingmaður flokksins
þar er Ari Trausti Guðmunds-
son. Margir aðspurðra telja
líklegt að hann gefi ekki kost á
sér á nýjan leik, en hann verð-
ur 72 ára á næsta ári. Það er
hár aldur í íslenskum stjórn-
málum, ólíkt því sem tíðkast
vestanhafs.
Hvað gerir Rósa Björk?
Þingmenn flokksins í Reykja-
víkurkjördæmunum, auk
Katrínar formanns, eru þau
Svandís Svavarsdóttir, Kol-
beinn Óttarsson Proppé og
Steinunn Þóra Árnadóttir.
Telja má líklegt að þau gefi öll
kost á sér áfram. Aftur á móti
er óvíst með Rósu Björk Brynj-
ólfsdóttur, oddvita flokks-
ins í Suðvesturkjördæmi.
Hún hefur ekki stutt ríkis-
stjórnina og kunnugir segja
hana eiga meiri samleið með
Samfylkingunni en VG. Hún
hugsi sér jafnvel að fara fram
fyrir Samfylkinguna í kjör-
dæminu. Rósa Björk er kona
Kristjáns Guy Burgess, fyrrv.
framkvæmdastjóra Samfylk-
ingarinnar og aðstoðarmanns
Össurar Skarphéðinssonar ut-
anríkisráðherra. Samfylkingin
á fyrir einn þingmann í Krag-
anum, Guðmund Andra Thors-
son, sem þykir ekki hafa sýnt
mikil tilþrif í þingsal. Einn
viðmælenda orðaði það svo að
þetta væri „einfaldlega ekki
hans deild“.
Guðjón S. Brjánsson, þing-
maður Samfylkingarinnar í
Norðvesturkjördæmi, þykir
sömuleiðis litlaus og má telja
líklegt að teflt verði fram nýju
oddvitaefni í kjördæminu. Þar
er sér í lagi horft til Akraness
þar sem flokkurinn hlaut
31,2% fylgi í síðustu bæjar-
stjórnarkosningum, en um
fjórðungur íbúa kjördæmisins
býr á Skaganum.
Ýmsir nýliðar nefndir
Þingmenn Samfylkingar í
Reykjavíkurkjördæmunum
þykja líklegir til að halda
sinni stöðu. Þar sitja fyrir
þau Helga Vala Helgadóttir og
Ágúst Ólafur Ágústsson. Með-
al mögulegra nýrra kandídata
í Reykjavík eru Heiða Björg
Hilmisdóttir borgarfulltrúi
og Jóhanna Vigdís Guðmunds-
dóttir varaþingmaður. Karen
Kjartansdóttir, framkvæmda-
stjóri flokksins, hefur líka
verið orðuð við þingmennsku,
sem og Gunnar Alexander
Ólafsson. Gunnar hefur lengi
stefnt að þingmennsku en hann
starfar hjá Umhverfisstofnun.
Þá er Finnur Beck nefndur
sem mögulegur nýr oddviti
flokksins í Suðurkjördæmi
þar sem fyrir situr Oddný G.
Harðardóttir, en Finnur var
á lista flokksins í Suðvestur-
kjördæmi fyrir síðustu al-
þingiskosningar. Þau Finnur
og Karen eru bæði fyrrver-
andi fréttamenn og vel þekkt
andlit.
Samfylkingin á
góða möguleika
Ýmsa rótgróna flokksgæð-
inga dreymir um endur-
komu Ingibjargar Sólrúnar
Gísladóttur, sem nú er hætt
störfum fyrir ÖSE, en innan-
búðarmenn segja útilokað að
hún gefi kost á sér. Pólitískur
fóstursonur hennar, Dagur
B. Eggertsson, er víst heldur
ekki á leiðinni í þingframboð.
Ekki er því annað að sjá en
Logi Einarsson verði áfram
leiðtoginn.
Samfylkingin hlaut 12,1%
fylgi í síðustu kosningum en
hefur mælst með talsvert
meira fylgi á kjörtímabilinu,
um 15,1% það sem af er þessu
ári, ef litið er til kannana
Gall ups. Þeir sem hyggja á
framboð fyrir Samfylking-
una geta því hugsað sér gott
til glóðarinnar, en á brattann
verður að sækja fyrir Vinstri
græna. – Þrátt fyrir vinsælan
skipstjóra í brúnni er ekki
víst að það dugi til að sigla
fleyinu heilu til hafnar. n
Á ÞINGPÖLLUM
Björn Jón
Bragason
eyjan@eyjan.is
Þrátt fyrir miklar vinsældir Katrínar mælist flokkurinn að jafnaði aðeins með um 12,5% í könnunum. MYND/ERNIR
Fylgi frá stofnun
Fylgi Samfylkingarinnar og Vinstri grænna í
alþingiskosningum frá stofnun.
1999 2003 2007 2009 2013 2016 2017
26
,8
%
9,
1%
31
,0
%
8,
8%
26
,8
%
14
,4
%
29
,8
%
21
,7
%
12
,9
%
10
,9
%
5,
7%
15
,9
%
12
,1
%
16
,9
%
22 EYJAN 24. JÚLÍ 2020 DV