Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.2020, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.2020, Blaðsíða 36
Una í eldhúsinu Mexíkó-kjúklingaréttur Hérna kemur uppskrift að góðum kjúklingarétti, tilvöldum til að elda um helgina. Lítill undirbúningur fylgir þessum rétti og hann þykir alltaf jafn góður. Léttur réttur með smá mexíkósku ívafi. 4 kjúklingabringur 300 g ostasósa úr krukku 300 g salsasósa úr krukku 170 g Doritos snakk (veljið ykkar uppáhaldsbragðtegund) 100 g rifinn ostur 1 dós sýrður rjómi Matarolía til steikingar Kjúklingakrydd til að krydda bringurnar Byrjið á að skera niður kjúklinga- bringurnar í bita og steikið upp úr olíu á pönnu og kryddið bitana vel með kjúklingakryddi. Blandið mexíkóskri ostasósu og salsasósu saman í potti við væg- ann hita. Leggið helminginn af sósublönd- unni í botninn á eldföstu formi, setj- ið kjúklingabitana ofan á og brjótið niður snakk yfir, endurtakið tvisvar sinnum. Stráið rifnum osti yfir ásamt því að setja nokkrar klípur af sýrðum rjóma aðeins yfir réttinn. Eldið í ofni í um 25–30 mínútur á 180 gráðum. Berið fram með góðu salati og sýrðum rjóma til hliðar. Verði ykkur að góðu. Marengsbomba með ís og Nóakroppi Mér finnst alltaf klassískt að bjóða upp á marengsköku þegar ég fæ gesti í matarboð. Yfir sumartím­ ann er tilvalið að hafa hana aðeins öðruvísi – hvíla rjómann og setja ferskan vanilluís á milli botnanna. Það sem er einnig sniðugt við þessa köku er að hægt er að skella henni í frystinn og geyma hana í nokkra daga. 5 eggjahvítur 150 g sykur 150 g púðursykur 1½ tsk. lyftiduft 100 g Nóakropp 1 l vanilluís Krem: 4 eggjarauður 60 g flórsykur 50 g smjör 150 g Síríus suðusúkkulaði Botnar Þeytið eggjahvítur varlega saman við sykurinn, passið að stífþeyta blönduna. Til þess að vera viss um að blandan sé stífþeytt ættuð þið að geta hvolft skálinni án þess að blandan hreyfist. Bætið Nóakroppinu og lyftiduftinu varlega saman við með sleikju. Teiknið tvo jafna hringi á bökunar­ pappír og skiptið blöndunni jafnt á þá. Bakið við 140 gráðu hita í um 70 mínútur. Krem Bræðið varlega saman smjör og súkkulaði í potti, hrærið vel og passið að blandan brenni ekki við. Leyfið blöndunni aðeins að kólna. Hrærið saman eggjarauðurnar og flórsykurinn. Blandið svo súkku­ laðiblöndunni varlega saman við og hrærið vel saman. Leggið vanilluís milli botnanna þegar þeir hafa aðeins fengið að kólna. Setjið svo helminginn af súkku­ l aðiblöndunni yfir ísinn og notið restina til þess að skreyta efri botninn. Yfir hásumarið er tilvalið að bjóða heim í gómsæta og einfalda rétti. Una Guðmundsdóttir, mat- gæðingur DV, deilir hér spenn- andi uppskriftum sem allir elska. MYNDIR/AÐSENDAR 36 MATUR 24. JÚLÍ 2020 DV 00000 www.veidikortid.is Hvar ætlar þú að veiða í sumar? Útsölustaðir: N1, OLÍS, veiðivöruverslanir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.