Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.2020, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.2020, Blaðsíða 34
Á ferð um landið ÍSAFJÖRÐUR OG NÁGRENNI Vestfirðir er perla landsins og þar leyna faldir fjársjóðir á hverju strái. Djúpið, firðirnir, Hornstrand- ir, afskekkt náttúra og harðfiskur koma eflaust upp í huga þeirra sem skipuleggja ferð vestur. DV tók saman efnivið í vestfirska ævintýraferð og verður lesanda vonandi innblástur í ferðalag yfir Steingrímsfjarðarheiði. RATSJÁRSTÖÐIN Á BOLAFJALLI Bíltúr upp Bolafjall í góðu veðri býður upp á ótrúlegt útsýni yfir mynni Ísa- fjarðardjúps og yfir til Hornstranda. Vegurinn er í góðu ástandi og flestum bílum fær. Á Bolafjalli er ratsjárstöð og þar fylgjast starfsmenn Landhelgis- gæslunnar með umferð um íslenska lofthelgi. Til stendur að opna útsýnis- pall efst í fjallinu og má ætla að það muni trekkja fjölda fólks að. Því fer hver að verða síðastur til að hafa þennan ótrúlega stað út af fyrir sig. GÖNGUTÚR UM ÓSHLÍÐ – Á EIGIN ÁBYRGÐ Óshlíð er brött hlíð á milli Hnífsdals og Bolungarvíkur. Vegurinn þar var af- lagður þegar Óshlíðargöngin voru opnuð og hefur vegurinn látið mikið á sjá síðan. Á köflum er vegurinn gjörónýtur og ljóst að náttúran ætlar sér að gleypa hann allan. Hann er þó enn sem komið er vel hjóla- og göngufær og býður upp á afbragðs útsýni á leiðinni. VALAGIL Í ÁLFTAFIRÐI Í botni Álftafjarðar er Valagil. Valagil er stórfenglegt gil og innst í gilinu er vatnsmikill foss. Göngu- leiðin er ekki löng, en hægt er að leggja bíl við Djúpveg hjá Selja- landi. Þaðan er svo slóði inn að gilinu og fossi. KÍKJA Á SÖGUSÝNINGU ELFARS LOGA Leikarinn Elfar Logi Hannesson setur upp einleik sinn, Gísla á Uppsölum, í Dýrafirði í sumar. Elfar Logi var í Fréttablaðinu sagður vera eini atvinnuleikari Vest- fjarða og hafa leiksýningar hans getið sér gott orð meðal heimamanna og gesta. Elfar Logi er jafnframt þekktur fyrir hlutverk sitt sem Ingjaldsfíflið úr Gísla- sögu Súrssonar. Hægt er að nálgast miða á sýningar Elfar um Gísla á Uppsölum á tix.is. KVÖLDMATUR Á TJÖRUHÚSINU Einn allra besti fiskveitingastaður landsins er staðsettur á Ísafirði og heitir Tjöruhúsið. Húsið sjálft er byggt 1782 og því með þeim elstu á landinu sem enn eru í notkun. Stemningin inni í salnum er eins og hvergi annars staðar og rétt- irnir sem kokkarnir bera fram ein- stakir. Engin ferð vestur á Ísafjörð getur verið fullkomin án kvöldmál- tíðar í Tjöruhúsinu. MELRAKKASETRIÐ Í SÚÐAVÍK Melrakkasetrið er fræðasetur sem helgað er íslenska melrakk- anum, eina upprunalega land- spendýrsins. Hér er rebba gamla gert hátt undir höfði og geta gestir nálgast fróðleik á safninu og hjá starfsmönnum þess. Á Súðavík er líka fjölskyldugarðurinn Ragga- garður og minnisvarði um þau sem létust í snjóflóðinu 1995. MYND/SIGTRYGGUR ARI MYND/BOLUNGARVIK.IS MYND//WESTFJORDS.IS MYND/AÐSEND MYND/FACEBOOK MYND/MELRAKKI.IS DAGSFERÐ UM HORNSTRANDIR West Tours bjóða upp á dagsferð til Hornstranda og miða sérstaklega að þeim sem ráða ekki við margra daga göngu eða hafa ekki tímann í það. Ferðirnar eru færar öllum þeim sem geta gengið 12–16 klst. Siglt er frá Ísa- firði snemma morguns í þann fjörð sem siglt er til þann daginn og gengið yfir í þann næsta og hópurinn sóttur þangað. Heimsókn á Hornstrandir ætti að vera á lista allra Íslendinga. DAGSFERÐ Í VIGUR Í miðju Ísafjarðardjúpi liggur eyjan Vigur. Þar er ferða- þjónusta og veitingastaður. Eyjan er þekkt fuglavarp og hægt að treysta því að sjá þar lunda, teistu og æðar- fugl til að nefna fáa. Selir eru sjáanlegir á skerjum utan við eyjuna og útsýnið frá eyjunni allt um kring er afar fagurt. Siglt er frá Ísafirði, til dæmis með West Tours, sem bjóða siglingar út ágústmánuð. MYND/WESTFJORDS.IS MYND/WESTFJORDS.IS SKJÁSKOT/RUV.IS 34 FÓKUS 24. JÚLÍ 2020 DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.