Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2020, Blaðsíða 36
36 STJÖRNUFRÉTTIR 7. ÁGÚST 2020 DV
Lýtaaðgerðir fræga fólksins
COURTENEY COX,
MICKEY ROURKE
OG ÖLL HIN
S á fáheyrði atburður átti sér stað á dögunum að Twin Peaks og The Prac-
tice-leikkonan Lara Flynn
Boyle lét sjá sig á almanna-
færi í fyrsta sinn í tvö ár. Lara
var áberandi stjarna á tíunda
áratug síðustu aldar. Á ár-
unum 1991 – 1999 lék hún í 22
kvikmyndum og hún var um
tíma kærasta Jacks Nicholson.
Lara sem er aðeins fimmt ug
lítur vægast sagt agalega út,
ekki sökum aldurs eða slæmra
gena, heldur gegndarlausra
lýtaaðgerða sem hafa eyðilagt
á henni andlitið. Leikkonan
hefur haft ákaflega lítið að
gera síðustu árin og heldur
sig mikið til hlés með eigin-
manni sínum og hundi en hún
er barnlaus.
Lara er auðvitað langt frá
því að vera eini skemmti-
krafturinn sem fellur í lýta-
aðgerðagildruna í eltingar-
leiknum við eilífa æsku. Í
heimi þar sem æska og feg-
urð trompa allt annað finnst
mörgum þeir ekki eiga ann-
arra kosta völ en að reyna að
halda í æskufegurðina með
lýta- og fegrunaraðgerðum.
Gallinn er bara sá að að-
gerðirnar heppnast misvel
og oft og tíðum elda þær fólk
og ófríkka og á endanum líta
allir eins út því það fara allir
í sömu aðgerðirnar.
Sumir ræða opinskátt um
aðgerðirnar og meðal þeirra
er kántrígyðjan Dolly Parton
sem hefur breytt öllu við sig
sem hægt er að breyta. Hún
segist vita að hún sé gervileg
en segist allan daginn kjósa
það heldur en að vera gömul.
Friends-stjarnan Courteney
Cox hefur einnig opnað sig
um eltingarleikinn vonlausa
og segist dauðsjá eftir því að
hafa farið í aðgerðir og látið
troða fyllingarefni í andlitið.
Fyrir nokkrum árum lét hún
fjarlægja fyllingar og ákvað
að eldast með reisn. Ákvörðun
sem hún sér ekki eftir því hún
er farin að líkjast sjálfri sér
á ný.
Meðfylgjandi eru nokkrar
stjörnur sem hafa fetað fegr-
unaraðgerðaslóðann með mis-
jöfnum árangri. Vandinn er
nefnilega sá að ef þú byrjar
er svo erfitt að hætta. n
Ritstjórn
dv@dv.is
LARA FLYNN BOYLE
Þetta er bara þyngra en tárum taki.
PETE
BURNS
Pete Burns
heitinn var
söngvarinn
í Dead or
Alive. Þegar
hann lést
árið 2016 var
talið að hann
hefði gengist
undir yfir 300
aðgerðir.
KATIE PRICE
Glamúr-
módelið og
sjónvarps-
stjarnan er
rétt orðin
fertug en
hefur farið í
þrjár andlits-
lyftingar, auk
alls annars
sem hún
hefur látið
gera. Þrjár!
DOLLY
PARTON
Segist ekki
vera náttúru-
lega falleg
og hafa orðið
að fara í
aðgerðir. Við
erum ekki
sammála því.
MICKEY ROURKE
Leikarinn gerði fjölmargar skvísurnar veikar í
hnjánum í hinni erótísku 9 1/2 vika en óteljandi að-
gerðir eru ekkert að gera fyrir hann.
HEIDI MONTAG
Raunveruleikastjarnan var aðeins 23 ára þegar hún
fór í 10 aðgerðir á einum sólarhring. Það var ekki góð
hugmynd.
JOAN VAN ARK
Það er varla hægt að horfa á myndir af henni því húðin
virðist hreinlega vera að rotna eftir ítrekaðar aðgerðir.
Stjörnurnar hafa margar hverjar farið í
lýtaaðgerðir. Oft er það smekklega gert
en stundum gengur þetta hreinlega út í
öfgar. Þessar stjörnur sjá eflaust eftir því
að hafa lagst undir hnífinn á sínum tíma.