Morgunblaðið - 02.01.2020, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 02.01.2020, Qupperneq 18
18 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JANÚAR 2020 STOFNAÐ 1953Háaleitisbraut 58–60 • 108 Reykjavík • Sími: 553 1380 Hreinsum gluggatjöld, sófaáklæði, ullarteppi og púðaver Hafðu hreint fyrir gluggunum ÚTSALA 40% 30-40% AFSLÁTTUR IMAC KULDASKÓR 11.897KR. VERÐ ÁÐUR 16.995 Gleðilegt nýtt ár kæru Íslendingar. Í jólahugvekjunni minni leit ég til baka til þess tíma þegar ég var að alast upp en nú er komið nýtt ár og því tel ég réttast að horfa fram á veginn, á nýja árið sem nú gengur í garð og færir okkur óteljandi tækifæri, drauma og vonir. Fram á veginn Margt hefur í gegnum tíðina verið sagt um okkur Íslendinga, bæði gott og slæmt. Við erum heimsþekkt fyrir hið fagra land okkar og frækna íþróttamenn og -konur en erum jafn- framt ekki síður þekkt fyrir að standa í lappirnar gegn alþjóðaauð- valdinu og ESB í Icesave-málinu í kjölfar hrunsins. Við erum jafnframt líklegast eina þjóðin sem fór á eftir spilltum bankamönnum með rann- sóknum og ákærum. Oft hefur blásið á móti okkur Íslendingum en ein- hvern veginn höfum við alltaf haldið áfram. Við héldum áfram eftir hrunið. Við héldum áfram eftir sífelld stjórnarslit og við munum halda áfram núna, sama hvað á bjátar. Gamla fólkið situr á hakanum Það er nefnilega eitt sem mér hef- ur alltaf þótt einkenna þjóð mína og það er seigla. Það þurfti mikið til að lifa af harða vetur og mikla fátækt á þessu strjálbýla skeri sem virðist á tíðum vera baráttusvið veðurguð- anna. En það tókst og hér erum við í dag og við eigum að vera stolt af því. Við eigum að vera stolt af fólkinu okkar sem gerði okkur kleift að kom- ast af og lifa við langtum betri að- stæður í dag en voru í þá daga. Við eigum ekki bara að vera stolt af þeim, við eigum að launa þeim fyrir með því að sjá til þess að fullorðið fólk í dag búi við mannsæmandi að- stæður en það virðist einhvern veg- inn hafa gleymst í hita leiksins. Falsfréttir og smölun Svo virðist nefnilega sem undan- farinn áratug eða ef til vill lengur hafi stjórnmálin og fréttamennskan á Ís- landi gengið út á að skipta fólki í hópa. Flokka okkur eins og fé sem dregið hefur verið í dilka og samfélagið er beinlínis hvatt til þess að standa í innbyrðis útistöðum. Þeir sem kjósa einn flokkinn eru úthrópaðir þennan dag- inn en hinn flokkinn hinn daginn. Þeir sem eru á öndverðri skoðun en obbinn af fólki eru kallaðir ljótum nöfnum. Fjölmiðlar hika ekki við að birta falsfréttir eða birta bara engar fréttir af málefnum sem svo sannarlega varða þjóðina. Mörg mál- efni hafa verið sett á svartan lista og eru talin svo mikið tabú að þau má ekki ræða. Þessi þróun er ekki af hinu góða og hefur það að markmiði að halda okkur hverju í sínum dilkn- um í stað þess að við stöndum saman og stuðlum að samstöðu í þjóðfélag- inu. Sígild viska Jón Sigurðsson forseti komst svo að orði um landið sitt árið 1838 og eiga þau orð vel við í dag: „Farsæld þjóðanna er ekki komin undir því, að þær séu mjög fjölmennar eða hafi mjög mikið um sig. Sérhverri þjóð vegnar vel, sem hefir lag á að sjá kosti lands síns og nota þá, eins og þeir eiga að vera notaðir. Löndin eru lík einstökum jörðum, ekkert land hefir alla kosti, og engu er heldur alls varnað. En það ríður á að taka eftir kostunum og nota þá vel, en sjá til, að ókostirnir gjöri sem minnst tjón.“ Nauðsyn samheldni Það er nefnilega einu sinni þannig að það besta sem við Íslendingar get- um gert á nýju ári er að standa saman. Bjóða nágrannanum góðan daginn. Standa upp í strætó fyrir eldra fólki, óléttum konum og öðrum sem þurfa frekar á sætinu að halda en við. Hlusta þegar einhver talar um sínar skoðanir, hvort sem við erum sammála þeim eða ekki í stað þess að úthúða viðkomandi og niðurlægja. Við þurfum ekki að láta stjórnast af dyntunum í ráðamönnum þjóðar- innar, það erum við sem eigum að stjórna hverjir ráða. Við eigum ekki að láta bjóða okkur arðrán undir ber- um himni eða að ekki sé brugðist við málefnum sem snerta hvert einasta mannsbarn. En ef við stöndum ekki saman þá erum við vopnalaus gagn- vart þeim sem vilja sundra okkur. Því þeir vita manna best að sameinuð þjóð sigrar en sundruð tapar. Gleðilegt og ham- ingjuríkt nýtt ár Eftir Guðmund Franklín Jónsson Guðmundur F. Jónsson »… flokka okkur eins og fé sem dregið hefur verið í dilka og samfélagið er beinlínis hvatt til þess að standa í innbyrðis útistöðum. Höfundur er viðskipta- og hagfræð- ingur. gundi.jonsson@gmail.com Það hefur frést af fallegu þorpi í Austurríki, sem varð svo eftirsótt af ferðamönnum frá Asíu að það endaði með því að eftirmynd þess í heilu lagi var sett upp í Guandong í Kína. Þorpið er ævagamalt, þekkt fyrir saltvinnslu að fornu fari, nú á minjaskrá UNESCO, og troðfullt af túr- istum. 800 manna þorp, með 150.000 gistingar á ári. Mörgum er nóg boðið en aðrir fagna eins og gengur. Starfsemi í bænum snýst öll um túrismann og hægt er að halda þessum aldagömlu húsum við með gistigjöldum. En geta menn vanist því að kíkt sé inn í húsagarð eða á glugga hvenær sem er og myndir teknar í sífellu? Þetta eru menn að reyna á eigin skinni, líka hér á landi. Alls konar áform eru uppi, bæði frá útlendum og innlendum, um að auka ferðamannastrauminn enn frekar, og lítið spurt hvað nágrönnum finnst um átroðning og áreiti sem fylgir. Áform eru um að heilu þorpin verði eins konar Disney- garðar en venjulegt mannlíf víki. Hverjir halda sig þess umkomna að umturna þannig lífsháttum annars fólks? Sunnlendingur Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12. Út um þorpagrundir Morgunblaðið/Eggert Ferðamenn Ferðamönnum fjölgar með ári hverju bæði á Íslandi og annars staðar. Móttaka aðsendra greina Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar greinar alla útgáfudaga. Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam- skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla. Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn grein“ er valinn. Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólar- hringinn. Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma 569-1100 frá kl. 8-18. Fasteignir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.