Morgunblaðið - 04.01.2020, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 04.01.2020, Blaðsíða 13
DAGLEGT LÍF 13 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 2020 Ef þú hefur ekki heimsótt Færeyjar nýlega skaltu láta verða að því. Þangað er heillandi að koma, stórbrotið landslag, gott vegakerfi, góður matur og rómuð gestrisni eyjaskeggja. Ferðaskrifstofa eldri borgara og Hótelbókanir.is verða með sérferð fyrir eldri borgara til Færeyja dagana 25.-31. mars. Fararstjóri: Gísli Jafetsson. Dagskrá: Þann 25. mars er ekið frá Reykjavík að Seyðisfirði og þaðan siglt með Norrænu til Þórshafnar og komið þangað 26. mars. Fyrsti dagurinn er frjáls en síðan verða skoðunarferðir um eyjarnar næstu 3 daga undir leiðsögn fararstjóra. Gist er á Hotel Hafnia 4* í miðbæ Þórs- hafnar. Siglt er frá Þórshöfn mánudaginn 30. mars og komið til Seyðisfjarðar að morgni 31. mars. Þaðan ekið til Reykjavíkur og komið þangað að kvöldi. Innifalið í verði ferðarinnar er morgunverður alla daga, kvöldverður á leið til Færeyja og á Hotel Hafnia og veitingar á leið til Seyðisfjarðar. Nánari upplýsingar eru veittar hjá Ferðaskrifstofu eldri borgara í símum 783-9300 og 783-9301, einnig með tölvupósti í gegnum netfangið hotel@hotelbokanir.is og á www.hotelbokanir.is Niko ehf | Pósthólf 72 | 802 Selfoss | kt. 590110-1750 FÆREYJAR 25. – 31. mars 2020 Sérferð fyrir eldri borgara Mikil upplifun Verð 167.500 kr. m.v. gistingu í tvíbýli/einbýli Barbára Sól Gísladóttir knatt-spyrnukona og HaukurÞrastarson handknattleiks- maður, bæði úr Ungmennafélagi Sel- foss, voru kosin íþróttakona og -karl Árborgar 2019. Valnefnd réð för en einnig fór fram kosning á netinu sem vó 20% á móti atkvæðum nefndar. Yngstur á stórmóti Haukur Þrastarson var lykilmaður í liði Selfoss sem náði Íslandsmeist- aratitlinum í handbolta karla í maí í fyrra. Var jafnframt valinn efnileg- asti leikmaður Olísdeildarinnar og er fastamaður í landsliði Íslands. Hauk- ur, sem fæddur er í apríl 2001, lék í janúar með liðinu á HM í Þýskalandi og varð yngsti leikmaður Íslendinga til að leika á stórmóti í handbolta. – Í kvennaliði Selfoss í knattspyrnu er Barbára Gísladóttir burðarás, en liðið fagnaði bikarmeistaratitlinum í fyrsta skipti sl. sumar eftir glæstan sigur á KR. Í úrvalsdeildinni varð Selfossliðið í 3. sæti. Sjö tindar Á Húsavík voru blakkonan Arna Védís Bjarnadóttir og Heiðar Hrafn Halldórsson langhlaupari kjörin íþróttamaður og íþróttakona Völ- sungs 2019. Arna Védís hefur verið burðarás í meistaraflokksliði Völ- sungs og lék stórt hlutverk í liðinu tímabilið 2018-2019, bæði í bikar- keppni og úrvalsdeild. Er jafnframt í landsliðinu og spjarar sig vel. Hjá Heiðari Hrafni var árið 2019 það langbesta í sportinu til þessa. Hann bætti sig mest í 10 kílómetra hlaup- um. Reyndi sig einnig við fjallahlaup, svo sem við Snæfellsjökul. Tók einnig þátt í Tindahlaupi Mosfellsbæjar í ágúst og var þar í öðru sæti, með því að hlaupa á sjö tinda á 4:21 klst. Alls er hlaupið 38,2 km og heildarhækkun 1.822 metrar. Afreksfólk á Selfossi og Húsavík sæmt heiðurstitlum um áramótin Burðarásarnir spjara sig Morgunblaðið/Árni Sæberg Kraftur Haukur Þrastarson, leikmaður Selfoss, er meðal fremstu hand- knattleiksmanna þjóðarinnar og sést hér í sveiflu í spennandi úrslitaleik. Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarson Völsungar Blakkonan Arna Védís Bjarnadóttir og Heiðar Hrafn Hall- dórsson langhlaupari voru kjörin íþróttafólk Húsavíkurfélagsins. Ljósmynd/Guðmundur Karl Selfoss Barbára Gísladóttir knatt- spyrnukona með verðlaunin. Sölvi Geir Ottesen knattspyrnu- maður var útnefndur íþróttamaður Víkings 2019. Er fyrirliði meist- araflokks karla, lék sinn 100. leik fyrir félagið í sumar og fór fyrir lið- inu þegar það varð bikarmeistari í fyrsta sinn í 48 ár. Eftir tímabilið var Sölvi var valinn besti leikmaður liðs- ins, en með því spilaði hann alls 24 leiki í sumar og skoraði þrjú mörk. Þetta var annað tímabil Sölva Geirs með liðinu síðan hann kom heim úr atvinnumennsku erlendis. Stefnir á ÓL í Japan Hjá Grafarvogsfélaginu Fjölni var Úlfar Jón Andrésson íshokkí- maður valinn íþróttakarl ársins. Íþróttakonan var Eygló Ósk Gúst- afsdóttir sem hefur verið afrekskona í sundi frá 13 ára aldri. Meðal annars keppt á tvennum Ólympíuleikum og stefnir nú á leikana í Japan síðar á árinu. Hjá Fylki í Árbænum var Iveta Ivanova úr karatedeild valin íþrótta- kona ársins. Hún hefur lengi verið í landsliðinu í karate og jafnframt þjálfari hjá Fjölni sem skipuleggur félagsstarf og viðburði. Íþróttakarl Fylkis er Ólafur Engilbert Árnason, einnig úr karatedeild. Ólafur er í landsliðinu og hefur verið fastamað- ur þar síðan hann var 14 ára. Hefur æft með Fylki frá barnsaldri en býr nú í Danmörku og æfir með landsliði Dana. Keppir þar í erfiðasta karla- flokknum í kumite, frjálsum bar- daga, og hefur skákað þeim bestu í heiminum. Markakóngur og boðhlaupari Í FH í Hafnarfirði voru Ásbjörn Friðriksson handknattleiksmaður og frjálsíþróttakonan Þórdís Eva Steinsdóttir kjörin íþróttakarl og íþróttakona ársins. Ásbjörn var einn besti leikmaður Olísdeildarinnar á síðasta tímabili og varð markakóng- ur. – Um afrek Þórdísar Evu er það að segja að hún keppti víða á nýliðnu ári í boðhlaupum, svo sem á Evrópu- og Norðurlandamótum og náði þar góðum árangri. Þá var hún auk þess að vera valin íþróttakona FH kjörin til sama titils í Hafnarfjarðarbæ. Fram Steinunn Björnsdóttir hand- knattleikskona þykir vera góður fulltrúi kvenna í félagi sínu. Ljósmynd/Jóhannes Long FH Ásbjörn Friðriksson og Þórdís Eva Steinsdóttir eru afreksfólk.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.