Morgunblaðið - 04.01.2020, Síða 21
FRÉTTIR 21Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 2020
Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
Með víginu á íranska hershöfðingj-
anum Qasem Soleimani í Bagdad í
fyrrinótt eru erjur Bandaríkjamanna
og Írana komnar á nýtt og alvarlegra
stig. Óttast er að afleiðingarnar geti
orðið miklar og því hvöttu leiðtogar
um heim allan báða deiluaðila til að
sýna stillingu og draga úr væringum.
Með því að taka æðsta yfirmann ír-
anska byltingavarðarins, úrvals-
sveita hersins, úr umferð hefur Do-
nald Trump Bandaríkjaforseti tekið
ákvörðun sem átt getur eftir að valda
pólitískum stórskjálfta og alvarleg-
um afleiðingum í Mið-Austurlöndum,
að sögn franska blaðsins Le Figaro.
Í sama streng tekur breska út-
varpið BBC og varar við víxlverkun
árása og hefndaraðgerða sem gæti
leitt til hernaðarátaka milli Írans og
Bandaríkjanna. Það sagði að héðan í
frá myndi reyna verulega á stefnu
Trumps í heimshlutanum, ef hún
væri þá einhver.
Philip Gordon, sem samræmdi að-
gerðir Bandaríkjamanna í Mið-Aust-
urlöndum og á Persaflóasvæðinu í
stjórnartíð Baraks Obama, sagði af-
tökuna jaðra við stríðsyfirlýsingu
gegn Íran. Ekki stóð á yfirvöldum í
Teheran.
„Píslarvættisdauði eru launin fyrir
óaflátanlega baráttu hans í öll þessi
ár,“ sagði æðsti leiðtogi Írans, Aya-
tollah Ali Khamenei, um fall Soleim-
ani á twittersíðu sinni. „Þótt hann sé
horfinn mun Guð sjá til þess að verk-
um hans verði haldið áfram og vægð-
arlaus hefnd bíður glæpamannanna
sem ötuðu skítugar hendur sínar með
blóði hans og annarra píslarvotta
þeirra í gærkvöldi.“ Khameini bætti
því við að banamenn Soleimanis væru
mestu hrottar jarðarkringlunnar.
Gjald fyrir morð
„Af staðfestu og styrk felldum við
leiðtoga þeirra sem ráðist hafa gegn
landsvæðum okkar,“ sagði leiðtogi
repúblikana á Bandaríkjaþingi um
aðgerðina gegn Soleimani, Kevin
McCarthy. „Wow-gjaldið fyrir að
særa og drepa Bandaríkjamenn hef-
ur stórhækkað,“ sagði náinn sam-
starfsmaður Trumps, öldungadeild-
armaðurinn Lindsey Graham, á
twitter.
Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeild-
ar Bandaríkjaþings, var á öðru máli.
Morðið á Soleimani væri storkun er
leitt gæti til hættulegrar aukningar
ofbeldisverka. „Ameríka og heimur-
inn allur hafa ekki efni á að viðsjár
vaxi þar til því stigi er náð að ekki
verður snúið til baka.“
„Trump forseti hefur kastað dýna-
míttúpu í púðurtunnu,“ sagði Joe
Biden, fyrrverandi varaforseti. „Íran
mun efalítið bregðast við. Við gætum
staðið á þröskuldi stórátaka þvert og
endilangt á Mið-Austurlönd.“
„Dráp Soleimanis var ævintýra-
mennska sem mun auka á spennu í
heimshlutanum. Hann varði þjóðar-
hagsmuni Írana af einstakri helgun,“
sagði utanríkisráðuneytið í Moskvu
um atvikið. Konstantín Kosatsjev,
formaður utanríkisnefndar efri deild-
ar rússneska þingsins, sagði drápið á
Soleimani vera mistök sem ættu eftir
að hitta Bandaríkjamenn sjálfa fyrir.
„Hefndarárásir munu tvímælalaust
eiga sér stað,“ sagði hann.
Víða um heim voru þjóðarleiðtogar
uggandi yfir aðgerð Bandaríkjahers í
Írak. Kínverjar hvöttu til stillingar
og það gerðu einnig leiðtogar Frakk-
lands og Þýskalands. Olía og hluta-
bréf á alþjóðlegum mörkuðum féllu
strax við fyrstu fréttir af lífláti Sol-
eimanis.
Hættulegri heimur
„Við vöknuðum upp í hættulegri
heimi í morgun,“ sagði Amelie de
Montchalin, Evrópuráðherra frönsku
stjórnarinnar, í útvarpssamtali í gær-
morgun. „Við tökum afstöðu með
hvorugum aðilanum, heldur ræðum
við báða og reynum að skapa um-
hverfi fyrir frið og varanlegan stöð-
ugleika,“ sagði hún. Utanríkisráð-
herra Breta, Dominic Raab, sagði að
Bretar hefðu ætíð verið meðvitaðir
um ógnina af Soleimani og Quds-
sveitum hans. Frekari átök yrðu ekki
í neinna þágu.
Quds-sveitirnar er sá armur ír-
anska heraflans sem sinnir aðgerðum
utan Írans. Um árabil, hvort sem er í
Líbanon, Sýrlandi eða annars staðar,
hefur Soleimani verið lykilmaðurinn í
að auka áhrif Írana í Mið-Austur-
löndum, m.a. með árásaraðgerðum. Í
augum Bandaríkjamanna voru hend-
ur hans ataðar bandarísku blóði.
Ekki þótti á óvart koma að Soleimani
væri eitt af skotmörkum Trumps,
heldur hvers vegna var látið til skar-
ar skríða gegn honum nú. Af hálfu
varnarmálaráðuneytisins í Wash-
ington snerist uppgjörið við Soleim-
ani ekki bara um að refsa honum fyrir
fyrri gjörðir gegn bandarískum her-
afla heldur skyldi dauði hans vera
öðrum „fæling“. Hann hafi verið að
undirbúa árásir á bandaríska sendi-
fulltrúa og hersveitir í Írak og annars
staðar í Mið-Austurlöndum.
Hvað nú tekur við er stóra spurn-
ingin, segir BBC. Trump mun vona
að með árásinni hafi hann bæði hrætt
Írana til undirgefni og sýnt og sannað
fyrir óþolinmóðum bandamönnum
eins og Ísrael og Sádi-Arabíu, að fæl-
ingarmáttur bandaríska hersins hefði
enn bit. Óhugsandi þykir að Íranar
muni ekki aðhafast í framhaldinu. Í
Írak væri 5.000 manna herafli Banda-
ríkjanna augljóst skotmark. Banda-
ríkjamenn og bandamenn þeirra
þurfa að gæta að vörnum sínum. Fyr-
irliggjandi munu áætlanir um stór-
aukinn herafla í Mið-Austurlöndum,
ef á þarf að halda.
Íranar hóta
vægðarlaus-
um hefndum
Þjóðarleiðtogar hvetja Bandaríkja-
menn og Írana til að sýna stillingu
Spenna milli
Bandaríkjanna
og Írans
2 0 1 8
2 0 1 9
AFP Photo
Íran tilkynnir að það muni létta
takmörkunum af birgðum af
þungu vatni og auðguðu úrani
Bandaríkin beita viðskipta-
þvingunum sem beinast að
járni, stáli, áli og kopar frá Íran
8. maí
7. september
Donald Trump tilkynnir að
Bandaríkin muni segja sig
frá samkomulagi frá 2015
um kjarnorkuáætlun Írans og
boðar viðskiptaþvinganir
8. maí
Íran tilkynnir að þróaðar
skilvindur hafi verið gang-
settar á ný til að auka forða
af auðguðu úrani
16. september
Trump sakar Írana um að hafa
gert drónaárás á olíuframleiðslu-
svæði Sádi-Arabíu sem hafði veru-
leg áhrif á olíuframleiðslu landsins
18. september
Trump tilkynnti að hann hafi
skipað ríkisstjórn sinni að herða
til muna viðskiptaþvinganir
gagnvart Írönum
7. júlí
Íran staðfestir að úranbirgðir
séu yfir umsömdum mörkum
4. september
Hassan Rouhani fyrirskipar að
öllum takmörkunum á rann-
sóknum og þróun verði aflétt
18. júlí
Bandaríkin staðfesta að
bandarískt herskip hafi
grandað írönskum dróna
yfir Hormuzsundi
1. júlí
Birgðir Írana af úrani eru
orðnar meiri en þeir höfðu
heimild til
20. júní
Byltingarverðir Írans tilkynna
að þeir hafi skotið niður
bandarískan dróna.
Daginn eftir tilkynnti Trump
að hann hefði fallið frá
hefndarárásum
Bandaríkin Íran
Donald
Trump
Hassan
Rouhani
3. janúar 2020
Qasem Soleimani, einn æðsti her-
stjóri Írana, drepinn í loftárás
á alþjóðaflugvellinum í Bagdad
í kjölfar vaxandi hernaðaraðgerða
þar sem bandarískur verktaki
lét m.a. lífið í flugskeytaárás á
borgina Kirkuk
7. nóvember
Íranar hefja á ný auðgun úrans
í Fordow verksmiðjunni
Helstu atburðir
1957-2020
Gekk árið 1979 í
Íslömsku byltingarvarða-
sveitirnar (IRGC)
Tign: Yfirhershöfðingi
Herstjóri Byltingarvarðanna
í Íran
Frá 1998 stýrði hann sérsveitum
IRGC
Vestrænir leiðtogar töldu hann
lykiltenglilið Írans við
herská samtök á borð við
Hezbollah í Líbanon og
Hamas í Palestínu
Talinn hafa mótað utanríkis-
stefnu Írana í Miðausturlöndum
og aukið áhrif Írans í Írak,
Sýrlandi og víðar
Um 83% Írana höfðu jákvætt
viðhorf til Soleimani samkvæmt
könnun IranPoll og Maryland-
háskóla árið 2018
Lét lífið í loftárás Bandaríkja-
manna í Bagdad 3. janúar
Qasem Soleimani
Heimild: AFP/bandarískir fjölmiðlar
Ljósmynd: IRIB
AFP
Mótmælt Í Lahore í Pakistan mótmælti fólk árásinni sem varð Qasem Solei-
mani að bana. Antonio Guterres, framkvæmdastjóri SÞ, sagði heiminn ekki
hafa efni á nýju stríði við Persaflóa og hvatti til stillingar.
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is
GLÆSILEGIR „PLUG IN
HYBRID“ TIL SÖLU
AUDI A3 E-TRON, VW GOLF GTE,
VW PASSAT GTE OG M. BENZ E350E
M.BENZ E 350E
AVANTGARDE EQ POWER
nýskr. 02/2018, ekinn 22 Þ.km, bensín/
rafmagn, sjálfskiptur, stafræntmælaborð.
Glæsilegt eintakmeð fullt af aukahlutum!
Verð 7.450.000 kr.
TILBOÐ 6.999.000 kr. Raðnúmer 259893