Morgunblaðið - 04.01.2020, Page 28

Morgunblaðið - 04.01.2020, Page 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 2020 ✝ Sverrir Gunn-arsson fæddist í Reykjavík 18. ágúst 1928. Hann lést á heimili sínu á Dvalarheimilinu Ási í Hveragerði 23. desember 2019. Foreldrar hans voru hjónin Gunnar Jónsson, kaupmað- ur í Reykjavík, f. 4.12. 1896, d. 22.6. 1960, og Ingibjörg Ólafsdóttir, húsmóðir, f. í Reykjavík 12.8. 1909, d. 30.4. 1959. Systkini Sverris voru: Gunnar Þorbjörn, f. 8.8. 1926, d. 28.4. 2007, Þor- gerður Vilhelmína Gunn- arsdóttir, f. 4.6. 1930, d. 24.5. 2006, og Ævar Guðbjörn, f. 25.4. 1933, d. 9.6. 1996. Sverrir ólst upp hjá for- eldrum sínum á Hverfisgötu 69 í Reykjavík, en langdvölum var hann hjá systkinunum Halldóri og Margréti í Hrosshaga sem voru honum sem hann væri þeirra barn. Hann eignaðist jörðina árið 1948 eftir nám í Bændaskólanum á Hvanneyri. Sverrir kvæntist eftirlifandi konu sinni, Ólöfu Fríðu Gísla- dóttur, oftast nefnd Fríða, f. 30.11. 1927 á Ölkeldu í Stað- Bergþór Sigurðsson. Barna- börnin eru átta. 4) Margrét, f. 21.3. 1957, eiginmaður Helgi Guðmundsson. Börn þeirra eru Þórey, eiginmaður Sólon Mort- hens, Ketill, sambýliskona Sædís Arnardóttir, Fríða, eiginmaður Morten Dreyer, og Andri, sam- býliskona Silja Runólfsdóttir. Barnabörnin eru átta. 5) Ólöf, f. 13.6. 1958. Dóttir hennar er Tara Róbertsdóttir. 6) Ingi- björg, f. 18.9. 1963, eiginmaður Óttar Ægir Baldursson. Dætur þeirra eru Adda María og Vil- borg. Börn Ingibjargar og fyrri eiginmanns, Harðar Gunnars- sonar, eru Nanna Dröfn, eigin- maður Sigþór Sigurðsson, og Gunnar Þórbergur, sambýlis- kona Kristrún Hildur Bjarna- dóttir. Barnabörnin eru sjö. Sverrir og Fríða bjuggu í Hrosshaga alla sína búskapartíð utan tvö ár þegar þau áttu heima í Laugarási. Þau stofnuðu garðyrkjustöðina Akur. Auk bú- skaparins vann hann um tíma sem ýtustjóri hjá ræktunar- sambandinu Ketilbirni. Hann var alla tíð mjög áhugasamur um framfarir í sveitinni og sat um skeið í hreppsnefnd. Hann stóð meðal annars fyrir stofnun hitaveitu fyrir Hrosshaga og nokkra aðra bæi. Síðustu sautján ár hafa Sverrir og Fríða átt heima á dvalarheimilinu Ási í Hveragerði. Útför Sverris fer fram frá Skálholtskirkju í dag, 4. janúar 2020, klukkan 14. arsveit, 7.5. 1949. Foreldrar hennar voru Gísli Þórðar- son, f. 12.7. 1886, d. 20.9. 1962 og Vil- borg Kristjáns- dóttir, f. 13.5. 1893, d. 26.12. 1993. Börn Sverris og Fríðu eru: 1) Halldór, f. 4.3. 1950, eiginkona Gunnþórunn Jóns- dóttir. Börn þeirra eru Flóki, Sólveig og Halldór. Eiginkona Flóka er Elísabet Þórey Þórisdóttir og eiga þau þrjár dætur. 2) Gísli, f. 12.12. 1951. Sonur hans og Eddu Þor- valdsdóttur er Hjálmar, eigin- kona Margrét Dóra Ragnars- dóttir og eiga þau einn son. Eiginkona Gísla er Guðrún Ásta Einarsdóttir og á hún dæturnar Bryndísi Björk, eiginmaður Kjartan Már Másson, Eyrúnu Ösp, eiginmaður Jón Valur Vals- son og Hildi, Eyþórsdætur og sex barnabörn. 3) Gunnar, f. 16.10. 1953, eiginkona Sigríður Jónína Sigurfinnsdóttir. Börn þeirra eru Henrietta Ósk, Jón Ágúst, unnusta Sólrún Lilja Ragnarsdóttir, Ásta, sambýlis- maður Ægir Freyr Hallgríms- son, og Sigrún, sambýlismaður Elsku pabbi sofnaði sæll að kveldi í sínu rúmi við hlið mömmu en vaknaði ekki að morgni Þorláksmessu. Þannig vildi hann kveðja. Það er erfitt að sjá eftir svona yndislegum manni eins og faðir minn var en minningar um hann geymum við í huga okkar. Pabbi var afkastamikill mað- ur, mikill framkvæmdarmaður, ósérhlífinn og hjálpsamur. Stríðinn og spaugsamur og hafði létta lund alveg fram á síðustu stundu. Hann hafði gaman af að ferðast og ferð- uðust þau mamma mikið. Varla kominn úr einni ferð, að hann var farinn í tölvuna að skoða næstu ferð. Svo hafði hann það á orði að hann missti puttann á staðfestingartakkann í tölvunni og þá varð ekki aftur snúið, næsta ferð komin. Eitt var það sem háði pabba en það var heyrnin. Hann var með slæma heyrn og fékk snemma heyrn- artæki en heyrnin versnaði stöðugt og þar með dró hann sig til hlés og var ekki mikið fyrir að vera innan um marg- menni. Það var á þeim tíma sem við bjuggum hér hlið við hlið í Hrosshaga, og kom hann oft í morgunkaffi án heyrnar- tækjanna og heyrði náttúrlega illa, að mamma tók eftir tækj- unum heima hjá sér og kom trítlandi með þau. Hann var nú ekkert að kippa sér upp við það. Börnin mín nutu þess að hafa afa sinn í næsta húsi og voru mjög náin honum. Það var svo árið 2002 að pabbi og mamma fluttu frá Hrossahaga að Dvalarheimilinu Ási í Hveragerði. þetta var stórt stökk því á þessum tíma voru þau mjög hress og vel fær um að sjá um sig sjálf. En á Ási leið þeim vel. Þar höfðu þau nóg að gera. Pabbi fékk að- stöðu fyrir smíðadótið sitt og tók það eins og sína vinnu að fara og skera út eða tálga. Maðurinn sem var vanur að smíða heilu húsin úr járni eða timbri fór að tálga smáa hluti og skera út. Hann var byrjaður á þessu áður en hann flutti að Ási en þarna leit hann á þetta sem sína vinnu. Pabbi varð að leggja niður þessa vinnu sína fyrir fáeinum árum því hann var svo slæmur í öxlinni og þá var mikið frá hon- um tekið. Pabbi var alltaf með hugann hér uppi í Tungum og spurði í hvert sinn þegar ég kom hvort eitthvað væri að frétta úr sveit- inni og hvort það væru ein- hverjar framkvæmdir. Nú framkvæmir hann ekki meir hér á jörðu en ef til vill heldur hann áfram annars staðar. Bestu þakkir fær starfsfólkið á Ási fyrir frábæra umönnun gegnum árin og talaði pabbi oft um hvað allir væru hjálplegir. Hvíl þú friði, pabbi minn. Margrét Sverrisdóttir. Elsku pabbi sofnaði kvöldið fyrir Þorláksmessu við hlið mömmu og vaknaði ekki aftur. Þannig hafði hann margoft sagt að hann vildi fara og honum varð að ósk sinni. Við vorum heppin að fá að hafa hann svona lengi en hann var tilbú- inn að fara þó hann væri enn ótrúlega hress. Pabbi er fæddur 1928 og al- inn upp á Hverfisgötu 69 í Reykjavík, sonur Gunnars Jónssonar, Hanssonar, Natans Ketilssonar. Pabbi sagði sjálfur í gríni að hann væri kominn af drykkjumönnum og sauðaþjóf- um langt aftur í ættir enda ætt- aður úr Húnavatnssýslunni. Pabbi gat verið mjög skemmti- legur þegar sá gállinn var á honum. Hann sagði skemmti- lega frá og var góð eftirherma. Þegar hann tók sig til varð hann skemmtikraftur og hermdi eftir pólitíkusum og ýmsum körlum í sveitinni. Hann hélt í húmorinn fram á dauðadag. Alltaf tilbúinn að gera grín og þá aðallega að sjálfum sér. Hann var hörkuduglegur á yngri árum og ætlaðist til að aðrir væru það líka. Dugnaður til vinnu var æðsta dyggðin og veraldlegur auður mikils met- inn. Andlegt ríkidæmi var þó líka í heiðri haft og pabbi hvatti okkur öll til náms. Þó að hann sjálfur væri ekki mikið mennt- aður fylgdist hann alltaf með tækninýjungum og var fljótur að kaupa ýmsar vélar sem nota þurfti á búinu eða tæki til heimilishalds og var einna fyrstur til í sveitinni að kaupa sjónvarp þegar það kom á markaðinn. Hann var líka framkvæmda- glaður og hafði ekki síður áhuga á framkvæmdum og upp- byggingu en á bústörfunum. Hann reif upp kotbæinn Hross- haga og gerði að stórbýli og byggði gróðurhús í mýrinni í Laugarási og nefndi Akur. Dugnaðarforkurinn var ekki alltaf sáttur við sveimhugann og lestrarhestinn mig þegar ég var yngri og það átti að taka til hendinni í sveitinni en hann var stoltur af mér þegar ég stóð mig vel í skóla. Pabbi hafði stórt hjarta og þó hann væri ekkert að flíka tilfinningunum þá fann maður að hann vildi öll- um vel. Hann hefur líka alltaf verið hjálpsamur og örlátur og ég er honum óendanlega þakk- lát fyrir það. Bless, elsku pabbi minn. Mamma er alveg viss um að þú sért miklu hamingjusamari þar sem þú ert núna og ég er ekki frá því að þér líði betur á tungl- inu, eins og eitt barnabarna- barnið sagði þegar við sögðum að þú værir kominn til himna. En ég á eftir að sakna þín. Ólöf Sverrisdóttir. Elsku Sverrir tengdafaðir minn er látinn. Sverrir var kát- ur og glettinn fram á síðustu stundu, þó þrekið og skamm- tímaminnið hafi látið undan. Og hann var tilbúinn að fara. Tal- aði um að honum lægi orðið á upp að Torfastöðum, í kirkju- garðinn. Og að sofna síðasta kvöldið við hliðina á Fríðu sinni og svífa síðan inn í Sumarland- ið, þannig vildi hann fá að fara. Sverrir hefur líklega verið orkumikill og óþekkur ungur drengur þar sem hann ólst upp hjá foreldrum sínum í Reykja- vík. Hann átti því láni að fagna að vera sendur í sveit til systk- inanna Margrétar og Halldórs í Hrosshaga. Og hann vildi hvergi annars staðar vera. Enda fór svo eftir lát Halldórs að Sverrir eignaðist jörðina. Hann kynntist henni Fríðu sinni á Hvanneyri, þau giftu sig og fluttu saman í sveitasæluna. En það hefur eflaust ekki verið tóm sæla. Húsin, túnin og allt búið var smátt í sniðum. Þeirra beið mikið verk. Hér var torf- bær, og þar bjuggu þau fyrstu sjö árin og synirnir urðu þrír meðan þau bjuggu í gamla bænum. Þrjár dætur fæddust síðar. Magga gamla var þeim mikil hjálparhella og Fríða hef- ur oft sagt að hún vissi ekki hvernig hún hefði farið að án hennar. Fyrstu búskaparárin hafa oft verið erfið. Búið lítið, börnun- um fjölgaði og Fríða var ekki góð til heilsunnar fyrstu árin, þó hún fengi sem betur fer bata síðar. En hjálpsemi nágranna og sveitunga, auk fjölskyldunn- ar var mikil og skipti sköpum. Fríða vill koma þakklæti á framfæri til allra þeirra sem hjálpuðu þeim. Margt breyttist næstu árin. Sverrir átti eftir að byggja tvö fjós, tvö íbúðarhús, garðyrkju- stöð á Akri í Laugarási og gróðurhús í Hrosshaga. Og mikið var ræktað, þeim hefði líklega fundist þau endalaus túnin, ungu hjónunum sem keyrðu hingað austur vorið 1949. Að búa félagsbúi í sveit er eins og annað hjónaband. Það reynir á sömu hluti. Og það var ekki erfitt fyrir mig að flytjast hingað um tvítugt og fara að búa með Fríðu og Sverri. Við áttum mjög góð ár saman þó ekki væru þau mörg í búskapn- um. Þau voru alltaf tilbúin í ný ævintýri og 1984 hættu þau kúabúskap og gerðust garð- yrkjubændur. En árin á Akri urðu bara tvö. Þá byggði Sverr- ir nýtt hús í Hrosshaga og gróðurhús, sem skapaði þeim vinnu. Að ógleymdum kleinu- bakstrinum, en þau komu upp aðstöðu til þess og seldu klein- ur. Að koma úr fjósinu og finna kleinuilminn á móti sér er ein af þessum ógleymanlegu minn- ingum. Þá var gott að rölta til þeirra og fá sér kleinu. Og ekki var verra að fá þau í morg- unkaffið þegar kleinupoki var með í för. Barnabörnin nutu þess að kíkja til afa og ömmu. Og oft fengu litlir fingur að hjálpa til við að snúa klein- unum. Fríða og Sverrir ferðuðust mikið og nutu þess. Sverrir fór að tapa heyrn á miðjum aldri. Það einangraði hann, m.a. missti hann hann mikið samband við gömlu vin- ina. Sverrir og Fríða fluttu að Ási í Hveragerði 2002. Þar leið þeim afskaplega vel. Fjölskyld- an er þakklát fyrir mjög góða umönnun á Ási. Elsku Fríðu votta ég samúð mína og þakka Sverri fyrir samfylgdina. Sigríður Jónína Sigur- finnsdóttir (Sigga Jóna). Með andáti föðurbróður míns, Sverris Gunnarssonar, fyrrverandi bónda í Hrosshaga, Biskupstungum, er fallinn frá ástkær fóstri og vinur. Við brothvarf Sverris hrannast upp afar verðmætar minningar frá þeim sumrum sem ég fékk að eiga með honum og Fríðu Gísladóttur, húsfreyju, sem lifir bónda sinn – já og krakkaskar- anum, sem þá var ýmist í fæð- ingu eða uppvexti. Það varð mér ógleymanlegt, þegar nokk- uð baldið borgarbarnið, ég, kem að Hrosshagaafleggjar- anum snemma sumars 1956, eftir um fjögurra klst. hosserí í rútu Óla Ket. frá planinu við Arnarhólinn. Allt í einu stend ég þarna, gegnt Torfatöðum, með Hekluna í sjóndeildar- hringnum, smá ferðatösku í hendi og brjóstfylli af vænt- ingum í algerri þögn náttúr- unnar. Það sem varð sérstak- lega eftirminnilegt, þegar ég mætti loks Sverri og Fríðu heima á bænum, voru faðm- lögin, kossarnir – beint á munninn – og fullorðins talið – ekkert barnahjal, heldur full- orðins umræðuefni. Mér fannst allt í einu að ég væri kominn á nýtt þroskastig. Yndisleg sam- skipti við Hrosshagahjónin voru þannig afar dýrmæt og þroskandi. Sverrir lagði áherslu á verksvit og dugnað, en ekki síður léttleika tilver- unnar. Sverrir notaði óspart sinn glaðværa húmor til að létta lífið og verkefnin. Þetta Sverrir GunnarssonOkkar yndislegi, heittelskaði sonur, bróðir, mágur og frændi, PÁLL ÞORSTEINSSON tónlistarmaður, Guli drekinn, varð bráðkvaddur á heimili sínu þriðju- daginn 24. desember. Útförin fer fram í Fríkirkjunni í Reykjavík mánudaginn 6. janúar klukkan 13. Kristín Árnadóttir Þorsteinn Pálsson Eva Þorsteinsdóttir Hulda Sif Þorsteinsdóttir Erlendur Þór Gunnarsson Selma Rut Þorsteinsdóttir Árni Davíð Skúlason Fanný Hrund Þorsteinsdóttir Magni Kristjánsson og systrabörn Elskulegur faðir minn, tengdafaðir, afi og langafi, KJARTAN BJARNI KRISTJÁNSSON Norðurbyggð 31, Akureyri, lést föstudaginn 20. desember. Útför hans verður frá Akureyrarkirkju mánudaginn 6. janúar klukkan 13.30. Blóm og kransar vinsamlega afþökkuð en þeim sem vilja minnast hans er bent á Gjafasjóð Öldrunarheimila Akureyrar (Skógarhlíð). Sigríður Kjartansdóttir Kristján Þ. Halldórsson Kjartan B. Kristjánsson Erla Sara Svavarsdóttir Guðrún Kristjánsdóttir Auður Kristjánsdóttir Magnús Finnsson Ingunn Jóhanna Kristjánsd. Halldóra Laufey Kjartansdóttir Ástkær faðir okkar og tengdafaðir, TÓMAS B. GUÐMUNDSSON, Lýsubergi 13, Þorlákshöfn, sem andaðist laugardaginn 28. desember, verður jarðsunginn frá Kotstrandarkirkju, Ölfusi, fimmtudaginn 9. janúar klukkan 14. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Líknarfélagið Alfa. Pálína I. Tómasdóttir Sigurjón Bergsson Sigríður Tómasdóttir Árni I. Sigvaldason Víðir Tómasson Elísabet Guðmundsdóttir Guðmundur S. Tómasson Sigríður Ó. Zoega Sigurðard. Ragnheiður Tómasdóttir Brynjólfur Magnússon J. Brynja Tómasdóttir Helgi Helgason Okkar ástkæri HÖRÐUR EINARSSON Skipalóni 7, Hafnarfirði, andaðist á líknardeild Landspítalans í Kópavogi að morgni 24. desember. Útför hans fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði föstudaginn 17. janúar kl. 13. Blóm og kransar eru vinsamlega afþökkuð en þeim sem vilja minnast hans er bent á Minningarsjóð Fríkirkjunnar í Hafnarfirði eða Heru líknarþjónustu. Ólöf Þórólfsdóttir Einar Þór Harðarson Auður Kristín Árnadóttir Signý Dóra Harðardóttir Einar Ragnarsson Jóna Margrét Harðardóttir Björn Freyr Björnsson Ragnar Þór Harðarson Hanna María Óskarsdóttir barnabörn og aðrir ástvinir Ástkær sambýlismaður minn og besti vinur, faðir okkar, tengdafaðir, stjúpfaðir, afi og langafi, RICHARD DAWSON WOODHEAD útfararstjóri, Kirkjuteigi 1, Keflavík, lést á gjörgæslu Hospiten á Tenerife föstudaginn 27. desember. Útörin fer fram frá Keflavíkurkirkju fimmtudaginn 16. janúar klukkan 13. Margrét Pétursdóttir Kristín Richardsdóttir Aðalsteinn H. Jónatansson Agnes Ásta Woodhead Einar Gunnar Einarssson Frank Dawson Woodhead Bennie May Wright Lára Gestrún Woodhead Ólafur Tryggvi Eggertsson stjúpbörn, afabörn og langafabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.