Morgunblaðið - 04.01.2020, Page 39
DÆGRADVÖL 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 2020
RUNÓLFUR VISSI AÐ HANN VAR ORÐINN
LIÐUGUR ÞEGAR KETTIRNIR ELTU HANN
HEIM AF FIMLEIKAÆFINGUNNI.
„KANNSKI ERTU KOMINN Í MÍNUS!”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að fá send frumsamin
ástarljóð.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
DROP
DROP
DROP
DROP
DROP
DROP
DROP
DROP
MEÐ RÉTTUM
VERKFÆRUM MÁ
BRJÓTA HVAÐ
SEM ER, JÓN
JA HÉRNA …
ÉG ÆTLA EKKI AÐ HRINGJA Í
PÍPULAGNINGAMANN, GRETTIR
VIÐ ÞURFUM BARA
RÉTTU VERKFÆRIN
PABBI, LÚTUR VILL AÐ ÉG SPILI
Á SIMBALA Á TÓNLEIKUNUM
HANS HÉR EFTIR
PASSA SIMBALAR
VIÐ TÓNLISTINA
SEM HANN SPILAR?
JÁ! ÞEIR VEKJA ÁHORFENDURNA EF
ÞEIR DOTTA!
sambýlismaður Guðrúnar. 3) Stef-
anía, f. 1986, stærðfræðingur,
áhættusérfræðingur hjá Seðla-
banka Íslands. Sambýlismaður
hennar er Jóhann Torfi Ólafsson
markaðsstjóri og eiga þau tvö börn
á leikskólaaldri, þau Tómas Torfa
og Sólveigu Svölu.
Systkini Davíðs eru: Gyða, f.
1930, d. 2018, húsmóðir og ritari í
Reykjavík, Erla, f. 1936, d. 2017,
húsmóðir og ritari í Reykjavík, og
Gunnar Magnús, f. 1945, verkfræð-
ingur í Reykjavík. Hálfbróðir Dav-
íðs samfeðra var Hilmar Foss, f.
1920, d. 2013, löggiltur skjalaþýð-
andi og dómtúlkur.
Foreldrar Davíðs voru hjónin
Magnús Scheving Thorsteinsson, f.
4.10. 1893, d. 31.10. 1974, banka-
útibússtj. á Ísafirði og verksmiðju-
eigandi, og Laura Scheving Thor-
steinsson, f. Havstein, f. 22.10.
1903, d. 5.10. 1955, píanókennari.
Seinni kona Magnúsar var Sigríður
Briem Thorsteinsson f. 1901, d.
1998, kennari í Kvennaskólanum í
Reykjavík.
Davíð Scheving
Thorsteinsson
Guðlaug Pálsdóttir
húsfreyja á Siglufi rði og Akureyri
Kristinn Níelsson Havsteen
verslunarstj. Gránufélagsins á Siglufi rði og Akureyri og framkvstj. félagsins í
Khöfn, faðir Kristins var Níels Havsteen bróðir Péturs Havsteens amtmanns
Níelsína Hafstein
húsfreyja í Færeyjum
Laura Scheving Thorsteinsson
píanókennari
Gunnar Hafstein
bankastjóri í Færeyjum
Kristjana Gunnarsdóttir
húsfreyja, dóttir Gunnars
Gunnarssonar prests í Laufási
Pétur Havsteen
amtmaður á Möðruvöllum
Hannes Hafstein ráðherra og skáld
Tryggvi Gunnarsson
bankastjóri
Þorsteinn Ö.
Stephensen
leikari
Ögmundur H.
Stephensen bóndi
að Hurðarbaki
í Kjós og
Hólabrekku í Rvík
Hans Stephensen
bóndi á
Hlemmiskeiði á
Skeiðum
Guðrún Stephensen
húsfreyja, dóttir Páls
Melsteðs amtmanns
Stefán P. Stephensen
prófastur í Holti í Önundarfi rði og í Vatnsfi rði
Þórunn Stefánsdóttir
Thorsteinsson húsfreyja í Rvík
Davíð Scheving Thorsteinsson
læknir í Reykjavík
Hildur Guðmundsdóttir Scheving
húsfreyja, dóttir Guðmundar
Schevings sýslumanns
Katrín P.
Thorsteinsson
húsfr. í Viðey
Pétur
Thorsteinsson
sendiherra
Pétur J.
Thorsteinsson
kaupmaður og
útgerðarmaður
á Bíldudal
Muggur myndlistarmaður Þorsteinn Thorsteinsson
verslunarstjóri á Þingeyri
og bóndi í Æðey
Úr frændgarði Davíðs Schevings Thorsteinssonar
Magnús Scheving Thorsteinsson
bankaútibússtjóri á Ísafi rði og
verksmiðjueigandi í Rvík
Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson:
Kringum löndin liggur hann.
Litla svefnró gefur.
Jór, sem bera knapa kann.
Kolblátt auga hefur.
Hér kemur lausn frá Hörpu á
Hjarðarfelli:
Kringum löndin liggur mar.
Leggst mar-tröð á Manga.
Hesturinn er hófa-mar.
Hann ber mar á vanga.
Þannig leysir Guðrún Bjarna-
dóttir gátuna:
Ég para mar við saltan sjó.
Svefn í martröð varla ró.
Mar var heiti á hrossi, jó.
Harðblátt mar við auga sló.
„Síðasta lausn ársins er svona,“
svarar Helgi R. Einarsson:
Með Braga fékk mér far
að freista gæfunnar
og vangavelturnar
vísuðu á mar.
Sjálfur skýrir Guðmundur gát-
una þannig:
Kringum löndin liggur mar.
Litla svefnró gefur mar.
Knapa ber á baki mar.
Blátt á auga sá ég mar.
Þá er limra:
Hinn ölkæri Eyjólfur Mar,
sem orðinn tíræður var
og barnaði eina
áttræða meyna,
var edrú er þetta við bar.
Síðan er ný gáta eftir Guðmund:
Himinn er í austri blár,
upp er dagur runninn.
Gleðilegt og gott nýtt ár,
gáta ný er spunnin:
Finna má í fjósi þann.
Flón má kalla þennan mann.
Aftan í bílnum hangir hann.
Húsviðbygging vera kann.
Helgi R. Einarsson lét þessar
limrur fylgja sinni lausn, - „Óþarfa
áramótaheit“:
Staðföst hún strengir þess heit
að standa’ ekki’ í krásum á beit,
en hlaupa og lyfta,
um lífsstíl nú skipta.
Af hverju enginn þó veit.
Áramótin ’19 til ’20:
Nú þarf í spilin að spá,
ef spiklagið minnka’ á mér á,
en ég er bara svona,
samt alltaf má vona
að deila og draga’ aðeins frá.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Mar er manns fylgja
ÖRYGGI ÖLLUM STUNDUM
ÖRYGGISHNAPPUR
SECURITAS
Hringdu í síma 580 7000 eða farðu á heimavorn.is
SAMSTARFSAÐILI
ÖRYGGISHNAPPUR SECURITAS
09:41 100%