Morgunblaðið - 04.01.2020, Blaðsíða 44
44 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 2020
á heimasíðu Hreyfils:
hreyfill.is
eða í App Store
og Google Play
SÆKTU APPIÐ
Sæktu appið frítt á AppStore
eða Google Play
Hreyfils appið
Pantaðu leigubíl á einfaldan
og þægilegan hátt
Þú pantar bíl1
3 og færð SMS skilaboðað bíllinn sé kominn.
2 fylgist með bílnum í appinu
Fjölbreytilegur hópur tónlistar-
manna er á listanum yfir þá sem
koma fram á Coachella-tónlistarhá-
tíðinni í Kaliforníu í apríl, en hann
var kynntur í gær. Coachella-hátíðin
er sú umfangsmesta sem árlega er
haldin í Bandaríkjunum og koma
sömu listamenn fram tvær helgar í
röð í apríl.
Þremur nöfnum er slegið mest
upp. Það eru pólitíska rapp-
rokkhljómsveitin Rage Against the
Machine, sem lýkur föstudagskvöld-
inu, rapparinn Travis Scott verður
aðalmaðurinn á laugardagskvöldinu,
en hann nýtur mikilla vinsælda vest-
anhafs um þessar mundir, og á
sunnudagsköldinu beinast sjónir
einkum að Frank Ocean sem kemur
í fyrsta skipti fram á tónleikum í
þrjú ár. Verður hann þá að byrja að
fylgja eftir nýrri plötu, sinni fyrstu
síðan Blonde kom út 2016 en Pitch-
fork valdi hana plötu áratugarins.
Meðal annarra tónlistarmanna
sem koma fram á Coachella má
nefna rapparana 21 Savage, DaBaby
og Run the Jewels; og söngvarana
Lönu Del Rey, Rex Orange County,
Daniel Caesar, Fatboy Slim og FKA
twigs. Þá mun Thom Yorke, söngv-
ari Radiohead, troða upp.
AFP
Rapparinn Travis Scott á tónleikum í Texas á dögunum.
Ólík á Coachella
Rage Against the Machine spilar
og Frank Ocean snýr aftur eftir hlé
spor Ámunda þar í borg á árunum
1767-1770, en hann bjó í Sívalaturni og
var aðstoðarmaður í stjörnuskoð-
unarstöð konungs. Í hinum reynir
Guðrún að nálgast hugarheim
Ámunda, gegnum hlutverk kirkjunnar
í samfélaginu á hans tíma og tákn-
myndirnar sem hann setti í sköp-
unarverk sín. Og hún segist hafa séð
sig „knúna til að rýna í aðstæður al-
múgafjölskyldunnar sem Ámundi var
hluti af og mála þau í sínu rétta um-
hverfi með barnaskarann, þau sem
lifðu.“ Hún málaði tvö verk af for-
eldrum Ámunda og börnum þeirra;
þrettán í reifum í fjallshlíð, þau sem
létust öll ung, og á hinni horfast hjónin
í augu við okkur með þau fjögur börn
sem komust á legg. Ámundi var eitt
þeirra. Málverkin eru birt í bókinni og
eru einnig á sýningunni í Hallgríms-
kirkju.
Sólveig Jónsdóttir forvörður fjallar í
einum kafla um rannsókn á litarefnum
sem Ámundaði notaði í eina af alt-
aristöflum sínum. Það er fræðileg
grein, þar sem á nokkuð athyglis-
verðan hátt er fjallað um uppruna lit-
arefna og hvaðan þau sem Ámundi
notaði gætu mögulega verið komin, án
þess að það sé þó fyllilega ljóst. Megin-
textar bókarinnar eru síðan eftir Arn-
dísi S. Árnadóttur, sagnfræðing og
sýningarstjóra. Í hinum fyrri, „Lífs-
reisa Ámunda smiðs, málara og bíld-
skera“, fjallar hún á mjög áhugaverð-
an hátt um ævi og fjölskyldu Ámunda,
út frá þeim heimildum og upplýsingum
sem hún hefur getað grafið upp, og
setur í sögulegt samhengi. Í seinni
grein sinni, „Leitin að kirkjunum
þrettán“, fjallar Arndís á ekki síður
forvitnilegan hátt um þær kirkjur sem
talið er að Ámundi hafi reist víðs vegar
á Suðurlandi – þær eru allar löngu
horfnar – og önnur listaverk hans.
Umfjöllunin er ríkulega prýdd vönd-
uðum ljósmyndum af mörgum þeim
sköpunarverkum sem eignuð eru eða
eru fyrir víst eftir Ámunda. Þá er for-
vitnilegt að sjá kort af þeim stöðum
þar sem kirkjurnar stóðu sem hann
byggði og skapaði verk í, sem og til-
gátuteikningu sem Þorsteinn Gunn-
arsson hefur gert af einni kirkjunni.
Afraksturinn er oft athyglisverður
þegar listamenn ráðast í skapandi
heimildaverkefni af þessu tagi; vinna
með söguna og verk sem aðrir hafa
mótað, og taka á þeim á persónulegan
Um þessar mundir stenduryfir í fordyri Hallgríms-kirkju áhugaverð sýning ástórum olíumálverkum
Guðrúnar Arndísar Tryggvadóttur
myndlistarkonu. Þegar sýningin var
opnuð 1. desember síðastliðinn kom
jafnframt út bók Guðrúnar sem nefn-
ist Lífsverk, rétt eins og sýningin. Þá
var um miðjan
desember enn
fremur opnuð í
skólahúsinu í
Skálholti sýning á
30 vatnslita-
myndum eftir
Guðrúnu, sem all-
ar eru prentaðar í
bókinni. Öll þessi
verk, bókin og
myndverkin á sýningunum tveimur,
eru afrakstur leitar Guðrúnar undan-
farin ár að lífsverki forföður síns,
Ámunda Jónssonar, smiðs, listmálara
og bíldskera (1738-1805).
Í bókverkinu lukkast afar vel að
flétta saman á forvitnilegan hátt
þrenns konar þræði: Einn er um 50
ljósmyndir af öllum þekktum verkum
Ámunda, sem eru varðveitt í Þjóð-
minjasafninu og nokkrum kirkjum á
Suðurlandi; annar er vatnslitamynd-
irnar 30 en í þeim hefur Guðrún unnið
á huglægan og persónulegan hátt með
ævi og iðju Ámunda; og þriðji þráð-
urinn er textinn. Höfundar hans eru
þrír.
Guðrún skrifar sjálf inngang að
bókinni, um verkefnið í heild, og eftir-
mála. Hún á tvo aðra textakafla. Sá
fyrri fjallar um dvöl hennar sjálfrar í
Kaupmannahöfn þar sem hún fetaði í
hátt, óbundnir af köntuðum reglum
fræðasamfélags sem verður sífellt
bundnara af gerilsneyddum reglum
hins ritrýnda háskólasamfélags. Í inn-
gangi sínum segist Guðrún hafa á und-
anförnum árum unnið að verkum sem
fjalla um tímann og birtingarmyndir
hans. Og tíminn er áfram viðfangsefnið
í þessu vel lukkaða verkefni, þar sem
hún nálgast Ámunda forföður sinn á
sínum eigin forsendum sem myndlist-
armaður. „Markmiðið með myndlist-
inni sem af þessu sprettur er að öðlast
einhverskonar skilning á mannlegu
lífsferli, sjálfri mannsævinni. Hvernig
umhverfi, uppruni og reynsla móta
okkur, letja eða hvetja, og hvernig fjar-
lægðin milli okkar og Ámunda í árum
og öldum kemur í veg fyrir að við
skynjum raunverulegt virði þess sem
eitt sinn var,“ (9) skrifar hún.
Kjarni bókarinnar er frjálslegar en
þó persónulegar vatnslitamyndir Guð-
rúnar, sem eru allt frá því að vera
raunsæislegar myndskreytingar yfir í
hálf abstrakt og kosmískar útleggingar
um kirkjur smiðsins og myndverk
hans. Þegar upplýsandi texti Arndísar
og myndirnar af verkum Ámunda
leggjast við myndrænar og skrifaðar
hugleiðingar Guðrúnar, í listagóðri
hönnun Ámunda Sigurðssonar – sem
vitaskuld er líka afkomandi Ámunda
smiðs – er ekki annað hægt en að hrósa
útkomunni. Þessu fyrirtaks listaverki
sem hyllir merkismann aftan úr sög-
unni sem vert er að minnast.
Lífsverk Ámunda smiðs í samtímanum
Morgunblaðið/Einar Falur
Listakonan Guðrún A. Tryggvadóttir á sýningu sinni í Hallgrímskirkju. Vatnslitamyndirnar eru sýndar í Skálholti.
Myndlist og fræði
Lífsverk – Þrettán kirkjur Ámunda
Jónssonar bbbbm
Hugleiðingar Guðrúnar Arndísar
Tryggvadóttur um lífsverk Ámunda
Jónssonar og tímann ásamt rann-
sóknum Arndísar S. Árnadóttur og Sól-
veigar Jónsdóttur um sama viðfang.
Listrými 2019. Kilja í stóru broti, ríku-
lega prýdd myndum, 139 bls.
EINAR FALUR
INGÓLFSSON
BÆKUR
Vatnslitir „Ámundi þjónustumaður í Sívalaturni 1769.“ Ein mynda Guðrúnar.