Morgunblaðið - 04.01.2020, Síða 45

Morgunblaðið - 04.01.2020, Síða 45
MENNING 45 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 2020 Hugsum áður en við hendum! www.gamafelagid.is 577 5757 „Roða slær á ránardætur“ Ljósmynd/Ingibjörg Fríða Helgadóttir og Kristín Anna Valtýsdætur), klassík/nútímatónlist (Anna S. Þor- valdsdóttir, Umbra), tilrauna- kenndu rappi (Reykjavíkurdætur, Countess Malaise), kvikmynda- tónlist (Hildur Guðnadóttir) og svo má lengi telja. Það er þá eins og ýmis uppgjör og listar séu farnir að jafnast meira út. Þannig skipuðu konur meirihluta nýlegs Kraums- lista og fjöldi þeirra í Músíktilraun- um verður sífellt meiri. Umfjöllunarefnið hér, hljóm- sveitin Hlökk, er gott dæmi um þessa gerjun og hlaut plata hennar Hulduljóð sjálf Kraumsverðlaunin síðasta desember. Ingibjörg Ýr Skarphéðinsdóttir, Lilja María Ás- mundsdóttir og Ragnheiður Erla Björnsdóttir skipa sveitina sem var stofnuð árið 2015. Pistilritari nýtti sér nútímatækni til að afla almenni- legra upplýsinga og sló á þráðinn til sveitarinnar, í gegnum fésbók- arsetur hennar. Ragnheiður svar- aði erindinu og tók svo að sér að stefna hinum tveimur meðlimunum saman í spjall sem fór fram netleið- is, heimshluta á milli. Spurðar um tildrög sveitarinnar segjast þær hafa verið að læra saman í Listahá- skólanum og Hlökk hafi verið leið til þess að slappa af og hafa gaman af sköpuninni. „Við tókum allar að okkur hlutverk sem tengdust ekki aðalnámsgreininni okkar (Ragn- heiður og Ingibjörg lærðu tón- smíðar, en í Hlökk söng Ragnheið- ur og Ingibjörg spilaði á píanó. Lilja var að læra á píanó en spilaði í Hlökk á fiðlu). Til að byrja með vor- um við að nýta okkur íslensk þjóð- lög, en með tímanum varð hljóð- heimurinn tilraunakenndari.“ Hlökk hefur einmitt verið að þróast upp í listahóp sem vinnur þvert á miðla; tónlist, hið ritaða orð, sjónlist o.s.frv., þar sem þær skoða „hvernig hægt er að miðla tónlist á breiðari máta“. Hulduhljóð, sem kom út á veg- um Smekkleysu á síðasta ári, varð til sumarið 2017. Ingibjörg samdi það upphaflega fyrir Lilju Maríu og sjálfa sig til flutnings á hátíðinni Sælugaukur í Skálholti. „Ákveðið var að gefa verkið út á plötu og þannig þróaðist það eins og það er í dag,“ segja þær. „Við bættust ljóð Ragnheiðar og til varð myndræn plata sem byggðist á ljósum Huldu, sem er hljóð- og ljósskúlptúr Lilju Maríu. Einnig lékum við okkur með að taka upp spuna og hljóð ofan á upprunalega verkið.“ Spjallið leið- ist á endanum út í vangaveltur höf- undar í upphafi. Er hann að fara fram úr sér þar? Of rómantískur? Eða er eitthvað að gerast? „Já, við höldum að þetta sé að gerast hægt og rólega,“ svara þær. „Eins og hlutir séu að þokast í rétt- mætari áttir. Því fleiri fyrirmyndir sem eru sýnilegar, því auðveldara er fyrir stelpur að sjá að þetta sé möguleiki fyrir þær.“ Hulduljóð verður flutt sem tón- leikainnsetning á Myrkum músík- dögum. Platan verður leikin í heild sinni nokkrum sinnum ásamt fimm tónlistarmönnum og tveimur döns- urum sem spinna ofan á plötuna. »Hlökk hefur ein-mitt verið að þróast upp í listahóp sem vinn- ur þvert á miðla; tónlist, hið ritaða orð, sjónlist o.s.frv. Hulduljóð er ný fram- sækin plata eftir tón- listarhópinn Hlökk en hún var hiklaust með merkilegri útgáfum síð- asta tónlistarárs. Töff Ingibjörg Ýr Skarphéðinsdóttir, Lilja María Ásmundsdóttir og Ragn- heiður Erla Björnsdóttir skipa Hlökk. TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Ámeðan listi Rolling Stone yf-ir 100 bestu trommuleikaraallra tíma er eingöngu skip- aður karlmönnum (eða svo gott sem) neyðumst við til að rýna í það óréttlæti sem óneitanlega blasir við okkur. Kvenmenn eru aðeins farnir að kíkja inn á þessa lista en er það vegna þess að þær urðu skyndilega „betri“ eða er fólk (les: karlmenn) að einhverju leyti farið að stíga frá og skoða þessa hluti upp á nýtt? Í öllu falli er skýrt að möguleikar kvenna til að ná fram sjálfsögðum árangri innan tón- listargeirans eru samfélagslega skilyrtir og skil- greindir. Þeim í óhag. Svo hefur verið um aldir sem þýðir að því miður mun taka langan tíma að vinda ofan af ruglinu. Eitt af tólunum sem hægt er að brúka er einfaldlega að veita þess- um hlutum athygli, setja þá í ljós með því að tala um þá, hvort heldur með pælingum eins og ég birti hér í innganginum eða þá með „hefð- bundinni“ umfjöllun eins og þeirri sem hér fer. Hunsun er öflugt kúg- unartæki en viðurkenning á að hlutir séu yfirhöfuð til færir mál strax í eðlilegri farveg. Þegar maður horfir yfir sviðið hér á landi eru glettilega margir listamenn sem auka manni bjart- sýni. Íslenskar konur eru í fremstu víglínu þegar kemur að tilrauna- kenndu poppi/rokki (Björk, Gyða Kvikmyndin Cats, þ.e. Kettir, sem byggð er á samnefndum söngleik, er á góðri leið með að komast í kvikmyndasögubækurnar hvað varðar litla aðsókn og neikvæða gagnrýni. Universal-kvikmyndaverið fram- leiddi myndina og segir á vef dag- blaðsins Guardian að framleiðslu- kostnaður við hana hafi verið um 95 milljónir bandaríkjadala, jafnvirði um 11,8 milljarða króna. Myndin skilaði aðeins 6,6 milljónum dala í miðasölu yfir frumsýningarhelgi og samkvæmt dagblaðinu LA Times er talið að Universal muni tapa að minnsta kosti 70 milljónum dala á myndinni, um 8,6 milljörðum króna. Kvikmyndavefurinn Deadline tel- ur tapið ögn hærra, um 71 milljón dala og Variety er enn svartsýnna og segir tapið allt að 100 milljónir dala, sem er hærri upphæð en meintur framleiðslukostnaður. Gangi þessar spár eftir verður myndin ofarlega, ef ekki efst, á lista yfir þær sem ollu framleiðendum sínum mestu tapi á nýliðnu ári. Tímaritið Forbes fjallar einnig um ógöngur Katta á vef sínum og segir myndina hafa skilað 18 millj- ónum dala fyrstu tíu daga í sýn- ingum, yfir jólahátíðina. Kvikmynd- in er með meðaltalseinkunnina 32 af 100 á vefnum Metacritic og 19 af 100 á vefnum Rotten Tomatoes. Í kattarlíki Hin virta leikkona Judi Dench í kattargervi sínu í kvikmyndinni Cats. Myndin hefur hlotið afleita dóma á heildina litið og litla aðsókn. Kettir í frjálsu falli

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.