Morgunblaðið - 04.01.2020, Síða 48

Morgunblaðið - 04.01.2020, Síða 48
Bubbi Morthens heldur tónleika í kvöld kl. 20.30 í menningarhúsinu Hofi á Akureyri og eru þeir liður í árvissri Þorláksmessutónleikaröð hans. Bubbi verður á kunnuglegum slóðum líkt og undanfarin ár, að því er fram kemur á miðasöluvefnum tix.is, og mun flytja úrval laga sinna og spjalla við gesti. Bubbi heldur tónleika í Hofi á Akureyri í kvöld LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 4. DAGUR ÁRSINS 2020 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í lausasölu 1.150 kr. Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr. PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr. Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is „Þetta er búið að vera flott. Við er- um að verða tilbúnir og þetta lítur vel út. Allir eru í góðu standi og við erum spenntir,“ segir Sigvaldi Björn Guðjónsson, landsliðsmaður í handbolta. Íslenska landsliðið mætir Þýskalandi í vináttulandsleik í dag og undirbýr sig af krafti fyrir EM en Ísland mætir þar Danmörku í Malmö næsta laugardag. »41 Allir spenntir og í góðu standi fyrir EM Boðið verður upp á leiðsögn á morgun, sunnudag, kl. 14 um yfir- litssýningu Hafnarborgar á verkum Guðjóns Samúelssonar, húsameist- ara ríkisins á árunum 1920-1950. Hana veitir Ágústa Kristófersdóttir, forstöðumaður Hafnarborgar og annar tveggja sýningarstjóra. Sýn- ingin er sett upp í tilefni af því að öld er liðin frá því Guðjón lauk há- skólaprófi í byggingarlist, fyrstur Íslendinga, árið 1919 og var skipaður húsa- meistari rík- isins ári síðar. Ágústa vann sýninguna með Pétri H. Ár- mannssyni. Leiðsögn um sýningu á verkum Guðjóns ÍÞRÓTTIR MENNING Las Palmas þegar fjölskyldan bjó á Gran Canaria og síðan með meist- araflokki Fram. Eftir fyrsta leikinn 2015 meiddist hann illa og var frá í um ár, en hefur síðan spilað nokkra leiki í sumarfríinu frá náminu, alls 37 leiki í deild og þrjá í bikar 2015-2019. Sigurður segir að flestir samherj- arnir í Georgetown stefni á atvinnu- mennsku en námið hafi forgang hjá sér. Hann hafi því ekki verið fasta- maður í liðinu, en engu að síður æft eins og aðrir og tekið þátt í nokkrum leikjum. „Mér hefur gengið vel í skól- anum og gleðin var því tvöföld, en gangi allt eftir útskrifast ég eftir tæpt ár.“ Margir íslenskir knattspyrnu- menn og -konur hafa leikið með há- skólaliðum vestra en Sigurður er í fá- mennum hópi meistara. „Ég legg alla áherslu á námið,“ segir hann. „Mér hefur verið boðið að æfa áfram með liðinu og ég sé til með það.“ Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Georgetown og Virginia léku til úr- slita í efstu deild bandarísku há- skólakeppninnar í fótbolta (NCAA) skömmu fyrir jól og sigraði George- town eftir vítaspyrnukeppni. Sig- urður Þráinn Geirsson mastersnemi var leikmaður Georgetown á tíma- bilinu og fagnaði því fyrsta meist- aratitli skólans á þessu sviði. „Þetta var magnaður endir á fót- boltaferli mínum í Bandaríkjunum og langt umfram væntingar,“ segir hann. Úrslitaleikurinn var í beinni út- sendingu hjá ESPNU. Hann fór fram í Cary í Norður-Karólínuríki og Georgetown kom, sá og sigraði, en lið skólans hafði einu sinni áður leikið til úrslita. „Þetta er draumur svo margra,“ segir Sigurður um titilinn. Hann segir að þjálfari liðsins hafi sett sér þetta markmið og unnið að því í áratug. Allir sem hlut eigi að máli hafi lagt mikið á sig og fórnað miklu til að ná þessum árangri. Álag- ið sé svipað og hjá bestu liðum Ís- lands og ánægjulegt sé að það skili titli. Með námsbækurnar á hnjánum „Tímabilið var hreint út sagt ævin- týri,“ heldur Sigurður áfram. Hann útskrifaðist með BA-gráðu í stjórn- málafræði frá háskólanum í New Hampshire, þar sem hann lék með skólaliðinu í tvö ár og var fyrirliði þess í fyrra. Hann ákvað síðan að fara í framhaldsnám í Georgetown og segir það mjög krefjandi. „Fótbolta- tímabilið okkar hefði getað endað fyrir tveimur mánuðum og þá hefði verið nægur tími til þess að einbeita sér að náminu, en í miðjum loka- prófum vorum við í burtu í sex daga. Í stað þess að einbeita okkur að stærstu stundinni í boltanum vorum við með námsbækurnar og lærðum í rútunni á milli staða. Þetta var mjög súrrealískt.“ Meiðsl hafa sett strik í reikninginn hjá Sigurði. Hann þótti mjög efnileg- ur í yngri flokkum Fram, lék með Tvöfaldur fögnuður hjá Sigurði Þráni  Meistari í háskólakeppninni og gengur vel í náminu Ljósmynd/John Picker, Georgetown Voice Gleði Sigurður Þráinn Geirsson fagnar meistaratitli Georgetown.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.