Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.01.2020, Qupperneq 10
Ég sá fólk út um gluggann og áttaði mig strax áþví að eitthvað mikið var á seyði. Ég dreifmig því út og var þá sagt að snjóflóð hefði
fallið og að ung stúlka væri grafin undir því á heim-
ili sínu í götunni,“ segir Sýrlendingurinn Tojan Al
Nashi, sem býr ásamt eiginkonu sinni, Ruaa Al
Bdiwi, og þremur dætrum við Ólafstún á Flateyri.
Tojan tók þátt í að grafa Ölmu Sóleyju Erics-
dóttur Wolf upp úr flóðinu. „Ég sá blóð og óttaðist
það versta. Síðan heyrðum við stúlkuna gráta og
kalla og það gaf okkur von. Það tók okkur svona
fjörutíu mínútur að ná henni upp og það gleður mig
mjög að hafa getað orðið að liði. Hún getur ekki
hafa haft mikið súrefni þarna undir öllum snjónum
og það er ótrúlegt að hún hafi lifað þetta af. Hún var
bæði köld og hrædd. Ég þakka Guði fyrir að allt fór
vel,“ bætir Tojan við á prýðilegri íslensku en hann
hefur búið hér á landi í tvö ár.
Hann segir eiginkonu sinni og dætrum að vonum
hafa brugðið verulega. „Það er sláandi að horfa á
alla eyðilegginguna sem flóðið skilur eftir sig;
bátana undir snjó og svo framvegis.“
Vill vera áfram á Íslandi
Spurður hvort hann geti hugsað sér að búa áfram
á Flateyri svarar Tojan: „Ég veit það ekki; við höf-
um einfaldlega ekki haft tíma til að velta því fyrir
okkur. Ég er smiður og vinn á Ísafirði og mögulega
reynum við að flytja þangað. Annars hefur okkur
liðið mjög vel á Flateyri; hér býr yndislegt fólk sem
hefur tekið okkur opnum örmum og við höfum haft
nóg að gera.“
Hann þagnar um stund.
„Við yfirgáfum Sýrland út af stríðinu og töldum
okkur vera örugg hér á Íslandi,“ heldur hann svo
áfram. „Auðvitað vekur svona lagað spurningar en
við stefnum ótrauð á að búa áfram á Íslandi. Hér
líður okkur vel.“
Stund milli stríða,
björgunarsveitar-
menn súpa kaffi á
Flateyri snemma á
föstudagsmorguninn.
Úr stríðinu
í snjóflóðið
Sýrlendingurinn Tojan Al Nashi tók þátt í
að grafa Ölmu Sóleyju upp úr snjóflóðinu
á Flateyri. Hann flúði stríðið heima fyrir
og taldi sig öruggan á Íslandi.
Myndir: Ragnar Axelsson rax@mbl.is
Texti: Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Morgunblaðið/RAX
SNJÓFLÓÐIN Á VESTFJÖRÐUM
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.1. 2020
Dolorin
Hita- og verkjastillandi paracetamól
Á HAGSTÆÐUVERÐI!
Reykjavíkurvegur 62 | Sími 527 0640 | 220 Hafnarfjörður | www.wh.is
Lesiðvandlegaupplýsingarnaráumbúðumogfylgiseðli
fyrir notkun lyfsins.
Leitið til lækniseða lyfjafræðingsséþörfá frekari
upplýsingumumáhættuogaukaverkanir.
Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is
Þú færð
Dolorin í næsta
apóteki
Dolorin500mg
paracetamól töflur -
20stkog30stk