Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.01.2020, Side 17
þegar verið varið til þessara verkefna. Síðustu at-
burðir á Flateyri hafa í senn sýnt að vel hefur tekist
til þar í öllum meginatriðum, en þetta mikla snjóflóð
sýnir um leið alvarlegan veikleika leiðigarðanna sem
nauðsynlegt er að taka á.
Atburðirnir hafa svo sannarlega áréttað að það er
fjarri því að unnið sé til einskis þótt við ofurefli
vetrarríkis, snjósöfnunar og vindálags sé að etja.
Eftirlit, aðvörunarkerfi og velþjálfað lið sérfræðinga
á þessu sviði geta ásamt öflugum varnarvirkjum, þar
sem þeim má koma við, treyst öryggi byggða til mik-
illa muna, þótt óvarlegt væri að fullyrða að þar geti
ekkert út af borið.
Lofað og efnt
Það er þekktur veruleiki að flest þeirra loforða sem
stjórnmálamenn gefa væru í mörgum tilvikum betur
óefnd en efnd væri aðeins horft til pyngju borgar-
anna. Auðvitað gildir það ekki um loforð um lækk-
anir á sköttum og gjöldum, enda eru slík loforð orðin
verðmætt fágæti, eins og einn gamall frímerkja-
safnari orðaði það forðum tíð.
Og loforð ríkisstjórnarinnar sem sat þegar ósköpin
fyrir vestan skullu á lutu þeim lögmálum að lands-
menn hafa staðið undir kostnaðinum við efndirnar.
Samkvæmt lögum um varnirnar voru megintekj-
urnar tengdar sérstöku álagi við innheimtu á bruna-
tryggingum fasteigna. Það gefur augaleið að megin-
þungi þeirrar innheimtu lenti á þeim eigendum
fasteigna sem áttu ekkert undir persónulega í þess-
ari miklu aðgerð og þar sem snjóflóðahætta var eng-
in. En þjóðin var ein og söm í þessum efnum og var
viðbótarálögum tekið betur en mörgum öðrum, sem
menn óttast að aldrei muni linna, þótt verkefninu
ljúki, og hafa nokkra ástæðu til þess ótta.
Upplýst hefur verið að þegar hefur 21 milljarði
króna (núvirði) verið varið til þessara varnaraðgerða
og einnig að gera megi ráð fyrir að önnur eins upp-
hæð fari til framkvæmda sem ólokið er. Einnig var
upplýst að yfir 40 snjóflóð hafa fallið á varnargarða
síðan 1995 og er flóðið á Flateyri það mesta til
þessa.
Tugir snjóflóða hafa fallið síðustu daga. Flest eru
fjarri þéttbýlisstöðum en falla mörg á samgöngu-
æðarnar innanlands.
Veðurstofa og snjóflóðavarnir bjarga miklu en ár-
vekni allra þeirra sem eiga í hlut er þýðingarmikil.
Öflug varðskip og þyrlur eru mikilvægur hlekkur í
hinum sameiginlegu vörnum okkar gagnvart nátt-
úruvá. Í þeim efnum er kominn tími til að taka sig á.
Það er svo sárgrætilega rétt auglýsingaslagorðið:
Þú tryggir ekki eftir á.
Það gildir sennilega jafnt um stjórnmálamenn og
auglýsingaslagorð að of langt sé gengið að gefa sér
að aldrei sé neitt að marka þau.
Hvað segið þið til að mynda um þetta:
Hann er rogginn Mogginn.
Morgunblaðið/RAX
Þorvaldur Þórðarson, bóndi á Stað
í Súgandafirði, með hundana sína
við trönur skammt frá bænum á föstudag.
19.1. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17