Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.01.2020, Blaðsíða 18
Tískusérfræðingar úti í heimi eru hrifniraf þessari nýju línu þar sem gervi-skinn er áberandi ásamt tvíhnepptum
jakkafötum og víðari buxum. Samkvæmt línu
Armani heyra þessar þröngu jakkafatabuxur
og aðeins of litlu jakkar sögunni til. Enda
miklu herralegra og klæðilegra að vera með
góða hreyfivídd í karlmannsfötum. Það sem
vekur athygli er að Armani vill ekki hafa karla í
hefðbundnum skyrtum undir tvíhnepptu jakka-
fötunum heldur einhvers konar blússu með víð-
um rúllukraga. Ég er ekki alveg viss um að for-
stjórar, bakarar og smiðir þessa lands muni láta
sjá sig í slíkum blússum en hver veit. Það borgar
sig aldrei að útiloka neitt.
Svo er það fiskibeinamunstrið sem hefur verið dúnd-
urvinsælt hjá gullætum þessa lands síðust ár þegar
kemur að gólfefnum. Nú er það komið í fatnaðinn og
augljóst að það verður enginn maður með mönnum
nema fjárfesta í buxum með þessu fallega munstri, eða
jafnvel jakkafötum. Þeir sem kunna ekki að meta fiski-
beinamunstrið og finnst það aðeins of fullorðinslegt
geta þá klæðst köflóttum buxum eða jafnvel plastbux-
um.
Lykilatriðið er að fötin eru að víkka og miðað við
Armani eiga karlar að klæða sig mikið, fara jafnvel í
nokkur lög af fötum. Ef þú ætlar að verða eins og herr-
arnir sem sýndu fyrir Armani er mikilvægt að sýna
engin svipbrigði og brosa alls ekki því þá missir þú kúl-
ið.
Hér má sjá hvernig fötin eru að víkka. Víðar
buxur við víðan jakka er það sem koma skal.
Köflótt tví-
hneppt jakka-
föt við blússu
með víðum
kraga er það
sem Armani
ber á borð.
Arnaldur Karl
Einarsson, fyrirsæta
hjá Eskimo, sýndi
fyrir Armani á tísku-
vikunni í Mílanó.
Íslenska fyrirsætan Arnaldur Karl Einarsson var einn
af þeim sem sýndu haust- og vetrarlínu Armani 2020/21
í Mílanó í vikunni. Arnaldur er 22 ára og á framtíðina
fyrir sér í faginu. Yfirskrift sýningar Armani þetta
árið er sjálfbærni og endurvinnsla.
Marta María mm@mbl.is
Arnaldur sýndi
fyrir Armani
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.1. 2020
LÍFSSTÍLL