Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.01.2020, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.1. 2020
LESBÓK
SÉRÞRIF
og almenn ræsting
– heildarlausnir
Hafðu samband og við gerum
fyrir þig þarfagreiningu og
tilboð í þjónustu án allra
skuldbindinga.
Kleppsmýrarvegur 8 | 104 Reykjavík | 581 4000 | solarehf.is | solarehf@solarehf.is
VESEN Leikarinn og handritshöfundurinn Andrew Hunt benti á
það á Twitter á dögunum að Brad Pitt væri ekki á réttri leið ætlaði
hann sér að ganga í augun á sveitasöngkonunni Shaniu Twain og
vísaði þar í kvikmyndina Ad Astra, þar sem Pitt leikur
geimflaugavísindamann sem á bíl. Eins og margir
muna þá lætur söngkonan þess getið í lagi sínu That
Don’t Impress Me Much frá árinu 1997 að slíkt heilli
hana alls ekki upp úr skónum. Ekki heldur menn sem
haldi að þeir séu Elvis en í framhaldinu var bent á að
Pitt hefði talað fyrir ofurhetjuna Mega Man í teikni-
myndinni Megamind en sá ágæti kappi er byggður
á Elvis Presley. Ekki virkar betur fyrir Pitt að
vera hann sjálfur en í laginu tekur Twain skýrt
fram að það heilli hana ekki sérstaklega.
Heillar ekki Twain
Ætli Glóburinn
heilli Twain?
AFP
SNIÐGANGA Margir hafa móðgast fyrir
hönd bandarísku leikkonunnar Jennifer Lop-
ez í vikunni fyrir þær sakir að hún er ekki til-
nefnd til Óskarsverðlauna fyrir leik sinn í
kvikmyndinni Hustlers. Einn þeirra er Adam
White, blaðamaður breska blaðsins The In-
dependent. „25 ára ferill hennar í kvikmynd-
um hefur oftar en ekki verið talaður niður ef
ekki hreinlega hafður að háði og spotti, þrátt
fyrir tálmana sem hún hefur stöðugt brölt yf-
ir á leiðinni. Töfrandi frammistaða hennar í
Hustlers ber mikilvægi hennar í Hollywood
fagurt vitni, að ekki sé talað um hæfileikana
sem hafa haldið henni þar,“ skrifar hann.
Móðgaður fyrir hönd Jennifer Lopez
Lopez á ekki upp á pallborðið hjá Óskari.
AFP
Breski leikarinn Brian Blessed.
90% karla
leiðinleg
FYRIRMYNDIR „Allar mínar
hetjur eru konur. Gegnum tíðina
hafa 90% karla hér um bil drepið
mig úr leiðindum. Konur hafa
kennt mér allt sem ég kann,“ segir
breski leikarinn Brian Blessed í eld-
hressu samtali við breska blaðið
The Guardian. Blessed hefur
löngum þótt hrjúfur, alltént á yf-
irborðinu, en upplýsir í samtalinu
að hann eigi sér viðkvæma og fem-
iníska hlið. Blessed, sem er 83 ára,
hefur unnið mikið með Kenneth
Branagh en kveðst í samtalinu vona
að því samstarfi sé lokið. „Vinátta
okkar er miklu mikilvægari en að
vera í einhverjum kvikmyndum,
þannig að við sömdum um að hann
leikstýrði mér ekki oftar.“
Það hefur ekki farið framhjánokkrum manni sem fylgsthefur með rokkskotnum fjöl-
miðlum og rokkurum á samfélags-
miðlum, ekki síst trymblum, undan-
farna viku að Neil Peart, trommari
Rush, er mörgum harmdauði, en
hann féll frá 7. janúar síðastliðinn 67
ára að aldri eftir langa og stranga
baráttu við heilaæxli. Í yfirlýsingu
sem félagar hans í Rush, gítarleik-
arinn Alex Lifeson og bassaleik-
arinn og söngvarinn Geddy Lee,
sendu frá sér eftir að hann lést kom
fram að Peart hefði greinst fyrir
hálfu fjórða ári; örfáum mánuðum
eftir að síðasta tónleikaferðalagi
Rush lauk.
Peart hélt veikindum sínum raun-
ar leyndum fyrir öllum nema nán-
ustu fjölskyldu og vinum. Í viðtali
við útvarpsstöðina SiriusXM í vik-
unni viðurkenndi aldavinur hans og
kollegi, Mike Portnoy, oftast kennd-
ur við Dream Theater, að honum
hefði verið kunnugt um veikindi
Pearts í um tvö ár.
„Það að ég hafi vitað af þessu um
tíma og hafi sumpart haft tækifæri
til að búa mig andlega undir hið
Neil Peart á tón-
leikum í Las Vegas í
Nevada árið 2008.
Gerði hið
ómögulega
auðvelt
Neil Peart, trommuleikari kanadísku rokksveitar-
innar Rush, lést fyrir rúmri viku. Fjölmargir hafa
minnst hans sem mikils öðlings og eins fremsta
trymbils sem rokkið hefur alið af sér.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Alex Lifeson, Neil Peart og Geddy Lee í Nokia-leikhúsinu í Los Angeles þegar
hljómsveit þeirra, Rush, var limuð inn í Frægðarhöll rokksins árið 2013.
AFP
Neil Peart er almennt álitinn einn
fremsti rokktrymbill sögunnar; þurfi
menn vitnanna við má vísa í val álits-
gjafa tímaritsins Rolling Stone um
árið, þar sem hann var í fjórða sæti á
eftir John Bonham úr Led Zeppelin,
Keith Moon úr The Who og Ginger
Baker úr Cream. Þeir eru nú allir
látnir.
Peart varð fyrir miklu áfalli árið
1997 þegar einkadóttir hans, Selena
Taylor, fórst í bílslysi í Kanada. Að-
eins tíu mánuðum síðar missti hann konuna sína úr krabbameini og
að einhverju leyti „hjartasorg“, eins og Peart orðaði það síðar.
Eftir þetta tók Peart sér langt frí frá tónlist til að freista þess að
jafna sig og ná áttum eftir áföllin sem á honum dundu. Hann sneri
þó aftur til liðs við Rush árið 2001 en lagði kjuðana endanlega á hill-
una árið 2015 eftir langvarandi glímu við vöðvabólgu og axlar-
meiðsli. Skömmu síðar greindist hann með krabbamein.
Missti eiginkonu og dóttur
John Bonham þykir besti
rokktrymbill sögunnar.