Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.01.2020, Qupperneq 29
óhjákvæmilega [andlát Pearts]
gerði þetta ekkert auðveldara; það
var allt loft úr mér þegar ég fékk
fréttirnar. Þetta hlýtur að hafa kom-
ið eins og þruma úr heiðskíru lofti
fyrir alla hina sem höfðu ekki hug-
mynd um veikindin,“ sagði Portnoy.
Spurður um samskipti þeirra
undir það síðasta svaraði Portnoy:
„Ég geymdi alla tölvupóstana sem
hann sendi mér og þegar ég settist
niður til að lesa þá í gærkvöldi brast
ég í grát – þetta sló mig illa og ég
hágrét meðan ég var að lesa suma af
þessum tölvupóstum.“
Í huga Portnoys var Peart einn af
þeim stóru í rokksögunni. „Mér hef-
ur ekki liðið svona síðan kannski
John Lennon, John Bonham eða
Frank Zappa [féllu frá]. Þetta hefur
þannig áhrif á mig sem aðdáanda,
rétt eins og milljónir aðdáenda Rush
um allan heim. Það sem gerir þetta
enn erfiðara er að við Neil vorum
vinir en ég þekkti hvorki Lennon,
Bonham né Zappa. Þess vegna er
þetta enn hræðilegra.“
Andar gegnum tónlistina
Lizzy Hale, söngkona málmbands-
ins Halestorm, minntist Pearts á
samfélagsmiðlum og sagði meðal
annars: „Án ógurlegra hæfileika,
tónlistarlegrar framsækni og brenn-
andi nýsköpunar þessa goðsagna-
kennda trymbils ... væri nútíma-
trommuhetjan ekki til.“
Og Hale bætti við: „Neil, það má
vera að þú hafir yfirgefið okkur í
holdlegum skilningi en goðsögnin og
þessi gullfallega sál munu ferðast
áfram með okkur; lifa og anda gegn-
um tónlistina. Hvíl í friði og krafti.“
Bill Ward, hinn upprunalegi
trommari Black Sabbath, var einnig
harmi sleginn á samfélagsmiðlum.
„Eftir stendur ævistarf sem við get-
um hrósað, spjallað um og dáðst að,
vitandi að heimurinn er betri staður
vegna sigra þinna. Allt sem þú gerð-
ir og allt sem þú skapaðir er til þess
fallið að auðga líf okkar sem eftir
stöndum og nutum ástar þinnar og
ástríðu. Ég er ekki í vafa um að við
erum betri manneskjur fyrir vikið.“
Nancy Wilson, gítarleikari Heart,
harmaði dauða Pearts á Twitter.
„Svakalegir hæfileikar og djúpstæð
áhrif á þróun rokksins. Hann var
göldrum líkur hornsteinn í Rush-
hofinu. Rush er og verður tímalaus.“
Sebastian Bach, fyrrverandi
söngvari Skid Row, hlóð í mynd-
band á YouTube til að votta Peart
virðingu sína. „Neil Peart ... takk
fyrir að láta hið ómögulega virka
auðvelt. Takk fyrir að sýna okkur öll
tækifærin sem tónlistin felur í sér.
Takk fyrir að vera svona mik-
ilvægur þáttur í lífi okkar allra. Mér
líður í raun og sann eins og þú hafir
tilheyrt fjölskyldunni. Tónlist þín
mun lifa um aldur og ævi í hjörtum
okkar.“
Todd Sucherman, trommari Styx,
segir á samfélagsmiðlum að Peart
hafi haft einstakan stíl við settið.
Hann beinir líka sjónum að texta-
höfundinum Peart og segir hann
hafa haft óvenju sterka rödd, en Pe-
art var helsti textahöfundur Rush
gegnum tíðina. Hann sótti mikið í
heimsbókmenntirnar við textagerð
sína, vísindaskáldskap, goðafræði og
heimspeki, svo fátt eitt sé nefnt, en
það er ugglaust frekar sjaldgæft að
trommuleikarar séu helstu texta-
skáld rokkhljómsveita.
Krafðist aldrei virðingar
Scott Gorham, gítarleikari Thin
Lizzy, gerði auðmýktina að umtals-
efni í pistli sínum á samfélags-
miðlum. „Neil krafðist aldrei virð-
ingar; hún streymdi bara áreynslu-
laust fram frá okkur öllum, tón-
listarsamfélaginu og aðdáendunum.
Hvíl í friði, Neil. Þú ert og verður
ungum trymblum innblástur og við
þig verður áfram miðað.“
Lars Ulrich, trommari Metallica,
þakkaði Peart fyrir að veita sér inn-
blástur og holl ráð, sérstaklega þeg-
ar hann var að byrja í bransanum.
„Takk fyrir að nenna að tala við
ungan og grænan danskan tromm-
ara um upptökur, búnað og mögu-
leikana sem voru fyrir hendi ... Takk
fyrir allt sem þú gerðir fyrir tromm-
ara úti um allt með ástríðu þinni,
nálgun, kröfum og ósvikinni tryggð
gagnvart hljóðfærinu.“
Vel fer á því að ljúka þessari um-
fjöllun um Neil Peart á orðum Just-
ins Trudeaus, forsætisráðherra
Kanada: „Við höfum misst goð-
sögn,“ tísti hann. „En áhrif hans og
arfleifð munu lifa áfram í hjörtum
tónelskra í Kanada og úti um heim
allan. Hvíl í friði, Neil Peart.“
AFP
19.1. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 ■ Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 ■ Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 ■ alnabaer.is
alnabaer.is
Úrval af gluggatjaldaefnum, þykk, þunn,
blúndur, kappar og allt þar á milli.
Við erum sérhæfð í gluggatjöldum
GLUGGATJÖLD
SJÓNVARP Von er á framhaldi
bresku dramaþáttanna Save Me,
sem RÚV sýndi í fyrra, á árinu og
kallast þeir einfaldlega Save Me
Too. Lennie James, sem einnig
skrifar handritið, Suranne Jones og
Stephen Graham eru öll áfram
með, auk þess sem Lesley Manville
slæst í hópinn. Aðalsöguhetjan,
Nelly, á enn undir högg að sækja
meðan hann heldur áfram að leita
að dóttur sinni, sem hvarf í upphafi
fyrstu seríunnar. Koma nýjar upp-
lýsingar nú fram?
Finnst dóttirin núna?
Lesley Manville leikur í Save Me Too.
AFP
BÓKSALA 8.-14. JANÚAR
Listinn er tekinn saman af Eymundsson
1 Fórnarlamb 2117 Jussi Adler Olsen
2 Ketóflex 3-3-1 Þorbjörg Hafsteinsdóttir
3 Hin konan G. Hendricks/S. Pekkanen
4 Almanak Háskóla Ísl. 2020 Þorsteinn/Gunnlaugur/Jón Árni
5 Ný tölfræði f. framhaldssk. Björn Einar Árnason
6 Complete Persepolis Marjanne Satrapi
7 Þögn Yrsa Sigurðardóttir
8 Tungutak – málsaga Ásdís/Elínborg/Sólveig
9 Svínshöfuð kilja Bergþóra Snæbjörnsdóttir
10 800 fastan Michael Mosley
1
Vigdís – bókin um fyrsta
konuforsetann
Rán Flygenring
2
Orri óstöðvandi
– hefnd glæponanna
Bjarni Fritzson
3 Dagbók Kidda klaufa 11 Jeff Kinney
4
Harry Potter og visku-
steinninn, myndskreytt
J.K. Rowling
5 Kennarinn sem hvarf Bergrún Íris Sævarsdóttir
6 Orri óstöðvandi Bjarni Fritzson
7
Ofur Kalli og dularfulla
ömmuhvarfið
Camilla Läckberg
8 Ævintýri Lottu A. Pantermüller/ D. Kohl
9
Bold-fjölskyldan kemur
til hjálpar
Julian Clary
10
Kjarval – málarinn sem
fór sínar eigin leiðir
Margrét Tryggvadóttir
Allar bækur
Barnabækur
Mér áskotnuðust óvenjumargar
nýjar bækur í nóvember og desem-
ber og hef því þurft að hafa mig all-
an við til að grynnka á bunkanum.
Það sem ég hef lesið síðustu vikur
eru upp til hópa fínar
bækur, sumar hrein
og klár afþreying eins
og krimmarnir en
svo eru það hinar
sem maður gengur
með í hausnum
löngu eftir að lestri
lýkur. Þar vil ég sérstaklega nefna
bók Guðrúnar Evu Mínervudóttur,
Aðferðir til að lifa af, og Seltu eftir
Sölva Björn Sigurðsson. Báðar af-
skaplega ljóðrænar og fallegar sög-
ur um mannlega tilveru í öllu sínu
litrófi.
Af krimmunum
er ég búinn að lesa
Þögn eftir Yrsu og
Hvíta dauða Ragn-
ars Jónassonar en sú
bók sem kom mér
hins vegar
skemmtilegast á óvart í þessum
flokki er Stelpur sem ljúga eftir
Evu Björgu Ægisdóttur. Þar fer
rísandi stjarna á himni íslensku
glæpasögunnar.
Þegar út kemur „ný“ Ástríks-
bók fyrir jólin skiptumst við forn-
vinir og fóstbræður, ég og Skúli
Helgason, á slíkri bók og höfum
gert frá árinu 1976. Reyndar var
höggvið skarð í
þessa hefð þegar
engin Ástríksbók
kom út um
margra ára skeið.
Ástæðan líklega sú
höfundarnir Gosc-
inny og Uderzo
voru þá báðir horfnir á vit feðra
sinna. En fyrir nokkrum árum
gengu þeir aftur. „Nýjar“ Ástríks-
bækur komu á markað og hefðin
lifnaði við.
Lestrarnámskeið með
Bítlunum
Bókin á náttborðinu þessa dagana
er Um tímann og vatnið eftir
Andra Snæ og hún fer feykilega vel
af stað. Önnur sem
ég er spenntur fyrir
er Undir fána lýð-
veldisins sem er saga
byltingarmannsins
Hallgríms Hall-
grímssonar. Svo
verð ég að ná mér í bók Fram-
aranna og snillinganna Frikka Þórs
og Einars Kára, Með sigg á sálinni.
Búinn að þekkja þá báða lengi, höf-
um þjáðst saman í stúkunni svo ár-
um skiptir, og ég veit að þeir kunna
báðir að segja sögur ... og krydda.
Ein ánægjulegasta lestrarupp-
lifun mín í seinni tíð var fyrir rúmu
ári þegar ég tók fram bók sem ég
hafði átt í nær aldarfjórðung en
bara flett og gripið
niður í hér og þar.
Þetta var The
Beatles Anthology.
Þarna tók ég mér
tvo mánuði í að lús-
lesa sögu uppá-
haldshljómsveitar minnar, sagða
af þeim sjálfum, og hafði til hliðar
samnefnd þrjú albúm þar sem
mátti finna sjaldgæfar upptökur
og annað sem þeir voru að fjalla
um í bókinni. Þetta var frábærlega
skemmtilegt.
SNORRI MÁR ER AÐ LESA
Afturgenginn Ástríkur
gleður gamlan
Snorri Már Skúla-
son er deildar-
stjóri upplýsinga-
og kynningarmála
ASÍ.