Morgunblaðið - 25.03.2020, Page 1
M I Ð V I K U D A G U R 2 5. M A R S 2 0 2 0
Stofnað 1913 72. tölublað 108. árgangur
ÁNÆGJULEGT
AÐ GETA
GEFIÐ TÓNLIST
KREFJAST 2,8
MILLJARÐA
BÓTA
SAT GÆF OG
SPÖK Á
TRÖPPUNUM
VIÐSKIPTAMOGGINN BRANDUGLA Á SIGLUFIRÐI 11STÖNDUM SAMAN 12
Vegna kórónuveiru og samkomubanns er umferð á götum
Reykjavíkur nú sáralítil og aðeins einn bíl var að sjá á Miklu-
brautinni á móts við Skeifuna á tólfta tímanum í gærmorgun.
„Ástandið núna er farið að minna á sögur úr draugaborg. Það
er langt síðan nokkuð þessu líkt hefur nokkru sinni gerst,“
segir Áki Ingvarsson, leigubílstjóri hjá Hreyfli, sem starfs
síns vegna er mikið og oft á ferð um bæinn. „Ég fer ofan úr
Mosfellsbæ vestur í bæ snemma á morgnana og er korter á
leiðinni, en er fast að hálftíma við eðlilegar aðstæður. Það er
aðeins að fólk sé ferðinni um áttaleytið á morgnana, þá
væntanlega á leið til vinnu, en síðan dettur umferðin niður
aftur og yfir daginn eru fáir á ferli.“
Morgunblaðið/Eggert
„Farið að
minna á sögur
úr draugaborg“
Ljóst er að ís-
lenskt tónlistar-
fólk og þeir sem
vinna við tón-
leikahald verða
fyrir gríðar-
miklu tjóni vegna
samkomubanns
hér heima og er-
lendis. ÚTÓN
(Útflutnings-
skrifstofa ís-
lenskrar tónlistar) er að kanna
áhrifin á tónlistargeirann. Könn-
uninni lýkur nú um hádegið.
„Tónlistarfólk er að verða mjög
illa úti í þessu ástandi, sagði Sig-
tryggur Baldursson, framkvæmda-
stjóri ÚTÓN. „Það er ekki bara ver-
ið að aflýsa öllum árshátíðum og
viðburðum hér heima heldur er
einnig búið að aflýsa tónleika-
ferðalögum erlendis. Þetta veldur
gríðarmiklu tapi.“
Á þessu ári höfðu íslenskir tón-
listarmenn haldið 326 tónleika er-
lendis áður en allt fraus fast. Búið
er að aflýsa flestum tónleikum í
mars og apríl. Á meðal þeirra sem
hafa þurft að fella niður tónleika
vegna samkomubanna erlendis eru
tónlistarmennirnir Ásgeir, Une
Misère, CYBER og múm.
Sigtryggur óttast að mjög fram-
bærilegt tónlistarfólk kunni að fara
illa út úr þessu, verða fyrir tjóni og
jafnvel verða gjaldþrota. »6
Tónlistarmenn
verða fyrir miklu
fjárhagslegu tjóni
Sigtryggur
Baldursson
Þóroddur Bjarnason
Helgi Bjarnason
Gunnar Már Sigurfinnsson, forstjóri
Icelandair Cargo, segir að farþega-
flugvélar Icelandair á leið til Banda-
ríkjanna séu troðnar af vörum. „Við
erum að troða allt að tuttugu tonnum
af frakt í Boeing 767 breiðþoturnar,
og nýtum þá pláss sem annars væri
notað undir farangur fólks, enda er
mun færra fólk í vélunum en áður. Þá
erum við að ná að setja 10 tonn af
frakt í Boeing 757-vélarnar. Þetta er
óvenjuleg staða, en þetta er tvöfalt og
þrefalt magn í farþegavélum á við það
sem gerist og gengur í venjulegu
ástandi. Við höfum svo bætt reglulega
inn sérstöku fraktflugi til Boston í
Bandaríkjunum til að flytja það sem
kemst ekki í farþegakerfið.“
Spurður hvort til greina komi að
fljúga með frakt í farþegavélum án
farþega segir Gunnar að allt komi til
greina í því ástandi sem ríkir. „Þetta
er þegar byrjað í einhverjum mæli í
flutningum á Norður-Atlantshafinu,
og er í skoðun hjá öllum flugfélögum í
dag.“
Gunnar nefnir dæmi af norskum
eldislaxi. Hann sé í dag lokaður inni í
töluverðum mæli, og Norðmenn leiti
leiða til að koma laxinum á markað.
„Þeir hafa spurt okkur um lausnir í
þessum efnum, og myndu þá vilja
borga álag á flutningsverðið til að
koma vörunni á markað. Við erum að
skoða það þessa dagana, en engin
ákvörðun hefur verið tekin.“
Laxamarkaður að opnast
Teikn eru á lofti um að Kínamark-
aður sé að opnast aftur fyrir laxa-
afurðir. Markaðurinn hefur verið al-
veg lokaður frá áramótum vegna
aðgerða stjórnvalda til að stöðva
kórónuveirufaraldurinn og efnahags-
ástandsins í kjölfarið.
Sigurður Pétursson, framkvæmda-
stjóri hjá Arctic Fish, hefur þær frétt-
ir að hugsanlega hefji Kínverjar kaup
á laxi í þessari viku. „Þeir virðast vera
að vakna aftur til lífsins eftir langt
hlé. Það er gott. Ég veit ekki til þess
að pantanir hafi verið staðfestar. Svo
gæti það verið áskorun að koma lax-
inum á markaðinn,“ segir Jens Garð-
ar Helgason, framkvæmdastjóri
Laxa fiskeldis. Hærra verð hefur
fengist í Kína en á öðrum mörkuðum.
Fljúga með troðnar
þoturnar yfir hafið
Frakt í farþegavélum Kína að opnast á ný fyrir laxaafurðir
MTroða margfalt í farþegavélarnar»ViðskiptaMoggi og 10
Flutningar Tugir tonna af vörum eru fluttir með Boeing-vélunum.
Læknarnir Atli Árnason og Sig-
urður Halldórsson, sem standa
vaktina á norðausturhorninu, hvar
eru Kópasker, Raufarhöfn og Þórs-
höfn, vilja að lokað verði fyrir um-
ferð inn á svæðið á næstunni í
varnarskyni vegna kórónuveir-
unnar. Sóttvarnalæknir hafnar hug-
myndinni og telur hana ekki þjóna
tilgangi.
Í erindi sem læknarnir sendu frá
sér benda þeir á að ekkert smit hafi
enn greinst á þessu afmarkaða
svæði. Þeir hafi frá því að kórónu-
veiran fór að láta á sér kræla líka
lagt mikla áherslu á að þeir sem á
þessar slóðir komi fari í sóttkví – og
aðkomumenn sem eru við vinnu eru
aðskildir íbúum. Þetta sé nauðsyn-
legt því á svæðinu búi á svæðinu
margir áhættusjúklingar.
Lögreglustjórnin á Norðurlandi
eystra fundaði í gær um þetta mál
með sóttvarnalækni, sem telur lok-
un aðeins myndu seinka því að veir-
an bærist inn á svæðið. Lokun skili
aðeins árangri sé hún langvarandi
og að setja fólk í sóttkví hafi gefið
góða raun nú. Þá segir lögreglu-
stjóri að ekki séu nú lagaheimildir
fyrir lokun einstakra byggða. » 2
Læknar
vilja loka
Sóttvarnasvæði á
NA-horni hafnað