Morgunblaðið - 25.03.2020, Page 3
Áfram opið
þó dyrunum
sé lokað
Í ljósi aðstæðna eru viðskiptavinir vinsamlega beðnir um að nýta
sér stafrænar lausnir fyrir alla helstu bankaþjónustu. Dyrum á
útibúum bankans verður lokað, en við verðum þó til staðar fyrir
þá viðskiptavini sem þurfa þjónustu í brýnni nauðsyn.
Viðskiptavinir geta bókað tíma í símaráðgjöf á vef Íslandsbanka
en auk þess bendum við viðskiptavinum á að hægt er að nýta sér
netspjall bankans eða hafa samband í 440-4000. Forsvarsmönnum
fyrirtækja er bent á að hafa beint samband við sína tengiliði innan
bankans.
Í Íslandsbankaappinu er hægt að sinna öllum helstu
bankaviðskiptum eins og að greiða reikninga, millifæra,
sækja um lán, dreifa greiðslum og sækja PIN-númer.
Við vonumst til að geta opnað útibúin aftur eins fljótt og hægt er
en viljum með þessu vernda bæði starfsfólk og viðskiptavini í þessu
sameiginlega verkefni okkar allra.
Islandsbanki.is