Morgunblaðið - 25.03.2020, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. MARS 2020
KÓRÓNUVEIRUFARALDUR
www.aman.is
Tangarhöfða 2 • 110 Reykjavík • Sími 533 1020 • aman@aman.is
er okkar fag
Víngerð
Nýttu þér frábæra netverslun Ámunnar
www.aman.is
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Kórónuveiran breiðist nú hratt um
landið og í gær var fyrsta tilfelli
hennar á Austurlandi staðfest. Sá
sem er smitaður er ekki mikið veik-
ur. Þá fjölgaði Vestlendingum sem
eru í sóttkví í gær um 18 og eru þeir
nú samtals 281. Langflestir eru þeir
á Akranesi eða 134 talsins og 62 í
Borgarnesi. Alls hafa fimm á Vestur-
landi greinst með sjálfa veiruna,
tveir í Stykkishólmi og þrír í Borgar-
firði.
Fámennt samfélag
og mikil nánd
Í Húnaþingi vestra, þar sem kór-
ónuveiran hefur verið sérstaklega
aðsópsmikil voru 289 manns í sóttkví
í gær og 14 hafa greinst veikir. Þá er
beðið útkomu rannsókna á sýnum úr
alls 35 manns. „Hér í Húnaþingi
vestra búa um 1.200 manns. Þetta er
því fámennt samfélag en samskipti
fólks mikil og oft náin, til dæmis í
tengslum við starf grunnskólans.
Það er ein af hugsanlegum skýring-
um þess af hverju veiran hefur svo
mjög látið á sér kræla hér,“ segir
Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir
sveitarstjóri.
Hertar reglur samkomubanns
gengu í gildi í fyrrinótt og hafa það
megininntak að undir sama þaki
mega ekki vera fleiri en 20 manns,
fjarlægð milli fólks a.m.k. tveir metr-
ar og gott aðgengi sé að handþvotti
og spritti. Víðir Reynisson yfirlög-
regluþjónn hjá ríkislögreglustjóra
sagði á blaðamannafundi í gær að nú
virkaði ekkert í samfélaginu lengur
eins og var – og mikilvægt væri að
fólk fylgdi reglunum. Nokkuð virtist,
samkvæmt tillkynningum sem lög-
reglu hefðu borist, að fólk áttaði sig
ekki á alvarleika mála. Þá hefðu
margir óskað eftir undanþágum frá
banninu. Viðurlög við brotum á því
kæmu fljótlega og væri nú beðið
upplýsinga þar um frá ríkissaksókn-
ara.
Undanþága frá mannfjöldatak-
mörkunum í samkomubanni gildir í
matvöruverslunum, að teknu tilliti til
fermetrafjölda og að tveggja metra
reglan sé virt. Þannig mega til dæm-
is 100 viðskiptavinir vera inni í
nokkrum af stærri verslunum Krón-
unnar og 150 í Lindum í Kópavogi.
Þurfa fleiri pinna
Eins og fram hefur komið hefur
hörgull á sýnatökupinnum verið þess
valdandi að ekki hefur verið hægt að
taka sýni úr öllum sem þyrfti og vilja
með tilliti til hugsanlegs kóróna-
smits. Landspítalinn á hins vegar
von á pinnum bráðlega og einnig er
verið að framleiða slíka hjá Össuri.
Nú er að fara yfir hvort pinnar þess-
ir standist gæði og kröfur frá Össuri,
en í pakkanum yrðu alls 20 þúsund
stykki. Sem sakir standa eru 2.000
sýnatökupinnar til á landinu, sem
þykir vera hvergi nærri nóg.
Fjöldi eftir landshlutum
Óstaðsett 7 760
Útlönd 0 3
Austurland 1 117
Höfuðborgarsvæði 509 4.740
Suðurnes 30 420
Norðurland vestra 14 396
Norðurland eystra 8 356
Suðurland 74 963
Vestfirðir 1 201
Vesturland 4 249
Smit
Sóttkví
Uppruni smits
Innanlands Erlendis
Óþekktur
42%26%
32%
10.658 sýni hafa verið tekin
56 einstaklingar hafa náð bata
1.594 hafa lokið sóttkví
13 eru á sjúkrahúsi
2 einstaklingar eru látnir
2 á gjör-gæslu
597 manns eru í einangrun
Fjöldi staðfestra smita frá 28. febrúar
28.2.29.2. 1.3. 2.3. 3.3. 4.3. 5.3. 6.3. 7.3. 8.3. 9.3. 10.3. 11.3. 12.3 13.3. 14.3. 15.3. 16.3. 17.3. 18.3. 19.3.20.3.21.3.22.3.23.3.
Upplýsingar eru fengnar af
covid.is og landspitali.is
648 smit voru staðfest
í gær kl. 13.00
8.205 hafa verið settir í sóttkví
600
500
400
300
200
100
648
Útbreiðslan um landið er hröð
Kórónuveiran er komin á Austurland 289 eru í sóttkví í Húnaþingi vestra Stífar mannfjöldatak-
markanir en undanþágur gilda í matvörubúðum Hörgull á sýnatökupinnum en þó er von í stöðunni
Ljósmynd/Lögreglan
Daglegt Þríeykið Víðir, Þórólfur og Alma og t.h. er Óskar Reykdalsson, forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðis.
Af því fólki sem er nýgreint með
smit er 60% þess nú þegar í
sóttkví. Þetta segir Þórólfur
Guðnason sóttvarnalæknir
staðfesta að þær aðgerðir og
aðferðir gegn kórónuveirunni
sem beitt hefur verið á Íslandi
séu að virka. Reiknilíkan sér-
fræðinga sýnir að meðaltals-
fjölgun greindra hér sé áfram
ein sú minnsta í Evrópu. Því er
hvetjandi að halda áfram á
sömu braut í aðgerðum, enda
miði þær allar að því að draga
úr smitum.
Um samgöngubann segir Þór-
ólfur það ekki vera í bígerð.
Reynsla og fræði sýni að slíkt
fresti faraldri um hríð, en ef lok-
að sé milli landshluta komi veir-
an upp aftur þegar opnað verði
aftur, þá hugsanlega sem alveg
nýr faraldur.
Í dag er talið að kórónufarald-
urinn geti tekið 6-8 vikur. Nýtt
spálíkan um þróun mála verður
gefið út í dag og gert er ráð fyrir
að teymi sérfræðinga frá Land-
spítala og Háskóla Íslands sem
vinnur að þessum útreikningum
kynni spá sína á morgun.
Aðferðirnar
eru að virka
TEKUR 6 TIL 8 VIKUR
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Ég hef mestar áhyggjur af því fólki
sem býr eitt og hefur kannski ekki
marga að baki sér. Með því þurfum
við að líta sérstaklega til,“ segir Þór-
unn H. Sveinbjörnsdóttir, formaður
Landssamtaka
eldri borgara.
Vegna kórónu-
veirunnar segist
hún fylgjast með
umbjóðendum
sínum og að-
stæðum þeirra.
Reynt sé að koma
til móts við fólk
við erfiðar að-
stæður í málum
sem séu flókin úrlausnar. Sveitar-
félögin og velferðarþjónusta þeirra sé
að vinna gott starf og líta til með
eldra fólki, sem hún hvetji aðstand-
endur þess líka til að gera. Einnig sé
mikilvægt að eldra fólk viðhaldi sín-
um daglegu venjum, svo sem að fara
út í gönguferðir, og borði áfram holl-
an og næringarríkan mat.
Mikið hefur mætt á starfsfólki vel-
ferðarsviðs Reykjavíkurborgar vegna
kórónuveirunnar, en stokka þurfti
allt upp og loka til dæmis félags-
miðstöðvum eldri borgara og starfs-
aðstöðu fatlaðs fólks á skammtíma-
dvöl fyrir fötluð ungmenni. Á vel-
ferðarsviði eru 135 starfsmenn í
sóttkví og fimm í einangrun. Alls 35
notendur sem búa í íbúðakjörnum og
sambýlum eða fá þjónustu heim eru í
sóttkví og einn er í einangrun.
Regína Ásvaldsdóttir, sviðsstjóri vel-
ferðarsviðs, segir allt kapp lagt á
smitvarnir til dæmis í íbúðakjörnum
fyrir fatlaða, en mjög flókið sé að
sinna þjónustu við íbúa þar sem smit-
aðir séu. Þegar svo sé þurfi starfsfólk
að fara í sóttkví og ráða þurfi nýtt
fólk.
Velferðarsvið Reykjavíkur rekur
sautján félagsmiðstöðvar fyrir eldri
borgara og nú býðst þeim sem hafa
borðað í félagsmiðstöðvunum að fá
heimsendan mat – og þiggja 459
manns nú þá þjónustu. Loka þurfti
dagdvöl fyrir heilabilað fólk á Vita-
torgi og dagdvölinni í Þorraseli. Þessi
ráðstöfun var endurskoðuð og á Vita-
torgi er nú tekið á móti fólki sem lífs-
nauðsynlegt er að rjúfa einangrun
hjá. Þorrasel fylgir þeim eftir sem
hafa sótt dagdvölina með símtölum
og öðrum tilboðum um þjónustu og
félagsskap. Heimsóknarbann er á
hjúkrunarheimilunum Droplaugar-
stöðum og Seljahlíð.
Álag á heilbrigðiskerfið eykst jafnt
og þétt vegna ástandsins – og reynt
er að veita aðstoð sem mest í gegnum
netið. Á vefinn heilsuvera.is komu í
gær alls 805 fyrirspurnir og búið er
að setja þar upp skráningu með raf-
rænum skilríkjum varðandi sóttkvíar.
Álag á velferðarkerfið
er mikið og fer vaxandi
Eldra fólkið haldi venjum í lífi Velferðarsvið bregst við
Þórunn
Sveinbjörnsdóttir
Morgunblaðið/Ómar
Ganga Mikilvægt er að halda takti
og hreyfa sig á tímum veirunnar.
Alls eru nú um 680 komnir í bakvarðasveit heilbrigðisstétta, en á vegum
heilbrigðisyfirvalda hefur verið kallað eftir því að fólk sem liðsinni getur
veitt í krafti menntunar sinnar gefi sig fram. Nemar í hjúkrunar- og
læknisfræði hafa nú bæst í hópinn. Opnað hefur verið fyrir skráningu
þeirra og hafa þegar 37 læknanemar skráð sig og 6 nemar í hjúkrunar-
fræði, samkvæmt tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu.
Alls eru hjúkrunarfræðingarnir sem nú hafa gefið sig fram 195 talsins,
sjúkraliðarnir eru 168, læknarnir 78, alls 71 sjúkraflutningamaður hefur
stimplað sig inn og lyfjafræðingarnir eru 43. Þá hafa átján geislafræðingar
boðið fram þjónustu sína og 17 lyfjatæknar.
Bætist hratt í bakvarðasveitina