Morgunblaðið - 25.03.2020, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. MARS 2020
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Ljóst er að íslenskt tónlistarfólk og
þeir sem vinna við tónleikahald
verða fyrir gríðarmiklu tjóni vegna
samkomubanns hér heima og er-
lendis. Til þess hefur verið gripið
víða til að
stemma stigu við
útbreiðslu nýju
kórónuveirunnar
sem veldur CO-
VID-19 sjúkdóm-
inum.
ÚTÓN (Út-
flutnings-
skrifstofa ís-
lenskrar
tónlistar) er að
kanna áhrif CO-
VID-19 á tónlistargeirann. Könn-
unin er á síðunni uton.is og eru síð-
ustu forvöð að svara nú um hádegið.
Tónleikaferðum aflýst
„Tónlistarfólk er að verða mjög
illa úti í þessu ástandi,“ sagði Sig-
tryggur Baldursson, framkvæmda-
stjóri ÚTÓN. „Það er ekki bara
verið að aflýsa öllum árshátíðum og
viðburðum hér heima heldur er
einnig búið að aflýsa tónleika-
ferðalögum erlendis. Þetta veldur
gríðarmiklu tapi.“ ÚTÓN er m.a.
með umsýslu fyrir Útflutningssjóð
íslenskrar tónlistar, sem veitir bæði
ferðastyrki og markaðsstyrki. Þar
er því góð yfirsýn yfir þennan geira.
Sigtryggur sagði ómögulegt að
segja fyrir um það hvað þetta
ástand myndi vara lengi. Sumum
viðburðum hér hefði verið frestað
fram á sumar eða haust. Hvenær úr
rættist færi eftir því hvenær far-
aldrinum linnti.
Tónleikaferðir erlendis hafa verið
slegnar af. Á vefnum icelandmusic-
.is má sjá lista yfir viðburði erlendis
þar sem íslenskir listamenn koma
fram. Allt árið í fyrra voru skráðir
1.139 viðburðir eða nærri 100 á
mánuði að meðaltali. Á þessu ári
var búið að halda 326 tónleika er-
lendis áður en allt fraus fast. Búið
er að aflýsa flestum tónleikum í
mars og apríl. Fleiri en tónlistar-
menn hafa atvinnu af tónleikahaldi,
m.a. hljóðmenn, ljósamenn,
aðstoðarmenn, bílstjórar, umboðs-
menn og fleiri.
Á meðal þeirra sem hafa þurft að
aflýsa tónleikum er Ásgeir, sem var
búinn að halda 7 tónleika af 17
vestanhafs. Svo ætlaði hann til Jap-
ans, Ástralíu og Nýja-Sjálands.
Málmsveitin Une Misère var á tón-
leikaferðalagi vestanhafs og ætlaði
svo að halda áfram í Evrópu.
CYBER var með bókaða tónleika á
meginlandi Evrópu og Englandi. Þá
var hætt við tónleika múm vestan-
hafs.
„Þetta er hörð lending og mikið
af sokknum kostnaði sem fylgir
þessu. Þetta eru í rauninni lítil út-
gerðarfyrirtæki sem lenda í miklu
tapi,“ sagði Sigtryggur. Hann sagði
að menn fengju ekki útlagðan
kostnað endurgreiddan eins og
vegna rútuleigu og fleira. Sig-
tryggur áætlar að tjón greinarinnar
vegna samkomubannsins nemi
hundruðum milljóna.
Verða fyrir miklu tapi
„Við höfum ekki náð alveg utan
um þetta. Þess vegna erum við að
gera þessa könnun, til að fá ein-
hverja mynd af því sem er að ger-
ast,“ sagði Sigtryggur. Hann sagði
þennan skell vera mikið áhyggju-
efni fyrir tónlistargeirann, sem væri
áhættusamur í eðli sínu.
„Það detta margir út þegar svona
áfall dynur yfir. Margt mjög fram-
bærilegt tónlistarfólk mun ekki
geta haldið áfram. Fólk sem verður
fyrir miklu tapi og ræður hreinlega
ekki við það og verður gjaldþrota.
Það er mjög sorglegt,“ sagði Sig-
tryggur.
Tónlistargeirinn tapar gríðarmiklu
Árshátíðum og öðrum viðburðum frestað Tónleikaferðir erlendis slegnar af Útlagður kostn-
aður fæst ekki endurgreiddur í mörgum tilvikum Óttast að þessi skellur reynist mörgum erfiður
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Ásgeir Varð að hætta á stóru tónleikaferðalag vestanhafs. Svo var stefnan sett á Japan, Ástralíu og Nýja-Sjáland.
Sigtryggur
Baldursson
Morgunblaðið/Eggert
CYBER Varð að hætta við auglýsta
tónleika í Evrópulöndum.
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Útgerðarfélag Reykjavíkur hefur á
ný fest kaup á frystiskipinu Guð-
mundi í Nesi og heldur hann til
veiða innan skamms undir ein-
kennisstöfunum RE 13. Skipið var
selt til Arctic Prime Fisheries í
Grænlandi í lok árs 2018 og hefur
síðan borið nafnið Ilivileq. Mann-
skapurinn á Kleifabergi RE 70 flyst
yfir á Guðmund í Nesi, alls 52
manns í tveimur áhöfnum.
Guðmundur í Nesi var smíðaður í
Noregi árið 2000, en Útgerðarfélag
Reykjavíkur keypti skipið 2004 og
gerði út til 2018. Skipið hefur síð-
ustu daga verið í klössun hjá
Slippnum á Akureyri og er nú til-
búið til veiða. Aðeins er beðið eftir
tilskildum leyfum frá Samgöngu-
stofu, að sögn Runólfs Viðars Guð-
mundssonar, framkvæmdastjóra
ÚR.
Skipstjórar á Guðmundi í Nesi
verða Stefán Sigurðsson, sem var á
Kleifaberginu, og Ævar Jóhanns-
son, sem verið hefur með Örfirisey.
Víðir Jónsson, skipstjóri á Kleifa-
bergi, ákvað að stíga í land á
þessum tímamótum, að sögn Run-
ólfs. Kleifaberg kom inn til lönd-
unar á mánudag og segir Runólfur
aðspurður að skipinu hafi ekki verið
lagt, en framtíð þess sé til skoð-
unar. Kleifabergið var smíðað í Pól-
landi 1974 og er elsti skuttogarinn í
flotanum. Mörg undanfarin ár hefur
Kleifabergið verið með aflahæstu
skipum og á síðasta ári var afli þess
um 12.500 tonn og aflaverðmætið
yfir 3,75 milljarðar króna.
Geta gengið stoltir frá borði
Frá 1. janúar 2010 til 1. janúar
2020 er afli Kleifabergs 103.648
tonn. Næsta sambærilega skip þar
á eftir hefur fiskað 85.000 tonn, eða
18.000 tonnum minna en Kleifa-
berg. Samkvæmt upplýsingum frá
ÚR er aflaverðmæti Kleifabergs
þessi tíu ár yfir 30 milljarðar og há-
setahluturinn um 300 milljónir.
Miðað við að áhöfnin hafi fengið
40% af aflaverðmæti Kleifabergs
hefur hún greitt um 4,8 milljarða í
skatttekjur síðustu 10 ár.
„Strákarnir geta gengið stoltir
frá borði,“ segir Runólfur, fram-
kvæmdastjóri Útgerðarfélags
Reykjavíkur.
Guðmundur í
Nesi á ný í ís-
lenska flotann
Óljóst hvað gert verður við Kleifa-
bergið 46 ára og einstakt aflaskip
Morgunblaðið/Margrét Þóra Þórsdóttir
Tilbúinn Guðmundur í Nesi er á ný kominn í íslenska flotann og hefur síðustu daga verið i klössun á Akureyri.
Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson
Aflaskip Kleifabergið hefur komið með mörg tonnin og mikil verðmæti að landi síðustu áratugina.