Morgunblaðið - 25.03.2020, Page 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. MARS 2020
Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is
Amerísk heimilistæki
rafvorur.isRAFVÖRUR ehf
Þvottavélar
og þurrkarar
sem taka
10-17 kg
Fyrsta frestunin á friðartímum
Ólympíuleikunum í Tókýó 2020 formlega frestað Abe heitir því að Ólympíu-
leikar næsta árs verði „vitnisburður um sigur mannkynsins yfir kórónuveirunni“
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Japönsk stjórnvöld ákváðu í gær í
samráði við alþjóðaólympíunefndina
IOC að fresta Ólympíuleikunum
sem áttu að fara fram í Tókýó í
sumar. Verða þeir nú haldnir í síð-
asta lagi sumarið 2021. Þetta er í
fyrsta sinn sem fresta þarf leikunum
á friðartímum.
Ákvörðunin var tekin eftir að
Thomas Bach, forseti IOC, og
Shinzo Abe, forsætisráðherra
Japans, ræddust við í síma, en fyrr
um daginn höfðu bæði bresku og
bandarísku ólympíunefndirnar var-
að við því að þær myndu sniðganga
leikana ef þeir yrðu haldnir í sumar.
Áður höfðu Ástralar og Kanada-
menn lofað sniðgöngu.
Í sameiginlegri tilkynningu Abes
og Bachs sagði að ákvörðunin væri
tekin til að vernda heilsu íþrótta-
manna, sem og allra sem kæmu að
Ólympíuleikunum og alþjóðasam-
félagsins. Þá sagði að Ólympíuleik-
arnir í Tókýó gætu orðið að vonar-
neista á þessum erfiðu tímum og
ólympíueldurinn ljósið við enda
ganganna. Því hefði verið ákveðið að
eldurinn yrði áfram í Japan og að
bæði leikarnir og Ólympíuleikar
fatlaðra yrðu áfram kenndir við
Tókýó 2020, þótt þeir færu fram á
næsta ári.
Lofaði Abe því að leikarnir yrðu
með sama sniði á næsta ári og þeir
sem átti að halda í sumar, og að þeir
yrðu „vitnisburður um sigur mann-
kynsins á hinni nýju veiru“.
Mikill kostnaður
Yfirvöld í Tókýó höfðu áður sett
sig á móti frestun leikanna, en borg-
in hefur eytt um 12,6 milljörðum
bandaríkjadala í undirbúning
þeirra. Talið er að frestunin muni
bæta um sex milljörðum ofan á þá
tölu.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
borgin verður af Ólympíuleikum. Til
stóð að halda leikana 1940 í Tókýó
en þeim var frestað vegna síðari
heimsstyrjaldar og stríðsreksturs
Japana í Kína.
AFP
Vonarneisti Ólympíueldurinn var til sýnis við lestarstöðina í Fukushima í
gær, en hann verður áfram í Japan þar til Ólympíuleikarnir fara fram.
Flokkarnir á Bandaríkjaþingi færð-
ust nær samkomulagi í gær eftir að
þingmenn demókrata komu í veg
fyrir það á mánudag að hægt yrði að
greiða atkvæði um neyðarpakka
stjórnvalda handa bandarískum al-
menningi og fyrirtækjum.
Var unnið hörðum höndum að því
að ná samkomulagi og sagði Mitch
McConnell, leiðtogi repúblíkana í
öldungadeildinni, sagði í gær að
hann teldi flokkana loks vera búna
að tala sig niður á þær málamiðlanir
sem öllum gætu fallið í geð.
Markaðir á Wall Street tóku mik-
inn kipp í gær við upphaf viðskipta,
þar sem fjárfestar áttu von á því að
greint yrði frá samþykktu samkomu-
lagi um kvöldið. Þegar lokað var fyr-
ir viðskipti hafði Dow Jones-vísitalan
hækkað um 11,37%, sem er mesta
hækkun hennar frá árinu 1933.
Demókratar komu í veg fyrir upp-
haflegar tillögur stjórnvalda, sem
fela í sér aðgerðir upp á um 2.000
milljarða bandaríkjadali, þar sem
þær væru um of miðaðar að aðstoð
við fyrirtæki en ekki launafólk og
heilbrigðisstarfsfólk.
Repúblíkanar sökuðu demókrata
á móti um að reyna að tengja aðstoð-
ina við hluti sem tengdust faraldr-
inum lítt sem ekkert, svo sem fóstur-
eyðingar.
Tímabundin borgaralaun
Báðir flokkar eru þó sammála um
að senda aðstoð í formi ávísunar til
allra Bandaríkjamanna sem ekki
teljast til hátekjufólks. Gæti fjög-
urra manna fjölskylda átt von á upp-
hæð sem nemur um 3.000 banda-
ríkjadölum, eða um 420.000 kr.
Hefur sú aðgerð verið kölluð tíma-
bundin borgaralaun.
Færast nær neyðarpakka
Mesta hækkun Dow Jones frá árinu 1933 Unnið hörðum
höndum að samkomulagi flokkanna á Bandaríkjaþingi
AFP
Þinghúsið Kórónuveiran hefur haft
mikil áhrif á störf Bandaríkjaþings.
Saksóknarar í borginni Innsbruck í
Vestur-Týrólahéraði tilkynntu í
gær að þeir væru að rannsaka
hvort eigendur veitingahúss í
Ischgl hefðu gerst sekir um mögu-
lega vanrækslu við að tilkynna smit
í upphafi kórónuveirufaraldursins í
Austurríki.
Ákvörðun saksóknara um rann-
sókn var tekin eftir að þýska sjón-
varpsstöðin ZDF flutti fréttir af því
að veitingahúsið hefði ekki sagt
yfirvöldum frá því að einn starfs-
maður hans hefði greinst jákvæður
með veiruna síðla febrúarmánaðar.
Austurrísk stjórnvöld hafa orðið
fyrir mikilli gagnrýni undanfarna
daga, og þá sérstaklega héraðs-
stjórnin í Týrólahéraði, fyrir að
hafa brugðist seint og illa við
ábendingum, meðal annars frá ís-
lenskum yfirvöldum, um að líta
bæri á Ischgl sem áhættusvæði.
Hefur héraðsstjórnin lýst því yfir
að til greina komi að setja á lagg-
irnar óháða rannsóknarnefnd sem
fari yfir hvað var gert í aðdraganda
faraldursins. Meira en 4.800 manns
hafa smitast í Austurríki og 28 hafa
látist þar af völdum veirunnar.
Rannsaka
mögulega
vanrækslu
Ischgl undir
smásjá saksóknara
Teiknarinn Albert
Uderzo, sem
þekktastur er sem
annar höfunda
teiknimynda-
sagnanna um Ást-
rík gallvaska, lést
í fyrrinótt, 92 ára
að aldri. Dánar-
orsökin var
hjartaáfall, alls
ótengt kórónu-
veirunni.
Myndasögurnar um Ástrík og vin
hans Steinrík komu fyrst út árið 1959
í skopmyndablaðinu Pilote. Uderzo
teiknaði sögurnar en Rene Goscinny,
sem einnig átti þátt í að skapa Lukku-
Láka, samdi textann allt þar til hann
lést árið 1977. Uderzo hélt áfram út-
gáfu bókanna fram til ársins 2011 er
hann lagði pennann á hilluna, en aðr-
ir hafa tekið við keflinu.
Nú hafa komið út 38 bækur um
ævintýri Ástríks, en þær gerast á tím-
um Júlíusar Sesars og yfirráða Róm-
verja í Gallíu, sem í dag heitir Frakk-
land. Þær hafa verið þýddar á meira
en hundrað tungumál, þar á meðal ís-
lensku, latínu og forn-grísku.
Teiknari Ástríks
gallvaska látinn
Albert
Uderzo
FRAKKLAND
Brúðguminn Mohamed abu Daga og brúðurin
Israa stilla sér upp með grímur fyrir brúðar-
myndatöku í borginni Khan Yunis á suðurhluta
Gaza-svæðisins. Yfirvöld þar staðfestu um
helgina að faraldurinn hefði borist þangað með
tveimur Palestínumönnum sem voru nýkomnir
heim frá Pakistan. Þeir eru nú í einangrun, en
Sameinuðu þjóðirnar óttast áhrif faraldursins á
veikburða heilbrigðiskerfi svæðisins.
Ástin á tímum kórónuveirunnar
AFP