Morgunblaðið - 25.03.2020, Síða 15
AFP
Mótmæli Greta Thunberg á mót-
mælum í Brussel í byrjun mars.
Sænski umhverfisverndarsinninn
Greta Thunberg tilkynnti í gær að
hún og faðir hennar hefðu mjög lík-
lega sýkst af kórónuveirunni eftir
ferðalög þeirra um Mið-Evrópu í
febrúar.
Varð Thunberg fyrst einkenna vör
fyrir um tíu dögum, en hún sagðist
hafa farið í sóttkví ásamt föður sín-
um í varúðarskyni. Sagði Thunberg
að veikin hefði ekki lagst þungt á
sig, en þeim mun verr á föður sinn.
Ekki er prófað fyrir veirunni í Sví-
þjóð nema hjá þeim sem þurfa að
leggjast inn á sjúkrahús. Sagði
Thunberg að hún hefði ekki talið sig
vera með veiruna nema vegna þess
hvernig hún lagðist á föður hennar.
Bera gríðarmikla ábyrgð
Hvatti hún um leið fólk af sinni
kynslóð til þess að taka faraldurinn
alvarlega, sér í lagi þar sem veiran
gæti leynst hjá því án þess að það
vissu að það væri að smita út frá sér
til fólks í meiri áhættuhópum.
„Við sem tilheyrum ekki áhættu-
hópum berum gríðarmikla ábyrgð.
Gjörðir okkar geta skilið á milli lífs
eða dauða fyrir marga aðra,“ sagði
Thunberg í yfirlýsingu sinni.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
Thunberg lætur sig faraldurinn
varða, en hún hvatti til þess í byrjun
mars að látið yrði af mótmælaað-
gerðum skólafólks gegn hlýnun jarð-
ar og þær færðar á netið til að draga
úr þeirri smithættu sem fylgdi
mannamótum.
Thunberg
líklega
smituð
„Skylt að taka far-
aldurinn alvarlega“
FRÉTTIR 15Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. MARS 2020
Laugavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | verslun@brynja.is
brynja.is
Erum með þúsundir
vörunúmera inn á
vefverslun okkar
Frír sendingarkostnaður út apríl
PON er umboðsaðili
PON Pétur O. Nikulásson ehf.
Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður
Sími 580 0110 | pon.is
Við bjóðum alla Jungheinrich eigendur velkomna!
GÆÐI OG ÞJÓNUSTA
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Stjórnvöld á Indlandi, næstfjölmenn-
asta ríki heims, bættust í gær í hóp
þeirra ríkja sem fyrirskipa fólki að
halda kyrru fyrir heima við vegna
kórónuveirufaraldursins. 1,3 millj-
arðar manna búa þar í landi og er nú
áætlað að um þriðjungur mannkyns
búi við útgöngubann eða aðrar
áþekkar aðgerðir.
Aðgerðir Indverja komu degi eftir
að Boris Johnson, forsætisráðherra
Bretlands, ávarpaði þjóð sína í beinni
útsendingu og tilkynnti útgöngu-
bann, sem einungis mætti rjúfa til að
sækja sér mat eða læknisaðstoð, eða
til að stunda hreyfingu einu sinni á
dag. Sagði Johnson hertar aðgerðir
nauðsyn í ljósi þeirrar grafalvarlegu
stöðu sem komin var upp í Bretlandi,
en brögð voru að því um helgina að
fólk væri að koma saman utandyra á
almannafæri þrátt fyrir tilmæli um
að halda fjarlægð.
Þrátt fyrir að útgöngubann væri í
gildi voru neðanjarðarlestirnar í
Lundúnum troðfullar af fólki í gær-
morgun, og var skorað á stjórnvöld
að framfylgja banninu af meiri hörku.
Stjórnvöld á Írlandi skipuðu öllum
verslunum og fyrirtækjum sem ekki
þykja lífsnauðsynleg að loka dyrum
sínum í gær fram til 19. apríl næst-
komandi. Veitingahús eiga einnig að
loka, en þeim verður heimilt að starf-
rækja heimsendingu á matvælum. Á
Leo Varadkar, forsætisráðherra Ír-
lands, mátti skilja að mögulega yrðu
aðgerðirnar hertar og framlengdar
um vikur ef ekki mánuði.
Tilfellum fjölgar enn
Meira en 414.000 manns hafa nú
smitast af kórónuveirunni um veröld
alla samkvæmt tölum Johns Hopk-
ins-háskólans. Þá voru ríflega 18.500
manns sagðir látnir af völdum veir-
unnar, en rúmlega 107.000 manns
hafa náð sér að fullu samkvæmt
gögnum háskólans. Þar af voru um
60.000 manns í Hubei-héraði í Kína,
sem varð einna verst úti í upphafi
ársins.
Stjórnvöld í Kína tilkynntu í gær
að íbúar héraðsins, sem eru um 50
milljón talsins, mættu frá og með
deginum í dag ferðast á ný. Hins veg-
ar var tekið fram að tilslökunin myndi
ekki ná til Wuhan-borgar, þar sem
kórónuveiran blossaði fyrst upp, fyrr
en 8. apríl.
Í Evrópu þykir ástandið hins vegar
grafalvarlegt, en rúmlega helmingur
allra tilfella sem vitað er um er í álf-
unni. Á Ítalíu jókst mannfall á ný eftir
tvo daga þar sem dauðsföllum fækk-
aði eftir erfiða helgi. Létust 743 í gær
í landinu, en ekki mun líða á löngu áð-
ur en fleiri verða sagðir hafa smitast
þar en í Kína.
Spánverjar óskuðu í gær eftir að-
stoð Atlantshafsbandalagsins við að
tryggja landinu nauðsynleg gögn til
að verjast veirunni, en tilfellum þar
fjölgaði ört í gær. Nú hafa meira en
2.800 dauðsföll orðið af völdum veir-
unnar á Spáni.
Donald Trump Bandaríkjaforseti
lýsti hins vegar yfir efasemdum sín-
um á samfélagsmiðlinum Twitter í
gær um að harðar aðgerðir, eins og
að halda starfsfólki heima, væru þess
virði að ráðist yrði í þær, vegna
mögulegs skaða á efnahagslífinu.
Um þriðjungur mannkyns
í sóttkví eða útgöngubanni
Sífellt fleiri ríki setja á útgöngubann Kínverjar létta á aðgerðum í Hubei
AFP
Mannmergð Heilbrigðisstarfsfólk frá Chongqing fagnar því að geta snúið aftur heim til sín frá Hubei-héraði.
Kórónuveiran
» Johns Hopkins-háskólinn
segir 414.277 tilfelli veirunnar
hafa verið staðfest í gær.
» 18.557 höfðu látist af völd-
um kórónuveirunnar, þar af
6.820 á Ítalíu og 3.160 í Hubei-
héraði.
» 107.806 hafa náð sér af
lungabólgunni sem veiran
veldur, þar af 60.324 í Hubei-
héraði.
Háls-, nef- og eyrnalæknar í Bret-
landi, Bandaríkjunum og Frakk-
landi hafa tekið eftir auknum fjölda
sjúklinga á síðustu vikum sem hafa
tapað lyktarskyni sínu, og er það
nú talið vera vísbending um að fólk
sem annars sé heilbrigt að öðru
leyti sé á fyrstu stigum smits.
Hefur fólki í Bretlandi sem verð-
ur vart við skert lyktar- eða bragð-
skyn nú verið ráðlagt að einangra
sig þegar í stað, jafnvel þótt engin
önnur einkenni séu til staðar.
Er ráðið einkum sagt geta nýst
smituðu heilbrigðisstarfsfólki áður
en það sýkir aðra.
NÝ EINKENNI KÓRÓNUVEIRUNNAR KOMA FRAM
Tap á lyktar- og bragðskyni vísbending