Morgunblaðið - 25.03.2020, Qupperneq 17
17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. MARS 2020
Við störf Þótt starfsemi sé víða í hægagangi eða hálflömuð eru byggingarframkvæmdir í gangi eins og sjá mátti í gær við Marriott-hótelið á Austurbakka.
Eggert
Kærleikurinn er
ekki einhver þreyttur
lagabókstafur eða
steinrunnir stafir held-
ur síungt og ferskt
hjartalag, hugarþel,
athöfn og verk sem
spyrja ekki um endur-
gjald eða hvernig
standi á.
Kærleikurinn er
ekki þrasgjarn. Hann
veit ekki allt best og
hann veður ekki yfir. Hann hlustar
og sýnir skilning. Hann virðir, um-
vefur, uppörvar og hvetur.
Kærleikurinn spyr ekki um eigin
hag og er ekki á eigin forsendum.
Hann segir ekki þegar mér hentar,
þegar ég vil eða nenni og þá þegar
ég fæ sem mest út úr honum á móti.
Nei, kærleikurinn hlustar og sér.
Hann opnar hjarta sitt fyrir neyð
náungans, án þess að spyrja um rök
eða ástæður.
Um leið og kærleikurinn er brott-
för frá sjálfhverfu leiðir hann til
sjálfsmeðvitundar.
Kærleikurinn nær út yfir öll
hagsmunasamtök og alla pólitík.
Kærleikurinn er miskunnsamur.
Ekki sjálfhverfur. Hann er um-
hyggja frá innstu hjartans rótum.
Hann uppörvar og hvetur. Því hann
á uppsprettu í hinni tæru lind lífs-
ins.
Kærleikurinn kemur í veg fyrir
ósætti. Hann flytur frið, leitar sátta,
stuðlar að gleði og
veitir fögnuð. Gleði og
fögnuð sem byggður er
á djúpri alvöru sem
leiðir til varanlegrar
hamingju. Hamingju
sem breytir hjörtum
fólks svo það snýr sér
frá ranglæti, fálæti og
óréttvísi og leiðist inn í
eilíft ljós sannleikans.
Kærleikurinn er
gjafmildur og þakk-
látur. Hann veitir
hjörtunum frið. Eilífan
frið sem er æðri mannlegum skiln-
ingi.
Kærleikurinn fer ekki í mann-
greinarálit og tekur sér ekki frí.
Hann er ekki aðeins falleg orð held-
ur lætur hann verkin tala. Í kær-
leikanum er fólgin lausn, sigur og
ólýsanlegur lækningamáttur.
Með kærleikans faðmlagi, sam-
stöðu- og friðarkveðjur.
Lifi lífið!
Eftir Sigurbjörn
Þorkelsson
»Kærleikurinn er ekki
aðeins falleg orð
heldur lætur hann verk-
in tala. Í honum er fólg-
in lausn, sigur og
ólýsanlegur lækninga-
máttur.
Sigurbjörn
Þorkelsson
Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur
og aðdáandi lífsins.
Máttur
kærleikans
Stjórnvöld á Íslandi
hafa nú látið boð út
ganga um aðgerðir
vegna útbreiðslu á Co-
vid-19-veirunni, m.a.
vegna skaðlegra efna-
hagslegra áhrifa af
henni. Verði meðal
annars gripið til þess
ráðs að bjóða fyrir-
tækjum, sem orðið hafi
fyrir a.m.k. 40% tekju-
missi, ríkisábyrgð á
50% nýrra lána sem fyrirtækin fái
hjá viðskiptabönkunum. Sýnist þá
gert ráð fyrir að bankarnir muni
sjálfir bera 50% áhættu af þessum
lánum, ef þeim sem lánin taka tekst
ekki að endurgreiða þau.
Nú ættu menn að muna að Hæsti-
réttur Íslands hefur á síðustu árum
breytt ákvæði almennra hegningar-
laga um umboðssvik. Eftir lagatext-
anum er ekki unnt að refsa fyrir þau
nema sannaður sé auðgunarásetn-
ingur á brotamann. Þessu breytti
rétturinn í dómum sínum og kom á
þeirri skipan að refsa skyldi starfs-
mönnum bankanna ef talið yrði að
þeir hefðu með gerðum sínum stofn-
að bankanum í verulega hættu á að
verða fyrir fjártjóni með lánveit-
ingum sínum. Þau lán voru þá yfir-
leitt veitt í því skyni að lántaki nýtti
lánsféð til að kaupa hlutabréf í við-
komandi banka, sem bankinn átti
sjálfur, og taka síðan veð í bréfunum
til tryggingar kröfunni um endur-
greiðslu lánsins. Raun-
ar var vandséð hvernig
í þessu átti að felast
tjónsáhætta fyrir
bankann. Hæstiréttur
taldi samt að svo hefði
verið og var þá ljóst að
rétturinn gekk mjög
langt í viðleitni til sak-
fellingar yfir hinum
sökuðu mönnum; eigin-
lega svo langt að engu
tali tók.
Þessir dómar rétt-
arins fólu einfaldlega í
sér óheimila valdbeit-
ingu sem virðist hafa réttlæst af við-
leitni við að sefa reiði landsmanna
vegna bankahrunsins. Nú koma síð-
an í ljós afleiðingarnar af svona
dómaframkvæmd, þegar við virðum
fyrir okkur úrræði stjórnvalda gegn
skaðlegum fjárhagslegum afleið-
ingum af veirufárinu.
Þetta gerist með þeim hætti að
ríkisstjórn Íslands beinir því nú til
bankanna að veita fyrirtækjum í
vanda lán, sem að minnsta kosti
kunni að hálfu leyti að verða án
tryggingar. Þannig verði lánin að því
marki á áhættu bankans sjálfs,
nema þá lántaki geti sjálfur sett
tryggingu, sem í flestum tilvikum
hlýtur í stöðunni að teljast ólíklegt. Í
slíkum lánveitingum verður, m.a.
vegna ríkjandi ástands, miklu frem-
ur talin hætta á fjártjóni, heldur en í
nefndum dómum Hæstaréttar. Má
telja víst að hluti af þessum lánum
muni ekki fást endurgreiddur og við-
komandi banki því sitja uppi með
fjártjónið sem af því leiðir. Í yfirliti
stjórnvalda kemur fram að sá helm-
ingur sem ríkið ábyrgist ekki geti
numið allt að 35 milljörðum króna.
Ef í þessu felst ráðagerð stjórn-
valda um að hluti þessara bankalána
verði án trygginga og á áhættu
bankanna er um greinilegt hættuspil
að ræða. Með hliðsjón af nefndum
dómum Hæstaréttar Íslands verður
ekki betur séð en bankamenn
myndu brjóta gegn ákvæði al-
mennra hegningarlaga um umboðss-
vik ef þessar lánveitingar ættu sér
stað án fullnægjandi trygginga. Við
verðum að ætla að þetta sé gert fyrir
vangá. Það er samt ástæða til að
vara bankamenn við. Þeir einir ættu
að taka þátt í þessu sem eru tilbúnir
til að verja nokkrum árum bak við
lás og slá í þágu þessa málstaðar.
Eftir Jón Steinar
Gunnlaugsson »Með hliðsjón af
nefndum dómum
Hæstaréttar Íslands
verður ekki betur séð en
bankamenn myndu
brjóta gegn ákvæði al-
mennra hegningarlaga
um umboðssvik ef þess-
ar lánveitingar ættu sér
stað án fullnægjandi
trygginga.
Jón Steinar
Gunnlaugsson
Höfundur er lögmaður.
Hvatt til refsi-
verðrar háttsemi?