Morgunblaðið - 25.03.2020, Blaðsíða 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. MARS 2020
Smiðshöfða 9, 110 Rvk. logoflex@logoflex.is 577 7701 www.logoflex.is
Ljósaskilti
fyrir þitt fyrirtæki
LogoFlex sérhæfir sig í framleiðslu skilta, prentunum og
smíði úr plasti ásamt efnissölu á plexigleri og álprófílum
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„OG ERU ÞESSIR GRÆNU SMARAGÐAR?”
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... stundum tjáð í
smáskömmtum.
ÁHÆTTU-
STJÓRNUN
Ó,
NEI!
ÞAÐ ER BILUN HJÁ
ORKUVEITUNNI!
ORKUVEITU?
FEIGÐARÓS – GISTIHÚS
ÉG HELD AÐ VIÐ ÆTTUM AÐ
FINNA EITTHVAÐ ANNAÐ!
MÉR LÍST EKKERT Á ÞETTA!
„ÁÐUR EN LENGRA ER HALDIÐ SKULUM
VIÐ VELJA ÖRYGGISORÐ.”
son, f. 27.9. 1974, píanóleikari og
organisti við Seljakirkju. Foreldrar
hans voru Eggert Jónsson hag-
fræðingur, f. 25.8. 1941, d. 11.10.
2016, og Sigurlaug Aðalsteinsdóttir
meinatæknir, f. 28.12. 1944, d.
21.10. 2000.
Systkini Sifjar eru Már Tulinius,
f. 29.7. 1953, prófessor í barna-
lækningum í Svíþjóð; Torfi Tul-
inius, f. 11.4. 1958, prófessor í ís-
lenskum miðaldafræðum í Reykja-
vík; Þór Tulinius, f. 22.6. 1959,
leikari og leikstjóri í Reykjavík, og
Guðný Helga Tulinius, f. 1.1. 1967,
d. 17.6. 1986.
Foreldrar Sifjar eru Hrafn Tul-
inius, f. 20.4. 1931, d. 31.7. 2015,
yfirlæknir og prófessor í
heilbrigðisfræði við Háskóla Ís-
lands, og Helga Brynjólfsdóttir
Tulinius, f. 1.10. 1931, píanókennari
í Reykjavík.
Sif Margrét
Tulinus
Kristjana Jónsdóttir
húsfr. á Ísafirði, dóttir Jóns Sigurðssonar
á Gautlöndum bónda og alþingismanns
Helgi Sveinsson
bankastjóri á Ísafirði
Guðný Helgadóttir
húsfreyja í Reykjavík
Brynjólfur Jóhannesson
leikari í Reykjavík
Helga Brynjólfsdóttir Tulinius
píanókennari í Reykjavík
Pálína Brynjólfsdóttir
húsfreyja í Rvík og á Ísafirði
Jóhannes Jensson
skósmíðameistari í Rvk og á Ísafirði
Guðrún Torfadóttir
símstjóri á Flateyri í Önundarfirði
Jóhann Lúther
Sveinbjarnarson
prófastur á Hólmum í Reyðarfirði
Margrét Jóhannsdóttir Tulinius
húsfreyja í Reykjavík
Hallgrímur Axel Tulinius
stórkaupmaður í Rvík
Guðrún Hallgrímsdóttir
Tulinius
húsfreyja á Eskifirði og
í Rvík, dóttir Hallgríms
Sveinssonar biskups
Axel V. Tulinius
sýslumaður í Múlasýslu og
forstjóri Sjóvátryggingafélagsins
Úr frændgarði Sifjar Margrétar Tulinius
Hrafn Tulinius
yfirlæknir og prófessor
í heilbrigðisfræði í Rvík
Ung og efnileg Sif Margrét 11 ára
á tónleikum í Austurbæjarbíói.
Ámánudag skrifaði Anton HelgiJónsson á Boðnarmjöð og kall-
aði „Oddhendu dagsins“:
Alveg bit og laus við lit
lítt með þyt ég kyssi
hræðist smit og heima sit
hyl þar vit og missi.
Skúli Pálsson orti á „Degi ljóð-
listar 21. mars 2020“:
Ljóð var eins og lífið þegar
löngum stundum
við á glöðum vinafundum
vísnasöng og rímum undum.
Kviðlingar og kvæði skálda
kættu lengi,
einnig þó að illa gengi,
ævinlega fljóð og drengi.
Kviða forn og limra létt mun
lengi óma,
tjá í orðum ilminn blóma,
alla hjartans leyndardóma.
Ljóð er eins og líf. Í dag er
ljóðsins dagur.
Á Boðnarmiði margur fagur
megi verða ortur bragur.
Höskuldur Búi Jónsson yrkir
„Vor 2020“:
Vorið kemur vítt og bjart
í vonar klæðum.
Voðalega veit ég margt
í veirufræðum.
Pétur Stefánsson hefur tekið upp
nýja siði:
Meðan geisar veiruvá
versla ég mat á netinu.
Hættur er að kyssa og kjá
konu í hjónafletinu.
Ingólfur Ómar Ármannsson
kveður með sínu lagi:
Vísa slungin vermir sál
víkur drungi óðar,
töfrum þrungið mærðarmál
mælt á tungu þjóðar.
Rétt er að rifja upp „Grafljóð“
eftir Hrólf Sveinsson:
Hér hvílir Hannes á Kleppi
hjúpaður vaðmáls-teppi,
rakaður, kembdur og klipptur;
hann var fæddur, fermdur, giftur
og hengdur í sama hreppi.
Þær eru skemmtilegar fuglalimr-
urnar hans Páls Jónassonar í Hlíð.
Þessi heitir „Matarást“:
„Æ, komdu nú hérna og kysstu mig,“
sagði krummi gamli og hneigði sig.
„Ó, kolluungi kær,
já, komdu mér nær,
því ég ætla sko gæskur að gleypa þig.“
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Oddhenda
dagsins og fleira gott