Morgunblaðið - 25.03.2020, Blaðsíða 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. MARS 2020
25. mars 1975
„Auk þess að vera mikill af-
reksmaður, hefir Skúli ákaf-
lega skemmti-
lega framkomu,
sem hefir ekki
hvað sízt vakið
athygli almenn-
ings. Framkoma
hans er einkan-
lega hispurslaus
og full kátínu,“ segir Morgun-
blaðið um Skúla Óskarsson, 26
ára gamlan Fáskrúðsfirðing,
sem er orðinn þjóðþekktur á
skömmum tíma fyrir afrek sín
í lyftingum.
25. mars 1980
Morgunblaðið veltir fyrir sér
hvort Sigurður Sveinsson hafi
sett Íslandsmet í deildakeppn-
inni í handbolta. Sigurður
skoraði 18 mörk fyrir Þrótt
sem sigraði Þór frá Akureyri
27:22 í 2. deild karla. „Hann er
áreiðanlega einn skotharðasti
leikmaðurinn í íslenskum
handknattleik í dag,“ segir í
umsögn blaðsins um leikinn og
skyttuna ungu úr Þrótti.
25. mars 1986
„Þetta er lengsta kastið með
þessu spjóti sem ég veit um í
ár,“ segir Sig-
urður Einarsson
spjótkastari við
Morgunblaðið
eftir að hafa
kastað 76,18
metra á há-
skólamóti í
Bandaríkjunum og orðið fyrst-
ur til að tryggja sér keppnis-
rétt á lokamóti háskólanna.
Nýtt spjót með breyttum
þyngdarpunkti var tekið upp í
íþróttinni í ársbyrjun.
25. mars 1992
Ísland og Danmörk skilja jöfn,
16:16, í milliriðli B-heims-
meistarakeppni karla í
hand knattleik í Innsbruck í
Austurríki. Bjarki Sigurðsson
er markahæstur með 4 mörk.
Sigurinn blasir við íslenska
liðinu en Danir jafna úr hraða-
upphlaupi á síðustu sekúndu.
Ísland er þar með í þriðja sæti
riðilsins, á eftir Noregi og
Danmörku, fyrir lokaumferð-
ina.
25. mars 1999
„Ég hafði legið veik og með
hita í viku og ekki bætti úr
skák að ég skarst illa kvöldið
fyrir keppni,“ segir hin 14 ára
gamla Sigurlaug Árnadóttir
við Morgunblaðið eftir að hafa
orðið Íslandsmeistari á list-
skautum fimmta árið í röð í
Skautahöllinni í Laugardal.
25. mars 2012
Ísland sigrar Sviss, 31:16, í
undankeppni heimsmeistara-
móts kvenna í
handknattleik á
Hlíðarenda.
Karen Knúts-
dóttir og Stella
Sigurðardóttir
skora 6 mörk
hvor fyrir ís-
lenska liðið sem er í baráttu
við Spán og Úkraínu um efstu
sæti riðilsins.
25. mars 2017
„Þetta var örugglega ekki
skemmtilegasti leikurinn til að
horfa á heima en við gerðum
það sem þurfti og fengum þrjú
stig,“ segir Gylfi Þór Sigurðs-
son við Morgunblaðið eftir að
hafa skorað seinna mark Ís-
lands í 2:1 útisigri gegn Kó-
sóvó í undankeppni heims-
meistaramótsins 2018 en
leikið var í Shkodër í Albaníu.
Á ÞESSUM DEGI
AKRANES
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Geir Þorsteinsson, fyrrverandi for-
maður Knattspyrnusambands Ís-
lands, er kominn aftur í íslenska fót-
boltann eftir rúmlega þriggja ára
fjarveru, en Knattspyrnufélag ÍA til-
kynnti ráðningu hans sem fram-
kvæmdastjóra á laugardaginn var.
Geir var framkvæmdastjóri KSÍ frá
1997 til 2007 og síðan formaður sam-
bandsins frá 2007 til 2017.
Síðustu ár hefur hann unnið með
FIFA og UEFA, fyrst og fremst í
Asíu og Eyjaálfu. Þar hefur hann
haldið fyrirlestra og verið ráðgjafi,
enda reynslubolti þegar kemur að al-
þjóðaknattspyrnu.
Kórónuveiran hafði áhrif
„Þetta kom þannig til að síðustu
þrjú ár hef ég verið í þróunarverk-
efni fyrir UEFA og FIFA og þá aðal-
lega með FIFA í Asíu og Eyjaálfu.
Síðasta ferðin sem ég fór í var í des-
ember. Ég var að vinna sem ráðgjafi
og fyrirlesari. Í byrjun árs kviknaði á
kórónuveirunni í Kína og þá sá ég
fyrir mér að ég yrði ekki mikið á
ferðinni í Asíu eða Eyjaálfu næsta
árið,“ sagði Geir um aðdraganda
þess að hann hefði verið ráðinn til
ÍA.
„Það var byrjunin og fékk mig til
að líta enn frekar heim. Eitt leiddi
svo af öðru, Skagann vantaði fram-
kvæmdastjóra og knattspyrna er
mitt svið. Áhugi minn og Skaga-
manna á fótbolta fer mjög vel
saman,“ sagði Geir. Hann segir fé-
lagið ætla sér að vera í allra fremstu
röð í fótboltanum hér á landi.
Viljum spila um titlana
„ÍA er þannig félag og Skagamenn
yfir höfuð eru þannig að þeir vilja ná
árangri í knattspyrnu. Það sama á
við um mig. Ég vil ná árangri í mínu
starfi og saman viljum við spila um
titlana. Það er ekkert sem við förum í
felur með, en það kostar mikla vinnu.
Það kemur ekki af sjálfu sér.“
Jóhannes Karl Guðjónsson hefur
þjálfað karlalið ÍA síðustu tvö ár.
Fyrst fór hann með liðið upp í efstu
deild í fyrstu tilraun árið 2018 og síð-
an lenti liðið í tíunda sæti úrvals-
deildarinnar á síðustu leiktíð eftir
gríðarlega góða byrjun. Mikið er um
uppalda leikmenn á Akranesi og seg-
ir Geir stefnuna að halda þeirri vinnu
áfram.
Efniviður á Akranesi
„Ég hef fylgst ágætlega mikið með
síðustu ár og ég veit að liðið hjá
Skaganum er mjög efnilegt. Liðið
gerði góða hluti framan af í deildinni
í fyrra en svo fór aðeins að halla und-
an fæti. Það er efniviður á Akranesi,
sem er þekkt fyrir að ala af sér
marga góða knattspyrnumenn í
gegnum tíðina og mun halda áfram
að gera það.“
Mikil óvissa er í íslensku íþróttalífi
um þessar mundir vegna útbreiðslu
kórónuveirunnar. Óvíst er hvenær
Íslandsmótið geti hafist og þá gæti
fjárhagsstaða íslenskra félaga orðið
slæm. Geir er bjartsýnn á að mikil
reynsla sín komi til góðs á þessum
erfiðu tímum.
Erfið og krefjandi staða
„Ég vona að þekking mín og
reynsla hjálpi til með að komast úr
þeirri stöðu. Þeir tímar sem blasa við
núna í íslenskri knattspyrnu eru
nokkuð sem við höfum enga þekk-
ingu né reynslu af. Bara það að geta
ekki æft hefur ekki gerst áður.
Ástandið er mjög erfitt og knatt-
spyrnuhreyfingin hefur orðið fyrir
mjög þungu höggi því þar er mest
undir fjárhagslega. Staðan er erfið
og krefjandi en við verðum að vinna
okkur út úr henni,“ sagði Geir.
Hann útilokar ekki að vinna fyrir
FIFA eða UEFA í framtíðinni en
núna einbeitir hann sér að ÍA.
„Ég mun algjörlega einbeita mér
að Skaganum. Það kann vel að vera
að ég muni einhvern tímann aftur
deila þekkingu minni erlendis en það
verður þá gert í samráði við ÍA. Það
er meira en nóg hjá mér í bili að vera
framkvæmdastjóri ÍA,“ sagði Geir
Þorsteinsson.
Áhugi minn og
Skagamanna
fer vel saman
Geir leggur til hliðar fyrirlestra og
ráðgjöf í Asíu og Eyjaálfu Vill hjálpa
ÍA að komast á toppinn á ný Ljósmynd/KSÍKSÍ Geir Þorsteinsson var formaður KSÍ um tíu ára skeið.
Stefnt er að því að hefja leik í knatt-
spyrnunni í Noregi hinn 23. maí.
Frá þessu var greint í gærkvöldi, en
Norska knattspyrnusambandið og
samtök félaganna hafa komist að
samkomulagi um þetta. Norðmenn
halda í vonina að ef til vill verði
hægt að spila 16. maí. Þjóðhátíðar-
dagur Norðmanna er 17. maí og er
hefð fyrir því að spila heila umferð
kvöldið fyrir þjóðhátíðardaginn.
Gangi þetta eftir sjá Norðmenn
fram á að spila tvær umferðir í
efstu deildum karla og kvenna áður
en áætlað landsleikjahlé tekur við.
Dagsetning
ákveðin í Noregi
Ljósmynd/aafk.no/Srdan Mudrinic
Noregur Hólmbert Aron Friðjóns-
son, leikmaður Aalesund.
Skærustu knattspyrnustjörnur
heimsins síðasta áratuginn, Lionel
Messi frá Argentínu og Cristiano
Ronaldo frá Portúgal, hafa opnað
veskið til að styðja við baráttuna
gegn kórónaveirunni.
Greint var frá því í gær að Ron-
aldo hefði ásamt umboðsmanni sín-
um gefið sjúkrahúsum í Portúgal
tækjabúnað og sjúkrarúm fyrir
gjörgæsludeildir. Þá kom fram að
Messi hefði látið eina milljón evra
af hendi rakna til sjúkrahúsa í
Barcelona, þar sem hann hefur búið
frá unglingsaldri. sport@mbl.is
Stjörnurnar taka
þátt í baráttunni
AFP
Stórvinirnir Messi og Ronaldo í leik
með Barcelona og Real Madrid.
ÓLYMPÍULEIKAR
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Eftir gríðarlegan þrýsting úr öllum
áttum tók Alþjóðaólympíunefndin,
IOC, þá ákvörðun í gær í samráði við
framkvæmdanefnd leikanna í Tókýó
að fresta Ólympíuleikunum 2020.
Ólympíumóti fatlaðra, Paralympics,
er sömuleiðis frestað og flest bendir
til þess að mótshaldið verði allt í jap-
önsku höfuðborginni sumarið 2021.
Í yfirlýsingu, sem gefin var út í gær
eftir neyðarfund í kjölfar viðræðna
Thomas Bach forseta IOC og Shinzo
Abe forsætisráðherra Japans, er sagt
að leikarnir verði í „síðasta lagi“
sumarið 2021. Það þýðir að ekki er
enn útilokað að þeir verði haldnir síð-
ar á þessu ári þótt það virðist afar
ósennileg niðurstaða.
Ljóst er að þessi ákvörðun var orð-
in óumflýjanleg eftir að tilkynning
IOC á sunnudagskvöldið um að hún
yrði ekki tekin fyrr en eftir mánuð fór
mjög illa í íþróttafólk og íþrótta-
samtök um allan heim. Kanada og
Ástralía höfðu þegar tilkynnt að ekk-
ert íþróttafólk yrði sent á leikana ef
þeir færu fram í Tókýó í sumar og
Bretar voru að því komnir að feta í
þau fótspor.
Undirtektir við frestuninni eru al-
mennt góðar, enda þótt frestun leik-
anna geti haft ýmsar afleiðingar, eins
og fyrir þá sem hugðust hætta keppni
að leikunum loknum eða eftir tíma-
bilið. Ásdís Hjálmsdóttir er í þeim
hópi eins og fram kemur í viðtalinu
við hana hér í opnunni.
Sundmaðurinn Anton Sveinn
McKee var eini Íslendingurinn sem
var öruggur um sæti á Ólympíu-
leikunum og ekki var búið að úthluta
endanlega sætum á Ólympíumóti fatl-
aðra. Ísland var þó öruggt með tvö
sæti í sundi og hefði væntanlega einn-
ig fengið tvö sæti í frjálsíþróttakeppn-
inni ásamt mögulega sæti í bogfimi.
Ólympíuleikum hefur ekki áður
verið frestað eða aflýst á friðartímum.
Sumarleikunum 1916 sem fram áttu
að fara í Berlín var aflýst vegna fyrri
heimsstyrjaldarinnar. Leikunum sem
fram áttu að fara í Tókýó 1940 og
London 1944 var aflýst vegna síðari
heimsstyrjaldarinnar. Þá var vetrar-
leikunum sem halda átti 1940 í Þýska-
landi og 1944 á Ítalíu aflýst af sömu
sökum.
AFP
Flaggskip Nýr þjóðarleikvangur Japan, aðalvettvangur Ólympíuleikanna
og Ólympíumóts fatlaðra sem væntanlega fara þar fram sumarið 2021.
Ákvörðun sem var óumflýjanleg
Ólympíuleikar og Ólympíumót fatlaðra væntanlega haldin sumarið 2021