Morgunblaðið - 25.03.2020, Page 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. MARS 2020
Ægir Hrafn Jónsson hefur fram-
lengt samning sinn við handknatt-
leiksdeild Fram samkvæmt heima-
síðu félagsins. Samningurinn er til
næstu tveggja ára og gildir því til
ársins 2022. Ægir er lykilmaður í
vörn Framliðsins og á meðal reynd-
ustu leikmanna í úrvalsdeildinni.
„Við í Fram erum gríðarlega ánægð
með að fá að njóta krafta hans
áfram enda er hann mikill liðsmaður
og frábær félagi,“ segir í tilkynning-
unni.
Framarar eru sem stendur í níunda
sæti úrvalsdeildarinnar, Olís-
deildarinnar, með 16 stig, einu stigi
minna en Stjarnan sem er í áttunda
sætinu. Fram á því enn góða mögu-
leika á sæti í úrslitakeppninni þegar
tvær umferðir eru eftir af deild-
arkeppninni sem hefur verið frestað
um óákveðinn tíma vegna kór-
ónuveirunnar.
Fatih Terim, knattspyrnustjóri
Galatasaray og fyrrverandi lands-
liðsþjálfara Tyrkja, skýrði frá því á
samfélagsmiðlum að hann væri með
kórónuveiruna og lægi á sjúkrahúsi.
Hinn 66 ára gamli Terim stýrði
Tyrkjum í nokkrum leikjum gegn Ís-
lendingum í undankeppni stórmót-
anna á síðasta áratug.
„Samkvæmt prófum sem gerð voru
í dag er ég með kórónuveiruna. Ég
er í góðum höndum á sjúkrahúsinu,
hafið engar áhyggjur,“ skrifaði Ter-
im á Twitter á mánudagskvöld.
Mikael Nikulásson, þjálfari karla-
liðs Njarðvíkur í knattspyrnu, hefur
ákveðið að afþakka helming þeirra
launa sem hann á rétt á samkvæmt
ráðningarsamningi hjá félaginu í
mars og væntanlega apríl. Njarðvík
leikur í 2. deild Íslandsmótsins, eða
þriðju efstu deild, en liðið féll úr
þeirri næstefstu síðasta haust og
tók Mikael þá við þjálfun liðsins.
Mikael afþakkar helming launa
sinna vegna kórónuveirunnar sem
setur svip sinn á íþróttalífið enda
samkomubann í landinu og alls
óvíst hvenær Íslandsmótið í knatt-
spyrnu hefst. Kom þetta fram hjá
Mikael í þættinum Sportið á Vísi í
gær.
Sænska gönguskíðakonan Stina
Nilsson, sem er ríkjandi Ólympíu-
meistari í sprettgöngu, hefur ákveð-
ið að skipta um íþrótt, en þetta til-
kynnti hún á Instagram-síðu sinni.
Nilsson hefur fimm sinnum unnið til
verðlauna á Ólympíuleikum og sjö
sinnum á heimsmeistaramóti. Hún
er jafnframt heimsmeistari í 4x5 km
göngu kvenna og í liðspretti en hún
ætlar að snúa sér að skíðaskotfimi.
Fréttirnar hafa vakið mikla athygli
enda er Nilsson ein fremsta göngu-
skíðakona Svía og eru margir fjöl-
miðlamenn þar í landi undrandi á
ákvörðun hennar.
Eitt
ogannað
FRJÁLSAR
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
„Hver heilvita maður vissi að það
væru engir Ólympíuleikar að fara að
hefjast í lok júlí,“ sagði Ásdís
Hjálmsdóttir Annerud, Íslands-
meistari í spjótkasti, í samtali við
Morgunblaðið í gær.
Ólympíuleikunum 2020, sem áttu
að hefjast 24. júlí í Tókýó í Japan,
var í gær frestað vegna kórónu-
veirufaraldursins sem nú herjar á
heimsbyggðina og fara þeir væntan-
lega fram sumarið 2021. Ásdís setur
stórt spurningarmerki við það að Al-
þjóðaólympíusambandið og móts-
haldarar hafi ekki verið fyrr á ferð-
inni með ákvörðun um frestun
leikanna.
Ásdís, sem verður 35 ára gömul á
árinu, ætlaði sér að enda glæstan
tuttugu ára frjálsíþróttaferil sinn
með góðri frammistöðu á Ólympíu-
leikunum í Tókýó og svo setja frjáls-
íþróttaskóna á hilluna eftir Evrópu-
mótið í París í lok ágúst. Nú hefur
Ólympíuleikunum verið frestað og
óvissa ríkir um Evrópumótið.
„Það er allt í smá upplausn akk-
úrat núna. Ég er samt í mun betri
málum hérna úti en heima á Íslandi
þar sem ég væri í raun bara í djúp-
um skít. Það er náttúrulega búið að
loka öllu heima og ég gæti í raun
ekki æft spjótkast á Íslandi eins og
staðan er í dag. Ég get hins vegar
æft helling í Svíþjóð, bæði heima, úti
og svo í frjálsíþróttahöllinni í Gauta-
borg.
Ég hef því getað haldið plani,
hvað æfingar varðar, en ég hef líka
þurft að nota ímyndunaraflið. Núna
er mikil óvissa um það hvort það
verði í raun eitthvert tímabil hjá
manni, engir Ólympíuleikar og
spurning um Evrópumótið, og það
er sérstakt að æfa í svona aðstæðum
án þess að vita hvað muni gerast.“
Svíar á eftir kúrfunni
Evrópumótinu 2020 sem á að fara
fram í París í Frakklandi hefur ekki
enn verið frestað og því reyna
sænskir íþróttamenn sitt besta til að
halda sér í sem bestu formi.
„Svíarnir eru aðeins á eftir kúrf-
unni hjá löndunum í kringum sig
þegar kemur að kórónuveirunni.
Það sem er að gerast í löndunum í
kringum okkur gerist oftast einni til
tveimur vikum síðar í Svíþjóð. Það
er samkomubann í Svíþjóð sem gild-
ir um 500 manns eða fleiri og fólki er
ráðlagt að vera ekki að fara út úr
húsi að óþörfu. Svíarnir eru mjög
meðvitaðir um hættuna sem stafar
af veirunni og það er komið spritt út
um allt núna.
Ég fór á æfingu á föstudaginn í
frjálsíþróttahöllinni og það var
spritt við alla innganga og í lyft-
ingaklefanum sem dæmi. Fólk reyn-
ir að passa sig en á móti kemur að
frjálsíþróttafólkið er á fullu að búa
sig undir sitt keppnistímabil. Við vit-
um ekki hvað þetta ástand mun taka
langan tíma að ganga yfir en tíma-
bilið stendur yfir frá maí fram í
miðjan september. Ef það léttir eitt-
hvað yfir ástandinu þurfum við að
vera tilbúin í slaginn ef eitthvað
breytist. Þá er ekki enn búið að
fresta Evrópumótinu og því þurfum
við að leggja allt í sölurnar til að
halda okkur í formi.“
Ófagmannlega að verki staðið
Ásdís setur stórt spurning-
armerki við að dregið hafi verið
svona lengi að fresta Ólympíu-
leikunum og segir að með því hafi
heilsu íþróttamanna verið stofnað í
hættu.
„Ég skil alveg að það sé búið að
fresta íþróttaviðburðum sem eiga að
fara fram á næstu vikum og mán-
uðum. Þetta fer aðeins eftir því
hvernig maður horfir á hlutina en að
það skyldi taka þennan tíma að
fresta Ólympíuleikunum er mjög
sérstakt. Ef þeir ákveða að fresta
þessu fram á haustið væri mögulega
hægt að halda einhverjar af þessum
undankeppnum á næstu mánuðum.
Þá gætu þeir líka ákveðið að fresta
fram á næsta sumar og það er gríð-
arlega stór munur á því að fresta
þessu um nokkra mánuði eða heilt
ár.
Í mörgum íþróttum sem keppt er
í á leikunum er tímabilið í raun búið
að þeim loknum og það hefðu því
bara verið Ólympíuleikarnir eftir.
Þessir íþróttamenn eru að stofna
heilsu sinni í hættu með því að vera
að æfa fyrir mögulega ekki neitt í
heilan mánuð, ef það átti svo bara að
fresta þessu. Það er ófagmannalega
gert að hafa dregið svona lappirnar
með þetta.
EM er svo í lok ágúst og það er
eiginlega of snemmt að segja til um
það hvað sé best að gera þar. Það er
hins vegar klárt að ástæðan fyrir því
að draga lappirnar með að gefa út
einhverja sérstakar tilkynningar er
sú að það er dýrt að færa við-
burðina, hvað þá hætta við þá, og
það er það sem frjálsíþrótta-
samböndin eru að reyna að komast
hjá því að gera.“
Erfið ákvörðun að taka
Ásdís segir að það hafi þurft að
taka margt með í reikninginn varð-
andi frestun á leikunum.
„Þetta hefur verið mjög erfið
ákvörðun að taka og ég er mjög feg-
in að það var ekki ég sem þurfti að
ákveða þetta. Það þarf að taka tillit
til þess að það er fullt af íþrótta-
mönnum sem ætluðu að klára leik-
ana núna og hætta svo. Það er hrika-
lega stór munur á því að fresta
þessu fram á haustið eða um næstu
tvö árin. Þú ert að leggja rosalega
mikið á þig, bæði andlega og líkam-
lega, þegar þú æfir fyrir Ólympíu-
leika og það eru ekkert allir tilbúnir
að leggja það á sig í langan tíma.
Ef Ólympíuleikarnir verða á
næsta ári mun það eyðileggja HM í
Bandaríkjunum sem á að fara fram
2021. Það er svakalegt persónulegt
áfall fyrir mig ef Ólympíuleikarnir
fara ekki fram í ár því þá er í raun
bara verið að taka mína fjórðu leika
af mér. Það er kannski auðveldara
að hafa leikana næsta sumar, frekar
en í lok árs, en svo gæti allt eins
blossað upp einhver önnur veira á
næsta ári og sett allt í uppnám þá,
maður veit aldrei.“
Aldrei verið í betra formi
Ásdís gaf það út fyrir áramót að
árið 2020 yrði síðasta keppnistímbil
hennar í frjálsum íþróttum. Kór-
ónuveiran hefur sett allt keppnisfyr-
irkomulag á árinu úr skorðum og
telur Ásdís ólíklegt að hún muni
halda keppni áfram á næsta ári, þótt
bæði Ólympíuleikarnir og Evr-
ópumótið myndu færast þangað.
„Ég er að sjálfsögðu búin að
hugsa lengi um þetta og þetta er
flókin ákvörðun fyrir mig, sér-
staklega ef keppnistímabilið 2020
fer alveg út um þúfur. Ég sé samt
ekki fram á að taka eitt ár í viðbót í
allri hreinskilni sagt. Ég er búin að
leggja allt í sölurnar í ár og ég finn
það, orðin 35 ára gömul, að líkaminn
er farinn að finna fyrir smá þreytu.
Eftir því sem maður eldist finnur
maður að líkurnar á meiðslum
aukast með hverjum deginum sem
líður.
Þegar ég fór að leiða hugann að
því að kalla þetta gott ákvað ég
strax að ég vildi hætta á mínum eig-
in forsendum. Ég vil ekki hætta af
því að ég er þreytt eða meidd, og ég
tel mig vera á þeim stað núna að ég
geti hætt á eigin forsendum í sumar.
Ef ég tek hins vegar eitt ár í viðbót
eru miklar líkur á því að ég muni
ekki geta hætt eins og ég vil hætta.
Eins yrði gríðarlega mikið svekkelsi
að taka eitt ár í viðbót, leggja allt í
sölurnar, og komast svo ekki á Ól-
ympíuleikana sem dæmi. Ég er í
mínu besta formi akkúrat núna og
það yrði því gríðarlegt áfall fyrir
mig ef ekkert yrði úr tímabilinu,“
sagði Ásdís Hjálmsdóttir í samtali
við Morgunblaðið.
Gríðarlegt áfall ef ekk-
ert verður úr tímabilinu
Ásdís ekki á fleiri Ólympíuleika? Reiknar ekki með að keppa á næsta ári
Morgunblaðið/Sigurður Ragnarsson
Laugardalshöll Ásdís Hjálmsdóttir Annerud mætti á Reykjavíkurleikana í
byrjun febrúar og hefur síðan búið sig undir tímabilið heima í Gautaborg.
Þegar Haukur Þrastarson og Sig-
valdi Björn Guðjónsson, landsliðs-
menn í handknattleik, hefja feril
sinn með Kielce í Póllandi næsta
vetur munu þeir leika fyrir
meistaralið sem á titil að verja.
Pólska handknattleikssambandið
tók þá ákvörðun í gær að keppnis-
tímabilinu þar í landi væri lokið og
krýndi efstu liðin í úrvalsdeildum
karla og kvenna pólska meistara
árið 2020. Kielce er meistari í
karlaflokki níunda árið í röð, en lið-
ið var með þriggja stiga forskot á
Wisla Plock.
Pólskir meistarar
níunda árið í röð
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Á útleið Atvinnumannaferill Hauks
Þrastarsonar hefst næsta vetur.
Gareth Bale, leikmaður spænska
knattspyrnuliðsins Real Madrid, er á
förum í sumar samkvæmt fullyrð-
ingum spænskra fjölmiðla í gær.
Bale var nálægt því að ganga til liðs
við Jiangsu Suning í kínversku úr-
valsdeildinni síðasta sumar en Real
Madrid stöðvaði félagaskiptin á síð-
ustu stundu.
Bale er þrítugur að aldri en hann
er samningsbundinn Real Madrid til
sumarsins 2022. Hann er í dag met-
inn á 40 milljónir evra en hann þén-
ar í kringum 600.000 pund á viku hjá
Real Madrid. bjarnih@mbl.is
Styttist í að Bale
yfirgefi loks Real
AFP
Á förum Gareth Bale hefur íhugað
stöðu sína í langan tíma.