Morgunblaðið - 25.03.2020, Page 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. MARS 2020
:
Glæsilegt páskablað
fylgirMorgunblaðinu
föstudaginn 3. apríl
NÁNARI UPPLÝSINGAR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími 569 1105 – kata@mbl.is
PÖNTUN AUGLÝSINGA
fyrir mánudaginn 30.mars
–– Meira fyrir lesendur
SÉRBLAÐ
Gómsætur og girnilegur matur
Páskasiðir – Ferðalög – Viðburðir
Aðsókn að kvikmyndahúsum hér
á landi var með eindæmum lítil
um nýliðna helgi, enda búið að
fækka verulega sætum í sölu og
hámarksfjölda gesta í sal.
Helgina áður voru seldir miðar
7.491 en nú 2.021 sem er 74%
minni sala. Allar fjöldasamkomur
þar sem fleiri en 20 manns koma
saman eru nú orðnar óheimilar
og kvikmyndahúsum hefur verið
lokað.
Kvikmyndin Síðasta veiðiferðin
er sú sem hæstum miðasölu-
tekjum skilaði um helgina,
925.000 krónum, en nokkru fleiri
sáu hins vegar teiknimyndina
Onward eða 535 manns. Hasar-
myndina Bloodshot sáu 284 og
The Invisible Man 101. Á þær
myndir sem lægstum tekjum skil-
uðu mættu aðeins örfáir bíógestir
og bara tveir á þá tekjulægstu.
Vinsæl Síðasta veiðiferðin nýtur vinsælda.
Bíógestum fækkaði um 74% milli helga
Ragnar Bragason, leikstjóri og
handritshöfundur, var beðinn um
að mæla með listaverkum sem hægt
er að njóta innan veggja heimilisins
í samkomubanninu.
„Fátt er með svo öllu illt að ei
boði gott. Núna
þegar hægist á
og lífið hættir að
vera endalaust
spretthlaup og
skyndibiti er um
að gera að
staldra aðeins og
horfa inn á við.
Nýta rólegheitin
til að njóta sam-
vista við sína
nánustu, spila og
spjalla eða taka langa göngutúra
úti í náttúrunni með góða tónlist
eða hlaðvarp í eyrunum.
Ég mæli með Heavyweight, þar
sem Jonathan Goldstein rifjar upp
með alls konar fólki augnablikin er
allt breyttist. Skemmtilegar sögur
og áhugaverðar persónur. Einnig
ef fólk hefur ekki heyrt frábæra
þætti Veru Illugadóttur Í ljósi sög-
unnar og Leðurblökuna þá er það
skylduhlustun.
Svo eru það allar bækurnar sem
við höfum aldrei tíma til að lesa. Ég
mæli heilshugar með að fólk hlaði
Kurt Vonnegut niður á Kindilinn
eða spjaldtölvuna. Mannlegur og
djúpvitur með eindemum og svo
stjórnlaust fyndin að maður hlær
endurtekið upphátt. Var að klára
Slapstick sem er ekki ein af hans
allra bestu en samt betri en flest
annað sem skrifað hefur verið.
Fylgjum sérkennilegu lífshlaupi
síðasta forseta Bandaríkjanna í
heimi þar sem þyngdaraflið hegðar
sér ekki eðlilega og samfélagið er í
hers höndum eftir mikla plágu.
Svo getur fólk skellt sér á leig-
una í sjónvarpinu, kúrt og horft
saman á góða kvikmynd. Gullregn
kemur núna á fimmtudag, mæli
heilshugar með henni.“
Mælt með í samkomubanni
Morgunblaðið/KGA
Höfundur Kurt Vonnegut skrifaði meðal annars söguna Slapstick.
Leðurblakan
og Vonnegut
Morgunblaðið /Ófeigur Lýðsson
Útvarpskona Vera Illugadóttir.
Ragnar
Bragason
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Óvenjulegir tímar kalla á óvenjuleg
form í leikhúsinu,“ segir Magnús Geir
Þórðarson þjóðleikhússtjóri. Bendir
hann á að um leið og samkomubannið
var sett í byrjun síðustu viku hafi
listafólk Þjóðleikhússins farið að leita
nýrra og fjölbreyttra leiða til að nýta
hæfileika sína og gleðja landsmenn
meðan á samkomubanninu stendur.
„Leikhús er form sem snýst um
samveru, en búið er að loka fyrir
hefðbundið leikhús á næstu vikum.
Hins vegar er hér fullt hús af hæfi-
leikafólki sem getur skapað verðmæti
fyrir þjóðina með öðrum leiðum sem
við erum að rannsaka. Á fordæma-
lausum tímum verða oft magnaðar
hugmyndir og listaverk til. Þá er er-
indi listarinnar brýnast. Á slíkum
stundum þurfum við meira en nokkru
sinni á því að halda að rækta mennsk-
una og það gerum við einna helst í
gegnum list og menningu. Við erum
því að nýta þennan tíma til að skrifa,
skapa og miðla með frjóum hætti.“
Sjónum beint að gerð
Kardemommubæjarins
Um miðja síðustu viku var verk-
efninu „Ljóð fyrir þjóð“ hleypt af
stokkunum í samstarfi við Rás 1. Á
vef Þjóðleikhússins getur almenn-
ingur sent inn ósk um eitt ljóð sem er
í sérstöku uppáhaldi hjá viðkomandi.
Alla virka daga kl. 16.30 meðan
samkomubannið er í gildi fær einn
Íslendingur boð um að koma í Þjóð-
leikhúsið og fá ljóðið sitt flutt af ein-
um leikara hússins á Stóra sviði Þjóð-
leikhússins, fyrir sig einan. Ljóða-
flutningnum er streymt beint á vef
Þjóðleikhússins, hann fluttur í Víðsjá
á Rás 1 og birtur á Facebook-síðu
leikhússins.
„Eftir helgi fer af stað mjög metn-
aðarfullt verkefni sem nefnist „Leik-
sýning verður til“. Þar er um að ræða
efni sem verið er að vinna fyrir börn
og unglinga í samstarfi við Krakka-
Rúv og er hugsað sem lið í Mennta-
Rúv sem hleypt var af stokkunum í
ástandinu sem nú ríkir. Daglega
verður sett inn á KrakkaRúv stutt
myndband þar sem börn í landinu
geta fylgst með og áttað sig á því
hvernig leiksýning verður til, en efnið
tengist allt Kardemommubænum
sem hér er í
undirbúningi í
leikhúsinu,“ segir
Magnús Geir, en
meðal þess sem
sjónum verður
beint að er leik-
mynd, búningar
og leikmunir auk
þess sem rætt
verður við fólk að
tjaldabaki – allt
frá leikstjóra til starfsfólks miða-
sölunnar.
Nánd er leiðarstefið
„Annað verkefni sem við erum að
fara af stað með nefnist „Einleik-
arinn“. Margir af fremstu leikurum
þjóðarinnar starfa hér í húsi. Þeir eru
auðvitað vanir því að leika á móti öðr-
um og hafa áhorfendum í sal. En það
er ekki í boði núna. Í staðinn munu
þeir iðka list sína í einrúmi, hvort sem
er heima við eða úti í náttúrunni, og
deila með þjóðinni á vef Þjóðleikhúss-
ins. Þarna verður boðið upp á tón-
listarflutning, einræður, dans og
fleira,“ segir Magnús Geir, en alla
virka daga verður eitt myndbrot birt.
„Búið er að koma upp hljóð- og mynd-
veri í Kristalsal leikhússins og þaðan
verða sendir út þættir í beinu
streymi. Þar verður sjónum m.a.
beint að sögu leikhússins. Svo eru
nokkur önnur spennandi verkefni í
þróun sem verða kynnt betur um leið
og þau fara af stað,“ segir Magnús
Geir og bendir á að leiðarstefið í öll-
um verkefnum sé nánd þar sem einn
leikari sé að leika fyrir einn áhorf-
anda hverju sinni.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Ofjarl Hákon Jóhannesson flutti á Stóra sviði Þjóðleikhússins ljóðið „Til ofjarls míns“ eftir Sigfús Daðason fyrir
Viðar Eggertsson á mánudaginn var. Upptaka af flutningnum er aðgengileg á vef og Facebook-síðu leikhússins.
„Óvenjulegir tímar
kalla á óvenjuleg form“
Magnús Geir
Þórðarson
Þjóðleikhúsið býður í samkomubanni meðal annars upp á
„Ljóð fyrir þjóð“, „Einleikarann“ og „Leiksýning verður til“