Morgunblaðið - 30.03.2020, Qupperneq 1
M Á N U D A G U R 3 0. M A R S 2 0 2 0
Stofnað 1913 76. tölublað 108. árgangur
STÓRBROTIN
NÁTTÚRA
BLASIR VIÐ
NETVERSLUN
INNANLANDS
SLÆR Í GEGN
RÉTTI
TÍMINN FYRIR JÓGA
ER RUNNINN UPP
VIÐSKIPTI 6, 12 TÆKIFÆRI 29VESTFJARÐALEIÐ 11
Í kjölfar samkomubannsins hafa margar fjöl-
skyldur á höfuðborgarsvæðinu tekið upp
þann sið að setja bangsa eða önnur tuskudýr
út í glugga á heimilum sínum. Mörg börn sem
ekki eru að sækja leikskóla eða grunnskóla
vegna veirufaraldursins stytta sér stundir og
fara í göngutúr með foreldrum og telja
bangsana sem þau sjá í hverri göngu. Átakið
byrjaði með því að Ninna Karla Katrínar-
dóttir hvatti fólk í hverfishóp Laugarnes-
hverfis á Facebook til að setja bangsa út í
glugga. Fékk hugmyndin góðar viðtökur og
hefur átakið teygt anga sína langt út fyrir
hverfið. Nanna fékk hugmyndina úr mömmu-
hópi á Facebook en upphaflega kemur hug-
myndin erlendis frá. Kórónuveiran »4 og 6.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Bangsar komnir út í glugga á mörgum heimilum
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Endurgreiðsla á virðisaukaskatti
mun ekki aðeins ná til framkvæmda
við íbúðir og sumarhús heldur einnig
til bílaviðgerða, ef breytingartillögur
efnahags- og viðskiptanefndar Al-
þingis við stjórnarfumvarp um að-
gerðapakka til að mæta efnahagsleg-
um áhrifum í kjölfar heimsfaraldurs
kórónuveiru nær fram að ganga.
Nefndin afgreiddi málið frá sér um
helgina.
„Þetta er skref í rétta átt. Málið
kemur aftur til kasta ríkisstjórnar-
innar og Alþingis innan ekki margra
vikna. Við þurfum að gera meira, það
er alveg klárt,“ segir Óli Björn Kára-
son, formaður nefndarinnar. Frum-
varpið er um breytingar á ýmsum
lögum til að milda áhrif höggsins á
fyrirtæki og heimili.
Tókst að laga aðeins til
Allir nefndarmenn stjórnar og
stjórnarandstöðu stóðu að málinu en
stjórnarandstæðingar með efnisleg-
um fyrirvörum. „Upprunalegar til-
lögur gengu frekar skammt og tóku
ekki á neinum þáttum sem snúa að
aðflutningsgjöldum í tolli og virðis-
aukaskatti sem eru þungir gjalddag-
ar, hvað þá hjá tekjulausum fyrir-
tækjum. Okkur tókst að laga aðeins
til hvað það varðar þó ekki felist í til-
lögunum nein bein úrræði,“ sagði
Þorsteinn Víglundsson, þingmaður
Viðreisnar. Nefndin gerði fjölda
breytingartillagna enda hefur útlitið
dökknað frá því frumvarpið var lagt
fram.
Meiri sveigjanleiki
Meðal tillagna er að gefinn er
meiri sveigjanleiki í frestun á gjald-
dögum staðgreiðslu og trygginga-
gjalds. Í fyrri aðgerðapakka ríkis-
stjórnarinnar var heimilað að fresta
helmingi þeirrar staðgreiðslu opin-
berra gjalda og tryggingagjalds sem
var á gjalddaga 1. mars sl. til 1. apríl.
Með breytingartillögunni er launa-
greiðendum heimilað að fresta
greiðslum fram yfir áramót.
Í frumvarpinu var kveðið á um að
við mat á því hvort um tekjufall væri
að ræða skyldi miða við að minnsta
kosti þriðungs samdrátt í rekstrar-
tekjum yfir heilan mánuð samanbor-
ið við sama mánuð 2019. Hafi at-
vinnurekstur staðið í tvö ár eða
skemur sé heimilt að miða við með-
altekjur síðastliðinna tólf mánaða.
Rýmkunin felst meðal annars í því að
þetta ákveði fellur út, nái breyting-
artillaga efnahags- og viðskipta-
nefndar fram að ganga. Um leið er
tekið fram að fyrirtæki sem þetta
nýta sér geti ekki greitt eigendum
sínum arð.
Lagt til að öryrkjum verði greidd
20 þúsund króna orlofsuppbót í júní,
án skerðinga annarra greiðslna. Þá á
að vera tryggt að fiskvinnslufólk falli
undir ákvæði um hlutastörf.
Endurgreiðsla nái til bílaviðgerða
Efnahags- og viðskiptanefnd stendur saman að breytingum á aðgerðapakka ríkisstjórnarinnar
Rýmkað til við frestun á greiðslu afdreginnar staðgreiðslu Öryrkjar frá orlofsuppbót í júní
Breytingar
» Gefinn er meiri sveigjanleiki
í frestun á gjalddögum afdreg-
innar staðgreiðslu og trygg-
ingagjalds en um leið tekið
fram að fyrirtæki sem þetta
nýta sér geti ekki greitt eig-
endum sínum arð.
» Þeim fyrirtækjum sem fá
ríkisábyrgð á brúarlánum verð-
ur óheimilt að greiða út arð á
meðan ríkisábyrgð er í gildi. Þá
mun eftirlitsnefnd fylgjast með
framkvæmdinni.