Morgunblaðið - 30.03.2020, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 30.03.2020, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. MARS 2020 Sími: 411 5000 • www.itr.is Fyrir líkama og sál Laugarnar í Reykjavík Frá morgnifyrir alla fjölskylduna í þínu hverfi t i l kvölds 30. mars 2020 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 139.5 140.16 139.83 Sterlingspund 171.08 171.92 171.5 Kanadadalur 99.13 99.71 99.42 Dönsk króna 20.577 20.697 20.637 Norsk króna 13.275 13.353 13.314 Sænsk króna 13.976 14.058 14.017 Svissn. franki 144.93 145.73 145.33 Japanskt jen 1.2824 1.29 1.2862 SDR 190.55 191.69 191.12 Evra 153.57 154.43 154.0 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 180.3224 Hrávöruverð Gull 1621.2 ($/únsa) Ál 1507.5 ($/tonn) LME Hráolía 26.68 ($/fatið) Brent ● Franska tískufyrirtækið Chanel til- kynnti á sunnudag að það hygðist hefja framleiðslu hlífðargríma til að auka framboðið af grímum í Frakklandi á meðan kórónuveirufaraldurinn geisar. Greinir Reuters frá að verið sé að þróa grímurnar og að framleiðsla hefjist af fullum krafti eftir að stjórnvöld hafa gefið samþykki sitt. Upplýsti Chanel jafnframt að fyrirtækið mundi ekki grípa til skammtímauppsagna þó að faraldurinn hefði neikvæð áhrif á rekst- urinn en um 4.500 manns starfa hjá fyrirtækinu. Olivier Veran, heilbrigðisráðherra Frakklands, sagði á laugardag að stjórnvöld hefðu pantað meira en einn milljarð nýrra hlífðargríma, einkum frá kínverskum framleiðendum, og yrðu þær tilbúnar til notkunar á komandi vik- um og mánuðum. Nota Frakkar núna um 40 milljón grímur á viku og hafa viðbragðsaðilar kvartað yfir að tekið sé að bera á grímuskorti. ai@mbl.is Chanel breytir saumastofum í grímuverksmiðjur Vöntun Á meðan tískugeirinn er í dvala verða saumavélarnar nýttar til góðs. AFP gæti gert gæfumuninn fyrir mat- vöruverslanir á netinu ef þær t.d. fullvissa viðskiptavini sína um að tilteknum hreinlætisstöðlum sé fylgt við pökkun og afhendingu og gæti þá verið nóg að láta lítinn bækling fylgja með hverri sendingu þar sem stöðlunum er lýst. Aukin upplýsingagjöf er lykilinn að því að skapa tryggð í þessu árferði.“ Góður tími til að auglýsa Greining leitarorða gefur vís- bendingu um breyttar áherslur neytenda. Diðrik bendir á að leit- armengið „fréttir“ standi upp úr, en næstmest sé leitað að efni tengdu fjármálum, og þar á eftir komi mat- ur, heilbrigðisþjónusta og lyf. Hrun hefur orðið í notkun leitarorða sem tengjast ferðaþjónustu og húsnæð- ismarkaði og ætti ekki að koma á óvart enda hefur veirufaraldurinn orðið til þess að fólk slær bæði ferðalögum og fasteignakaupum á frest. Um vinsælustu leitarmengin segir Diðrik að fréttamiðlar hafi notið góðs af faraldrinum, sala netáskrifta að vönduðum dagblöð- um og tímaritum tekið kipp og margt sem bendi til að fréttalestur og miðlanotkun af öllu tagi sé með mesta móti um þessar mundir. Er upplagt, að mati Diðriks, að fyrirtæki noti tækifærið og auka auglýsingakaup frekar en að draga úr þeim. „Bæði hefur auglýsingin meira vægi ef aðrir auglýsendur eru að halda að sér höndum á sama tíma, og neytandinn hefur betra ráðrúm til að virða auglýsinguna fyrir sér því hægt hefur á samfélag- inu. Þetta er einmitt tíminn til að auglýsa á sem flestum boðrásum, og sýna rannsóknir það trekk í trekk að fyrirtæki sem halda dampi frekar en að hægja ferðina í mark- aðsmálum á tímum eins og þessum njóta góðs því þegar upp er staðið.“ Hegðun neytenda að breytast Morgunblaðið/Hari Tímamót Úr vöruhúsi Heimkaupa. Komandi vikur gætu haft mikið að segja um skiptingu markaðshlutdeildar net-matvöruverslana til langframa.  Kippur í netverslun vegna faraldursins er væntanlega kominn til að vera  Neytendur vilja sem mest gagnsæi um framleiðslu og flutninga  Góð upplýsingagjöf er ávísun á trygga viðskiptavini VIÐTAL Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Leitarorðagreining leiðir í ljós breyttar áherslur hjá neytendum vegna kórónuveirufaraldursins. Þá veita gögnin vísbendingu um hvaða svið atvinnulífsins munu fara verst út úr faraldrinum, sem og hverjar áherslur fyrirtækja þurfa að vera til að mæta breyttum þörfum al- mennings. Diðrik Örn Gunnarsson, faglegur framkvæmda- stjóri hjá Media- Com og leiðbein- andi við bæði HR og Háskólann í Tromsø, segir leitarorðagrein- ingu Nielsen m.a. benda til að í huga neytenda vegi mun þyngra nú en áður að kaupa vörur framleiddar í nærsamfélaginu, auk þess að neytendur leggja vaxandi áherslu á að þau fyrirtæki sem þeir versla við fylgi ströngustu gæða- og öryggiskröfum. „Þetta er viðsnún- ingur frá því sem áður var þar sem þættir á borð við samfélagslega ábyrgð voru í forgrunni.“ Diðrik grunar að vaxandi áhugi á vörum úr nærsamfélaginu komi til vegna þess að neytendur treysti betur gæðum og heilnæmi vöru sem framleidd er í þeirra eigin landi. „Neytendur vilja sem mest gagnsæi um framleiðsluferlið og flutningskeðjuna og upplifa senni- lega að þetta gagnsæi sé meira hjá innlendum framleiðendum og selj- endum. Hvað íslensk fyrirtæki snertir er þetta gott tækfæri til að auglýsa og upplýsa neytendur á innanlandsmarkaði og t.d. leita leiða til að fullvissa viðskiptavini um að hreinlæti sé hvergi ábóta- vant.“ Þegar kemur að útflutningsgrein- um eins og sjávarútvegi segir Dið- rik að gögnin bendi til að nú sé ráð að hampa því að íslenskur fiskur sé holl hágæðavara og að bæði veiðum og vinnslu sé þannig háttað að tryggir að varan er hrein og heil- næm þegar hún berst í hendur neytenda. „Við getum ímyndað okk- ur að veirufaraldurinn hafi þau áhrif að fólk bæði hafi meiri tíma fyrir matseld en áður, leggi aukna áherslu á hollt mataræði, og geri enn ríkari kröfu um að vita sem mest um gæði og upprunaland mat- væla eins og sjávarfangs – en séu líka reiðubúin að borga gott verð fyrir bestu vöruna.“ Upphafið að löngu viðskiptasambandi Ekki þarf að koma lesendum á óvart að netverslun er í mikilli sókn um þessar mundir og segir Diðrik að vöxturinn í matarinnkaupum á netinu sé líklega mestur í aldurs- hópnum 60 og uppúr, en sá hópur virðist hafa verið á eftir en yngri aldurshópum í því að tileinka sér að nota netið til að kaupa í matinn. Má reikna með að þegar allur þorri neytenda, bæði á Íslandi og í öðrum löndum, hefur komið því upp í vana að kaupa matvæli á netinu þá muni þeir halda því áfram að veirufar- aldrinum liðnum. Þá gæti núna ver- ið að ganga í garð tímabil þar sem neytendur gera upp hug sinn um hvaða net-matvöruverslunum þeir treysta best: „Á Íslandi má t.d. reikna með að ef neytandi sér að hann getur reitt sig á það fyrirtæki sem hann velur fyrst til að gera matarinnkaupinn þá haldi hann sig við sömu verslun eftirleiðis. Hér Diðrik Örn Gunnarsson ● Þýski bílaframleiðandinn Volkswag- en segist ætla að standa við áætlanir sínar og afhenda fyrstu eintökin af rafmagnsbílnum ID.3 í ágúst þrátt fyrir að röskun hafi orðið á fram- leiðslu bílanna. Vegna kórónuveirufaraldursins hefur VW þurft að loka verksmiðjum sínum um allan heim og tapar af þeim sök- um u.þ.b. 2 milljörðum evra í viku hverri. Er búið að skerða starfshlutfall u.þ.b. eins þriðja af 300.000 starfs- mönnum VW í Þýskalandi. Ef VW selur ekki nægilega marga rafmagnsbíla á þessu ári gæti fyrir- tækið sætt háum sektum vegna evr- ópskra útblástursreglna. ai@mbl.is ID.3 enn á áætlun

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.