Morgunblaðið - 30.03.2020, Blaðsíða 32
Sífellt fleiri menningarstofnanir nýta netið til að
streyma efni á tímum samkomubanns víða um lönd og
er Breska þjóðleikhúsið, National Theatre, þeirra á
meðal. Leikhúsið hefur nú tilkynnt að völdum sýningum
verði streymt á fimmtudagskvöldum og það án endur-
gjalds. Nefnist verkefnið National Theatre at Home og
mun standa yfir í tvo mánuði. Fyrsta sýningin sem
streymt verður er One Man, Two Guvnors, gamanleikrit
með James Corden í einu aðalhlutverkanna. Upptökur á
sýningunum verða sýndar kl. 19 að breskum tíma og
verða aðgengilegar í viku í senn eftir streymið.
Breska þjóðleikhúsið streymir
sýningum á netinu á fimmtudögum
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Skátahreyfingin lætur ekki ytri að-
stæður eins og samkomubann trufla
sig heldur heldur fjörinu gangandi
með því að setja inn verkefni á netið
daglega (skatarnir.is/
studkvi/).
Á heimasíðu skátanna
hvetja þeir fólk til að láta
sér ekki leiðast þó að sam-
félagið sé í sóttkví. „Tök-
umst á við ástandið með
glaðværð og forvitni að
vopni, með því að leysa
skemmtileg skátaverk-
efni!“ Tekið er fram að
boðið verði upp á föndur,
fræðslu, tilraunir, þrautir eða bara
hvað sem er. Hvatt er til þess að
verkefnunum sé deilt með myllu-
merkinu #STUÐKVÍ. Það vísi til
stuðningsins sem skátarnir vilji
veita og líka til þess að gaman geti
verið að takast á við samgöngubann.
Ávallt COVIDbúin!
„Þetta hefur gengið mjög vel og
viðbrögðin hafa verið mjög góð,“
segir Sigurgeir Bjartur Þórisson,
erindreki hjá skátunum. Hann segir
að verkefnunum hafi verið deilt á
ýmsa hópa á samfélagsmiðlum og
það sé af hinu góða. „Við sjáum að
skátar eru duglegir að taka þátt í
stuðkvínni en líka ungmenni og fjöl-
skyldur sem tengjast okk-
ur ekki og það gleður okk-
ur að þetta skuli nýtast
svona mörgum eins og við
höfðum vonað.“
Öflugir sjálfboðaliðar
Skátar og útilega er
eitthvað sem allir tengja
saman og því kemur ekki á
óvart að byrjað var á verk-
efninu innilega! Síðan kom
pokagerð, ljósmyndamaraþon og svo
framvegis. Hjálpsemi er einkenn-
andi fyrir skáta og fyrir helgi var
verkefnið góðverkagangan komið á
vefinn. Sigurgeir segir að verkefna-
valið taki mið af aðstæðum og því sé
fyrst og fremst verið að hugsa um
eitthvað skemmtilegt og hentugt
fyrir yngri einstaklinga og foreldra
þeirra til að vinna saman. „Verk-
efnin henta öllum aldurshópum en
við sjáum að krakkar í yngri kant-
inum eru duglegust að nýta sér dag-
skrána.“
Hefðbundið félagsstarf liggur
niðri vegna kórónuveirunnar, en
skátafélög um allt land hafa verið
hvött til þess að nýta sér tæknina til
að halda utan um einstaklinga og
hópa. Sigurgeir segir að samfara
fyrrgreindum verkefnum á netinu
verði útbúin sérstök verkefni fyrir
skáta 10-12 ára og 13-15 ára. „Dag-
legu verkefnin eru í léttari kantinum
og hugsuð sem fjölskyldugaman fyr-
ir fólk á öllum aldri en hin taka mið
af félagsmönnum okkar og þörfum
þeirra, eru hnitmiðaðri með tilliti til
reynslunnar sem við teljum að þau
búi yfir vegna þátttöku sinnar í
skátastarfinu.“
Hátt í 30 sjálfboðaliðar hafa unnið
að gerð verkefnanna og síðan hafa
fjórir starfsmenn hjá landssamtök-
unum og Skátasambandi Reykjavík-
ur sett þau á netið. „Sjálfboðalið-
arnir okkar höfðu frumkvæði að
þessu verkefni og bera það uppi,“
segir Sigurgeir.
Stuðkví Þegar ekki má fara í útilegu vegna samgöngubanns er ekkert mál að fara í innilegu í stofunni heima.
Stuðkví hjá skátunum
Ný verkefni fyrir félagsmenn og aðra sett inn daglega
á vef skátahreyfingarinnar Henta öllum aldurshópum
MÁNUDAGUR 30. MARS 90. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
„Þetta eru um 65% af tekjum félagsins þessa tvo mán-
uði sem er einfaldlega bara óvissa um. Við gerum okkur
auðvitað vonir um að eitthvað af því komi síðar á árinu
en við þurfum engu að síður að stilla okkur af og bregð-
ast við þessu,“ segir Sævar Pétursson, framkvæmda-
stjóri KA, meðal annars í samtali við Morgunblaðið í
dag um reksturinn hjá félaginu um þessar mundir.
Óvissa ríkir vegna áhrifa kórónuveirunnar. Starf KA er
viðamikið og félagið er til dæmis með aðkomu að sex
liðum í efstu deild í þremur íþróttagreinum. »27
Þurfa að stilla sig af og bregðast
við tekjuskerðingunni
ÍÞRÓTTIR MENNING