Morgunblaðið - 30.03.2020, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 30.03.2020, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. MARS 2020 Við framleiðum lausnir Sími 577 6700 / islandshus@islandshus.is / www.islandshus.is AFMARKANIR & HINDRANIR Fjölbreyttar lausnir til afmörkunar á ferðamannastöðum, göngustígum og bílaplönum. Dvergarnir R Viðar Guðjónsson vidargudjons@gmail.com Krónan hyggst opna netverslun með matvöru í vikunni og verður hún þar með fjórða matvöruverslunin á mark- aði sem veitir slíka þjónustu. Þegar hafa Heimkaup og Nettó veitt þjón- ustuna um nokkra hríð. Á föstudag- inn tilkynnti svo Iceland að hægt yrði að fá matvöru heimsenda í gegnum netverslun. Gréta María Grétarsdóttir, fram- kvæmdastjóri Krónunnar, segir að fyrirtækið hyggist bjóða upp á þjón- ustuna í appi. Næstu tveir til þrír dag- ar muni fara í að prófa þjónustuna í minni hópi en svo muni almenn notk- un verða í boði fyrir vikulok. Heim- sending verður frí ef verslað er fyrir meira en 15 þúsund krónur en 1.500 króna gjald tekið ef verslað er fyrir lægri upphæð. Er það sama fyrir- komulag og verið hefur hjá Nettó. „Við gerum ráð fyrir því að geta af- greitt 100 pantanir á dag til að byrja með en svo fljótlega að geta bætt við ef þurfa þykir,“ segir Gréta og bætir við að fjölmörg útkeyrslufyrirtæki hafi sett sig í samband og boðið út- keyrslu fyrir Krónuna. Hún segir að netverslunin hafi verið í burðaliðnum um hríð. Hins vegar hafi þróuninni verið flýtt eftir að þörfin jókst skyndi- lega vegna kórónuveirufaraldursins. Að sögn Gunnars Egils Sigurðs- sonar, framkvæmdastjóra Sam- kaupa, sem eiga Iceland og Nettó, voru þúsundir sem heimsóttu vef- svæði verslunarinnar eftir að tilkynn- ing um opnun netverslunar birtist í fjölmiðlum á föstudag. Er fyrirkomu- lagið þar ólíkt og í hinum verslunun- um að því að leyti að eingöngu verða í boði þrjár innkaupakörfur með vörum sem búið er að velja af versl- uninni. Ef valdar eru körfur undir 15 þúsund krónum en gjald upp á 1.000 krónur en annars er heimsending frí fyrir neytendur. Hann segir að til að byrja með verði 20 bílar til reiðu til að sjá um útkeyrslu. Þrýstingur á næstu vikum „Ég held að þetta séu þáttaskil í matvöruverslun til framtíðar,“ segir Gunnar. Hann segir jafnframt að bið eftir vörum frá Nettó sé um tveir dag- ar sem stendur en til standi að stór- auka afköst í strax í næstu viku. „Ég geri ráð fyrir því að þrýstingur á net- verslun muni stóraukast á næstu fjór- um til sex vikum,“ segir Gunnar. Krónan og Iceland fara á netið  4 verslanir með matvörur á netinu  Þáttaskil til frambúðar í verslun Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Netverslun Mikill áhugi er hjá neytendum að kaupa matvörur á netinu. Nú hafa Krónan og Iceland opnað netverslanir og samkeppnin því aukist. MViðskipti »12 Veronika Steinunn Magnúsdóttir veronika@mbl.is 95% landsmanna treysta Almanna- vörnum og heilbrigðisyfirvöldum á Ís- landi til að takast á við COVID-19, samkvæmt þjóðarpúlsi Gallup. 45% svarenda segjast treysta Alannavörn- um og heilbrigðisyfirvöldum fullkom- lega í baráttunni, 38% mjög vel og 12% vel. Samkvæmt könnuninni, sem gerð var 20.-26. mars bera kjósendur Mið- flokksins minnst traust til stjórnvalda en 83% þeirra treysta Almannavörnum og heilbrigðisyfirvöldum vel. Hlutfallið var yfir 90% hjá kjósendum annarra flokka. Þá voru konur (97%) líklegri til að treysta stjórnvöldum heldur en karlar (93%). Lítill munur er á trausti eftir aldri, tekjum og menntun. 75% bera traust til fjölmiðla Almenningur treystir fjölmiðlum vel til að fjalla um COVID-19. 75% lands- manna treysta fjölmiðlum vel og segj- ast 8% treysta fjölmiðlum illa. Meðal þeirra eru helst kjósendur Miðlfokks- ins og Pírata en 18% kjósenda Mið- flokksins treysta fjömliðlum illa og 17% kjósenda Pírata. 81% landsmanna hefur áhyggjur af efnahagslegum áhrifum veirunnar á Íslandi og eru flestir þeirra kjósendur Samfylkingarinnar (83%) en fæstir kjósendur Pírata (73%). 59% að- spurðra segjast hafa heilsufarslegar áhyggjur af faraldrinum. Þá vekur athygli að 8% aðspurðra segjast vera eða hafa verið með sjúk- dómseinkenni sem passa við einkenni COVID-19. 23% finnst of lítið gert 23% aðspurðra telja ríkisstjórnina ekki gera nóg til að fyrirbyggja eða bregðast við neikvæðum efnahagsleg- um áhrifum tengdum kórónuveirufar- aldrinum. 75% telja að gripið hafi ver- ið til hæfilega mikilla aðgerða en 2% telja að gripið hafi verið til of mikilla aðgerða. 6% Miðflokksmanna og 5% kjósenda Vinstri grænna eru á því máli. Ríkisstjórnin kynnti fyrr í mars fyrsta áfanga stjórnvalda til að bregð- ast við áhrifum faraldursins sem nem- ur 230 ma.kr. eða tæplega 8% af lands- framleiðslu. Þá tilkynnti forsætis- ráðherra í gær að ekki væri heimilt að að greiða arð út úr fyrirtækjum sem tækju brúarlán, sem stjórnvöld hyggj- ast veita fyrirtækjum til að rétta af rekstur sinn í ljósi faraldursins. Aðeins 2% treysta ekki yfirvöldum  95% treysta heilbrigðisyfirvöldum Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Allt starf Ferðafélags Íslands liggur niðri, vegna samkomubanns og ann- arra ráðstafana vegna kórónuveiru- faraldursins. Búið er að aflýsa öllum ferðum og verkefnum og loka skál- um. Í staðinn hefur félagið skipulagt svonefndar almannavarnaferðir þar sem fólk er hvatt til að ganga í sínu nærumhverfi og hvetja aðra til hins sama. Þá er í undirbúningi verkefni til að hvetja landsmenn til að ferðast innanlands. „Við höldum að okkur höndum á meðan þetta gengur yfir og allt tekjustreymi til félagsins hefur stöðvast,“ segir Páll Guðmundsson, framkvæmdastjóri Ferðafélags Ís- lands. „Það veit enginn hvernig ræt- ist úr þessari stöðu en við höfum sett upp þrjár sviðsmyndir fyrir sum- arið. Ein er slæm, önnur ágæt og sú þriðja í meðallagi. Við erum nokkuð bjartsýn, miðað við okkar stöðu og teljum að við munum fá ágæta lend- ingu,“ segir Páll. Ísland fyrsti valkostur Hann getur þess að þótt ekki sé vitað hvenær ferðamenn fara aftur að koma til landsins trúi hann því að Ísland verði fyrst allra Evrópuþjóða til að komast út úr heimsfaraldr- inum vegna þess hversu vel sé stað- ið að málum hér og landið geti þá orðið fyrsti valkostur þeirra sem huga að ferðalögum. Ímynd landsins um hreina náttúru og öruggan áfangastað muni vinna með landinu í því efni. „Það er ekki síst hlutverk Ferða- félags Íslands að sinna ferða- mennsku innanlands og við munum hvetja landsmenn til að ferðast inn- anlands í sumar og um alla framtíð. Við teljum að með því skapist heil- mikil tækifæri,“ segir Páll. Félagið mun kynna spennandi verkefni, ferða- og skálatilboð, þegar rétti tíminn kemur. Hann viðurkennir að nú sé besti árstíminn til að lenda í hremmingum sem þessum. Ekki sé mikið um ferð- ir, að vísu falli stór fjallaverkefni niður. Fullbókað var í skála félags- ins í sumar og mikið í ferðir. Segir Páll að töluvert hafi komið af afbók- unum í skála en minna í ferðir enda virðist fólk halda að sér höndum á meðan málin eru að skýrast. Hvatning til að hreyfa sig „Okkur þótti það erfitt að aflýsa þeim ferðum sem átti að fara í á þessum tíma enda mikilvægt fyrir fólk að fara út til að hreyfa sig og huga að heilsunni,“ segir Páll þegar hann er spurður um nýjungina „al- mannavarnaferðir“. Verkefnið felst í því að hvetja fólk til að ganga út frá heimili sínu, um nærumhverfið, til heiðurs starfsfólki í heilbrigðisþjón- ustunni sem vinnur mikilvægt starf, ekki síst á þessum tímum, og minna fólk um leið á að „við erum öll al- mannavarnir“. Fólk er hvatt til þess að hringja í vin fyrir göngu, á meðan á henni stendur eða á eftir og hvetja til dáða og senda félaginu mynd til birtingar á miðlum þess. „Við höfum fengið stórkostleg viðbrögð og margir tekið þessari áskorun. Við höfum fengið um 100 myndir og ferðasögur,“ segir Páll. Ferðafélagið með „almannavarnagöngur“  Allir skálar Ferðafélags Íslands eru lokaðir og allt starf liggur niðri  Stjórnendur þrátt fyrir allt bjartsýnir fyrir sumarið  Undirbúa verkefni til að hvetja fólk til að ferðast innanlands Ljósmynd/aðsend Fjallganga Þótt fjallaverkefni Ferðafélagsins liggi niðri er fólk hvatt til að ganga og hreyfa sig til að halda heilsunni í lagi. KÓRÓNUVEIRUFARALDUR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.