Morgunblaðið - 30.03.2020, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. MARS 2020
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Funahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666
., '*-�-��,�rKu�,
KIEL/ - OG FRYSTITJEKI
Iðnaðareiningar
í miklu úrvali
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Félag áfengis- og vímuefnaráðgjafa
harmar ákvarðanir stjórnenda SÁÁ
í starfsmannamálum og lýsir yfir
vantrausti á formann og fram-
kvæmdastjórn. Starfsfólk meðferð-
arsviðs SÁÁ lýsir einnig yfir van-
trausti á formann og framkvæmda-
stjórn samtakanna. Kemur þetta
fram í yfirlýsingum.
Mikill óróleiki er innan SÁÁ eftir
að greint var frá því að Valgerður Á.
Rúnarsdóttir, framkvæmdastjóri
lækninga, hefði ákveðið að segja
starfi sínu lausu vegna ágreinings
við Arnþór Jónsson, formann sam-
takanna. Telur hún að formaðurinn
hafi stigið inn á verksvið hennar
þegar hann ákvað að segja upp sál-
fræðingum og lýðheilsufræðingi
sem störfuðu hjá SÁÁ. Ákvörðunin
var tekin vegna aðsteðjandi vanda
SÁÁ og tekjutaps þar sem ekki
verður hægt að ráðast í hina árlegu
Álfasölu samtakanna. Í kjölfarið
sögðu þrír af níu fulltrúum í fram-
kvæmdastjórn af sér í mótmæla-
skyni við framgöngu formannsins.
Þá hefur mikil ólga komið upp í bak-
landi samtakanna, meðal annars í 48
manna stjórn þeirra. Hafa margir
félagsmenn tjáð sig opinberlega og
lýst áhyggjum yfir því að Valgerður
hafi ákveðið að segja starfi sínu
lausu.
Í yfirlýsingu sem Arnþór birti á
vef samtakann um helgina bauðst
hann til að stíga til hliðar sem for-
maður í þeirri von að forstjóri Vogs,
Valgerður Rúnarsdóttir, dragi upp-
sögn til baka og finni betri lausn á
rekstrarvanda samtakanna.
Of dýr rekstur
Í yfirlýsingunni segir Arnþór að
rekstrarkostnaður á meðferðarsviði
SÁÁ hafi vaxið mjög undanfarin ár
þótt afköst þjónustunnar hafi staðið
í stað eða jafnvel minnkað. Rekur
hann það til ráðningar háskóla-
menntaðs starfsfólks „til að mæta
faglegum áherslum forstjóra sjúkra-
hússins Vogs“. SÁÁ hafi mætt þess-
um vaxandi útgjöldum með því að
auka fjáraflanir.
Með kórónuveirufaraldrinum
hverfi stór hluti af sjálfsaflafé SÁÁ í
einni sviphendingu og eftir standi
SÁÁ með alltof dýran rekstur. „Um
leið og þessi staða varð ljós var for-
stjóri Vogs upplýstur um að grípa
þyrfti til aðgerða. Forstjórinn hafði í
framhaldi samband við heilbrigðis-
ráðherra og óskaði eftir fjárstuðn-
ingi en hafði því miður ekki erindi
sem erfiði. Fyrirfram hefði mátt bú-
ast við því að stjórnvöldum rynni
blóðið til skyldunnar í þessari ógn-
vænlegu stöðu og rétti SÁÁ hjálp-
arhönd.“
Heilbrigðisráðherra stígi inn
Í yfirlýsingu starfsfólks meðferð-
arsviðs SÁÁ er framkoma formanns
og framkvæmdastjórnar samtak-
anna gagnvart fagfólki sviðsins sögð
hafa valdið algjöru vantrausti þeirra
í milli. Ákvörðun um fyrirvaralausar
uppsagnir er sögð óafsakanleg en
þær hafi verið ákveðnar án samráðs
við stjórnendur og fagfólk sviðsins.
Lýst er fullum stuðningi við Val-
gerði Rúnarsdóttur yfirlækni og for-
stjóra sjúkrahússins Vogs. Er þess
krafist að framkvæmdastjórn dragi
til baka uppsagnir sálfræðinga og
lykilstarfsfólks meðferðarsviðs og
að framkvæmdastjórn og formaður
stígi tafarlaust til hliðar. Jafnframt
er þess farið á leit að heilbrigðisráð-
herra grípi inn í stöðu mála svo ekki
hljótist varanlegur skaði af.
Félag áfengis- og vímuefnaráð-
gjafa harmar ákvörðun fram-
kvæmdastjórnar SÁÁ að grípa til
uppsagna og skerða starfshlutfall
ráðgjafa, ásamt því að segja upp öll-
um sálfræðingum nema einum. Tel-
ur félagið ekki unnt að tryggja með-
ferð fólks með fíknisjúkdóma, nái
þetta fram að ganga. og því þurfi
heilbrigðisyfirvöld að stíga inn.
Ljósmynd/Íris
Skyndifundur Mikið var karpað á fundi sem stjórn SÁÁ var boðuð á síðdegis í gær. Myndin var tekin við upphaf fundarins sem stóð fram á kvöld.
Treysta ekki stjórninni
Félag fíkniefnaráðgjafa og starfsfólk meðferðarsviðs SÁÁ lýsa yfir vantrausti
á framkvæmdastjórn Fara fram á að heilbrigðisráðherra grípi í taumana
Ríkið mun greiða
upp tap Icelanda-
ir sem hlýst af
því að halda flug-
samgöngum til
Evrópu og
Bandaríkjanna
gangandi. Sam-
komulag þess
efnis var und-
irritað á föstu-
dagskvöld, en
flogið verður annars vegar til Bost-
on og hins vegar Lundúna eða
Stokkhólms.
Fram kemur á vef RÚV að
ákveðið hafi verið á ríkisstjórn-
arfundi á föstudag að gera sam-
komulag við Icelandair um að flug-
félagið haldi áfram að fljúga til
Boston og Lundúna eða Stokkhólms
tvo daga í viku. Samkomulagið hef-
ur þegar tekið gildi.
Er um að ræða að lágmarki sex
ferðir á hvorn áfangastað næstu
þrjár vikurnar, en mögulegt er að
samkomulagið verði framlengt.
Mun ríkið greiða að hámarki hundr-
að milljónir til flugfélagsins næstu
þrjár vikurnar, sem gert verður upp
eftir á.
Að hámarki 100 milljónir kr.
Ein vél Icelandair flaug frá Kefla-
vík til Lundúna í gærmorgun en alls
var 31 flugferð félagsins aflýst í
gær. Á áætlun í dag er morgunflug
til Lundúna og flug síðdegis til
Boston, en öðru flugi hefur verið af-
lýst. Sigurður Ingi Jóhannsson,
samgöngu- og sveitarstjórn-
arráðherra, segir mikilvægt að
tryggja samgöngur til og frá land-
inu. „Það eru mörg lönd og svæði
sem hafa lokað landamærum og
flugvöllum. Flest flugfélög hafa þar
af leiðandi lagt af flug og ekki aug-
ljóst að Icelandair myndi halda því
uppi án þess að við kæmum að máli
við þau, teldum það mikilvægt og
værum tilbúin að dekka ákveðinn
kostnað svo að þau töpuðu ekki á
því að halda úti flugi,“ segir Sig-
urður Ingi um samkomulagið í sam-
tali við mbl.is. Hann segir að með
þessu móti sé m.a. tryggt að Íslend-
ingar erlendis komist heim.
Samkomulagið kveður á um að
lágmarki sex ferðir á hvorn áfanga-
stað næstu þrjár vikurnar. Ríkið
mun greiða að hámarki 100 millj-
ónir til flugfélagsins á sama tímabili
sem gert verður upp eftir á.
Ríkið
styrkir
Icelandair
Tryggja lág-
markssamgöngur
Sigurður Ingi
Jóhannsson
Veronika Steinunn Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
Útlit er fyrir kólnandi veður á næstu
dögum og ráðleggur Óli Þór Árnason
veðurfræðingur því fólki sem hyggur
á ferðalög innanlands að fylgjast vel
með veðurspám.
Í dag bætir í vind og úrkomu en
áfram verður hlýtt á landinu. Þegar
líður á vikuna tekur þó að kólna og er
útlit fyrir norðanáttir með éljum og
talsverðu frosti.
„Það mun kólna þegar líður á
þriðjudaginn og á miðvikudag verður
hitinn kominn víðast hvar niður undir
frostmark,“ segir Óli.
Margir nýttu helgina og ferðuðust
út á land, til þess að stytta sér stundir
í samkomubanni. Ef þess lags ferða-
lög eru í kortunum um næstu helgi er
eins gott að hafa hlýjan fatnað og
fylgjast með spám að sögn Óla Þórs:
„Fyrir næstu helgi verður ekkert
sérlega spennandi að fara norður en
það verður ágætlega bjart sunnan og
vestan til á landinu en vel kalt, þannig
að það er eins gott að fólk hafi í hlý
hús að venda og hlýjan fatnað.“
Hann segir dægursveifluna vera
orðna töluvert mikla nú þegar sólin er
hærra á lofti og því kaldara á nótt-
unni. Spáin gefi til kynna nú að mikil
lægð verði á sunnudaginn um næstu
helgi en fylgjast verði vel með spám
sem geta verið ónákvæmar þegar
horft er lengra en fjóra daga fram í
tímann.
Í dag verður suðvestanátt 5-13 m/s,
skýjað og súld en um 8-15 m/s á morg-
un og hiti á bilinu 1 til 7 stig.
Kólnandi veður í vændum
Bætir í vind og úrkomu í dag Líklega ekkert ferðaveður um
næstu helgi Dægursveiflan meiri og því kaldara á nóttunni
Morgunblaðið/Hallur Már
Veðurhorfur Útlit er fyrir kólnandi
veður á næstunni á landinu öllu.
Ekki tókst að lægja öldurnar innan SÁÁ á fundi stjórnar sem boðaður var
í gær vegna uppsagnar Valgerðar Rúnarsdóttur yfirlæknis og þriggja full-
trúa af fimm úr framkvæmdastjórn. Fundurinn stóð í þrjá og hálfan tíma
og voru harðar deilur á milli fylkinganna sem styðja yfirlækninn og for-
manninn. Málið er í verri hnút, ef eitthvað er, sagði einn fundarmaður eft-
ir fundinn. Nú er talið víst að yfirlæknirinn hætti. Einn fulltrúinn sem
sjálfur er í framkvæmdastjórn bar upp tillögu um að framkvæmdastjórn-
in segði af sér og vísaði í því efni til yfirlýsingar starfsmanna meðferð-
arsviðs. Hún var felld með 21 atkvæði gegn 13 en 4 fundarmenn greiddu
ekki atkvæði. Þrír menn voru kosnir í framkvæmdastjórnina í stað þeirra
þriggja sem sögðu af sér. Formaður samtakanna, Arnþór Jónsson, svar-
aði því ekki þótt hann væri spurður beint hvort hann myndi segja af sér
en hann lýsti því yfir um helgina að hann væri tilbúinn til þess ef það
mætti verða til þess að Valgerður yrði áfram. Ekki náðist í Arnþór.
Málið er í enn verri hnút
TILLAGA UM VANTRAUST Á FRAMKVÆMDASTJÓRN FELLD