Morgunblaðið - 30.03.2020, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. MARS 2020
Stjórnendur tveggja af helstueinkareknu fjölmiðlum Noregs
rituðu grein í Aftenposten á fimmtu-
dag þar sem þeir bentu á alvarlega
stöðu norskra fjölmiðla við þær að-
stæður sem nú ríkja í heiminum með
miklum samdrætti á auglýsinga-
markaði. Þeir nefna einnig að ekki
sé lengur hægt að búa við það að er-
lendir vefrisar, svo sem Facebook og
Google greiði enga skatta í Noregi.
Annað semþeir nefna er að
einkareknu miðlarnir
eigi erfitt með að
rukka fyrir efni sitt þegar
ríkisútvarpið, NRK, bjóði
allt sitt efni frítt. Þessi
gagnrýni er athyglisverð
þegar haft er í huga að
ólíkt Ríkisútvarpinu ís-
lenska er NRK ekki á
auglýsingamarkaði.
Ástandið hér á landi er því mun
verra fyrir einkarekna miðla en á
norska markaðnum, þó að þar sé
það orðið óviðunandi.
Vegna ástandsins leggja grein-arhöfundarnir norsku til tíma-
bundna niðurfellingu eða verulega
lækkun launatengdra gjalda hjá fjöl-
miðlum, næstu tvö árin hið minnsta.
Þetta er hugmynd sem ekki á síður
erindi hér á landi.
Þeir nefna einnig að ekki megidragast lengur að ná alþjóð-
legri samstöðu: „Frakkar og Ítalir
hafa ákveðið að skattleggja vefris-
ana. Fleiri þjóðir munu fylgja í kjöl-
farið. Að sögn New York Times
íhuga nú fimmtán þjóðir að leggja á
stafræna skatta.“
Hér á landi hefur ítrekað veriðrætt um alvarlega stöðu einka-
rekinna fjölmiðla. Hún hefur, líkt og
í Noregi, versnað hratt að undan-
förnu vegna áhrifa kórónuveir-
unnar.
Ábendingar
frá Noregi
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 n Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 n Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 n alnabaer.is
alnabaer.is
Við erum sérhæfð í gluggatjöldum
SCREEN RÚLLUGARDÍNUR
Verkleg ökukennsla liggur nú niðri
vegna kórónuveirunnar. Skv.
ákvörðun sóttvarnalæknis, að tveir
metrar skuli vera milli fólks í sam-
skiptum, kom af sjálfu sér að öku-
kennarar hættu verklegri kennslu.
En allir, sem eru komnir af stað í
námi og hafa lokið bóklegum und-
irbúningi og tíu verklegum kennslu-
stundum hjá kennara, geta verið í
æfingaakstri.
„Kannski eru aldrei betri aðstæð-
ur fyrir æfingaakstur en einmitt
nú,“ segir Ævar Friðriksson, öku-
kennari í Reykavík. „Foreldrar
nemenda eru sjálfsagt margir laus-
ari við gagnvart vinnu sinni nú en í
annan tíma. Þá er sáralítil umferð á
götunum nú og því svigrúm fyrir
ungt fólk sem er að læra á bílinn og
aðstæðurnar.“
Hjá Ökuskólanum í Mjódd er
bóklegri ökukennslu, sem nemend-
ur taka við upphafi ökunáms síns,
haldið gangandi með þó færri nem-
endum í stofu í einu. Aðsóknin er
hins vegar lítil. Kennsla í fyrir
meirapróf bifreiðastjóra liggur al-
farið niðri, en staðan og framhaldið
verður metið strax eftir páska, að
sögn Guðbrands Bogasonar skóla-
stjóra. Eins og gefur að skilja fara
verkleg próf í ökunámi ekki fram
við núverandi aðstæður. Hins vegar
eru bókleg ökupróf haldin, en færri
teknir inn í einu og því alllöng bið.
Hvetur nemendur í æfingaakstur
Verklegt hlé Bóklegt á netinu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Miklabraut Fáir eru á ferli þessa
dagna og göturnar auðar.
Heimir Jónasson
markaðsráðgjafi lést á
líknardeild Landspít-
alans laugardaginn 28.
mars 2020, 53 ára að
aldri.
Heimir fæddist 13.
apríl 1966 og ólst upp í
Hlíðunum og síðar á
Seltjarnarnesi í stórri
fjölskyldu. Hann var
Valsari í húð og hár og
lék körfubolta með Val
og yngri landsliðum
við góðan orðstír.
Hann lauk stúdents-
prófi frá Verzl-
unarskóla Íslands árið 1986, út-
skrifaðist úr University of
Television and Film í München í
Þýskalandi árið 1995 og lauk MBA-
námi úr Háskóla Íslands árið 2017.
Heimir starfaði sem dagskrárstjóri
Stöðvar 2, vann á
markaðsdeild Ice-
landair, var fram-
leiðslustjóri á Latabæ,
framkvæmdastjóri
Markaðsstofu Kópa-
vogs, viðskiptastjóri
hjá Íslensku auglýs-
ingastofunni, þjálfari
hjá Dale Carnegie og
um árabil rak hann
eigið markaðsfyrir-
tæki; Icelandic
Cowboys.
Foreldrar Heimis
voru Jónas Jóhanns-
son, flugumsjón-
armaður, sem lést árið 2013 og
Guðmunda Markúsína Þorleifs-
dóttir, sjúkraliði. Eftirlifandi eig-
inkona Heimis er Berglind Magn-
úsdóttir og börnin þrjú, Markús,
Áshildur og Silja.
Andlát
Heimir Jónasson
Sjúkratryggingar Íslands hafa gert
samkomulag við Icelandair Hótels
um að nýta aðstöðu á Hótel Reykja-
vík Natura sem gistirými fyrir skil-
greinda lykilstarfsmenn heilbrigð-
iskerfisins og Almannavarna í þeim
tilvikum sem þeir geta ekki dvalið
heima hjá sér af hættu við smit af
COVID-19.
Um er að ræða þá starfsmenn
heilbrigðiskerfisins og Almanna-
varna, sem gegna sérstakri ábyrgð
samkvæmt neyðaráætlun heil-
brigðiskerfisins og innan stjórn-
stöðvar Almannavarna eða búa yfir
sérstakri þekkingu eða færni sem
er nauðsynleg við framkvæmd
neyðaráætlunarinnar.
Afnot hótelsins eru endurgjalds-
laus í boði Icelandair Hótels.
Bjóða Reykjavik Natura endurgjaldslaust