Morgunblaðið - 30.03.2020, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. MARS 2020
Steypt einbýlishús í Efra-Seli á
Stokkseyri stóð í ljósum logum og
börðust slökkviliðsmenn við eldinn
frá tvö til tíu um kvöldið á laugar-
daginn.
Húsið stendur enn, en þó er allt
brunnið inni í húsinu og því um tölu-
vert tjón að ræða. Lögreglan á Suð-
urlandi fer nú með rannsókn málsins
og sagði Oddur Árnason yfirlög-
regluþjónn að ekki yrðu gefnar upp-
lýsingar um eldsupptök og tjón að
svo stöddu.
Húsið var vaktað af slökkviliðs-
mönnum í gær þar sem bætt hefur í
vind á svæðinu. Slökktu þeir í nokkr-
um glæðum í gær og verða á varð-
bergi varðandi fleiri.
„Það hefur aðeins bætt í vind eftir
hádegi og þá á glóð það til að taka
sig eitthvað upp,“ sagði Pétur Pét-
ursson, slökkviliðsstjóri brunavarna
Árnessýslu.
Eldur var fastur í millilofti uppi í
rjáfri sem erfitt var að komast að en
enginn var í húsinu þegar eldurinn
kviknaði.
Eldsvoði í
Efra-Seli á
Stokkseyri
Tók 8 tíma að ráða
niðurlögum eldsins
Ljósmynd/Jóhann Óli
Eldur Enginn var í húsinu þegar
eldurinn braust út í Efra-Seli.
„Vinnan heldur áfram en það hægir
á henni og afgreiðslur frestast.
Sveitarfélögin þurfa líka á öllu sínu
fólki að halda núna og hafa lítið
svigrúm í önnur verkefni,“ segir Ró-
bert Ragnarsson, framkvæmda-
stjóri RR ráðgjafar.
Útbreiðsla kórónuveirufaraldurs-
ins hefur sett strik í reikninginn við
undirbúningsvinnu fyrir sameiningu
sveitarfélaga víða um land. Fyrir-
tæki Róberts heldur utan um slíka
vinnu á fjórum stöðum; á Suður-
landi, á Austur-
landi, í Þing-
eyjarsýslu og í
Austur-Húna-
vatnssýslu.
„Við höfum
frestað öllum
verkþáttum þar
sem fólk þarf að
hittast á vinnu-
stofum og mun
það leiða til þess
að verkefnum seinkar. Við höfum
verið með fjölmenna fjarfundi þar
sem upplýsingum er miðlað og átt í
samráði. Þeir fundir hafa gengið
vonum framar, en fjarfundaform
hentar ekki nægilega vel fyrir
vinnustofur,“ segir Róbert.
Eins og Morgunblaðið hefur
greint frá höfðu fimm sveitarfélög í
Vestur-Skaftafellssýslu og Rangár-
vallasýslu áformað að taka ákvörð-
un í vor um það hvort hefja ætti
formlegar sameiningarviðræður
sem gæti skilað nýju fimm þúsund
manna sveitarfélagi. Ljóst er að þau
áform frestast nú. Greiningarvinna
heldur þó áfram og fjarfundir.
„Það eru allir á kafi í öðru og
mikið álag á starfsfólki okkar. Það
er enginn bilbugur á okkur en það
var sameiginleg ákvörðun að fresta
vinnu starfshópa aðeins,“ segir Ant-
on Kári Halldórsson, sveitarstjóri
Rangárþings eystra. Hann kveðst
búast við að ákvörðun um fram-
haldið verði nú borin undir íbúa í
september eða október.
Eins og fram hefur komið áttu
kosningar til sveitarstjórnar í nýju
sveitarfélagi á Austurlandi að fara
fram í næsta mánuði. Kveðst Ró-
bert telja að þær muni fara fram
síðsumars eða snemma í haust. Í
Þingeyjarsýslu frestast vinna
starfshópa en önnur greiningar-
vinna heldur áfram og reglulegir
fjarfundir samstarfsnefndarinnar
sömuleiðis, að sögn Róberts, rétt
eins og í Austur-Húnavatnssýslu.
hdm@mbl.is
Sameiningarvinnu seinkar til hausts
Kórónuveiran setur strik í reikninginn við sameiningar sveitarfélaga Atkvæðagreiðslur í haust
Anton Kári
Halldórsson
Hinn 25. mars lagði fyrsti bátur af
stað í netarall Hafrannsóknastofn-
unar. Á næstu dögum munu aðrir
bátar, einn af öðrum, leggja af stað
til þess að safna upplýsingum um
lengdar- og þyngdarsamsetningu,
kynþroska og vöxt eftir aldri á
helstu hrygningarsvæðum þorsks.
Verkefnið er einnig til þess fallið
að meta árlegt magn kynþroska
þorsks sem fæst í þorskanet á
hrygningarstöðvum og meta breyt-
ingar í gengd hrygningarþorsks á
mismunandi svæðum.
Netarallið mun standa yfir fram
til síðari hluta apríl og taka 5 bátar
þátt í því. Um 45-60 trossur eru
lagðar á hverju svæði og þeim dreift
innan svæða á helstu hrygning-
arslóðir þorsksins. Á hverju svæði er
helmingur lagður í fyrirfram
ákveðna punkta, fastar stöðvar, en
skipstjórar ákveða hvar lausar
stöðvar verða.
Netarall hafið
hjá Hafrann-
sóknastofnun