Morgunblaðið - 30.03.2020, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. MARS 2020
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Leiðin er greið og möguleikar
miklir,“ segir Díana Jóhannsdóttir
hjá Vestfjarðastofu. „Í ferðaþjón-
ustu gildir að hafa sérstöðu við
kynningu á áfangastöðum og sú er
sannarlega raunin á Vest-
fjarðaleiðinni.
Hér er stór-
brotin náttúra
sem gestrisnir
íbúarnir eru í
sterkum
tengslum við.
Sögustaðir eru
margir, litlu
kauptúnin
áhugaverðir við-
komustaðir og
víða eru veit-
ingastaðir með mat af heimaslóð.
Svo verða vegirnir hér sífellt betri,
sem vinnur með verkefninu.“
Yfir heiðar og fyrir firði
Síðar á þessu ári verður svo-
nefnd Vestfjarðaleið opnuð form-
lega; það er er 950 kílómetra leið
sem hefur upphafspunkt í Norður-
árdal í Borgarfirði við afleggj-
arann inn á Bröttubrekku þegar
ekið er í Dalina. Undir merkjum
umræddrar leiðar er svo farið fyrir
Klofning í Dalasýslu og þaðan
áfram um sunnanverða Vestfirði;
Barðaströnd og yfir Kleifaheiði til
Patreksfjarðar. Áfram svo inn
Arnarfjörð, yfir Dynjandisheiði
uns komið er að munna Dýrafjarð-
arjarðganganga sem fullgerð
verða í haust. Formleg opnun
þeirra og Vestfjarðaleiðar haldast í
hendur, enda markar tilkoma
ganganna kaflaskil í samgöngu-
málum vestra.
Hringleiðin heldur svo áfram
til Ísafjarðar, og þaðan svo áfram
inn Djúp og yfir Steingrímsfjörð í
Strandabyggð og þar með ýmsum
hlykkjum fyrir firði áfram suður á
bóginn uns komið er aftur á hring-
veginn við Staðarskála í Hrúta-
firði. Alls er þessi leið um 950 kíló-
metrar, en að stærstum hluta er
farið um þjóðvegum nr. 60, 61 og
62. Nefnt hefur verið að nefna
megi leiðina þjóðveg nr. 2, sbr. að
hringvegurinn er nr. 1.
Bíltúr á þjóðminjasafni
„Hér er verið að skapa nýtt
aðdráttarafl fyrir Vestfirði og Ís-
land. Vestfirðir eiga mikið inni,
enda sá landshluti sem fæstir heim-
sækja. Fjöldi Íslendinga hefur aldr-
ei komið vestur en við þurfum þá
líka að skapa þær aðstæður að
svæðið verði sterkara aðdráttarafl.
Vinna þessi hófst af alvöru árið
2018 og það var alltaf áherslumál
okkar að fá sem flesta hér fyrir
vestan að borðinu; ferðaþjóna og
aðra. Dalafólk kom svo inn í þetta
verkefni á síðari stigum og í því er
fengur. Leiðin um Fellsströnd og
Skarðsströnd fyrir Klofning
áhugaverð; landslagið fallegt og
margt í umhverfinu þannig að bíl-
túr í gegnum Þjóðminjasafnið eru
lýsing við hæfi. Þó það sé svo spöl-
korn fyrir utan Vestfjarðaleiðina
þá er ég sjálf alveg heilluð af norð-
anverðum Ströndum; Árneshreppi
þar sem líkja má landslaginu við
listasafn.“
Díana segir vinnu við Vest-
fjarðaleiðina meðal annars miða að
því að lengja ferðamannatímann á
svæðinu. Mikið muni breytast með
opnun Dýrafjarðarganga sem
koma í stað vegarins yfir Hrafns-
eyrarheiði sem er ófær hálft árið.
Annars er að mörgu að hyggja í
þessu máli og hefur Vest-
fjarðastofa fengið liðsinni breska
fyrirtækisins Blue Sail, en ráð-
gjafar þar hafa komið að þróun
ýmissra ferðamannaleiða meðal
annars Arctic Coast Way á Norður-
landi og Wild Atlantic Way á Ír-
landi. Mikið er því lagt undir í
þessu verkefni sem hlaut styrk frá
Ferðamálastofu árið 2018, til
þriggja ára og er áherslumál í
Sóknaráætlun Vestfjarða. Þegar er
byrjað að kynna verkefnið erlendis
og hefur það vakið áhuga ferða-
heildsala og erlendra blaðamanna
sem fjalla um ferðir, lönd og leiðir.
Velja áhugaverða staði
„Að fara Vestfjarðaleiðina
snýst ekki um að fara 950 kíló-
metra á sem skemmstum tíma eða
þræða hvern einasta vegspotta.
Fólk ferðast alltaf á sínum eigin
forsendum og velur sá staði sem
þeim þykja áhugaverðir. Svona
verkefni þróast líka eftir því sem
tíminn líður, en kjarni málsins er
að Vestfirðirnir eru ævintýraland,“
segir Díana að síðustu.
Vestfjarðaleiðin verður opnuð síðar á árinu og er alls um 950 km löng
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Þingeyri Dæmigert sjávarþorp á Vestfjörðum sem stendur við þá leið
sem nú stendur til að markaðssetja og kynna fyrir ferðafólki.
Nýi hringurinn
Díana Jóhannsdóttir er fædd
árið 1982 og uppalin á Akureyri.
Útskrifaðist frá Háskólanum á
Akureyri með BS-gráðu í við-
skiptafræði og lauk síðan
meistaraprófi frá University of
Portsmouth á Englandi 2008.
Flutti eftir nám til Ísafjarðar
og starfaði þar hjá Þýðing-
armiðstöð utanríkisráðuneyt-
isins og hóf svo árið 2011 störf
hjá Fjórðungssambandi Vest-
firðinga. Starfar nú hjá Vest-
fjarðastofu og sinnir kynningar-
og markaðsmálum fyrir ferða-
þjónustu.
Hver er hún?
Vestfjarðaleið
Kortagrunnur:
OpenStreetMap
Borgarnes
Breiða-
fjörður
Faxafl ói
H
ún
afl
ó
i
Ísafjörður
Patreks-
fjörður
Vestfjarðaleið
Díana
Jóhannsdóttir
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Stefnan er tekin á vortónleika og
vorpróf, við reynum að halda okkar
striki,“ segir Snorri Heimisson,
stjórnandi Skólahljómsveitar Ár-
bæjar og Breiðholts í Reykjavík.
Samæfingar og hópkennsla í starfi
sveitarinnar hafa fallið niður frá því
samkomubann var sett vegna kór-
ónuveirunnar. Sá veruleiki hefur
sett strik í reikninginn og því bíður
mikið starf við að koma starfi hljóm-
sveitanna í gang að nýju eftir
páskana.
Tónleikum frestað
en stefnt til Spánar
Tólf kennarar vinna undir forystu
Snorra og vegna veirunnar sinna
þeir nú nemendum sínum alfarið í
fjarkennslu. Sá háttur er hafður í
tónlistarkennslu víða um land um
þessar mundir og sums staðar liggur
hún raunar niðri. Snorri hefur
reyndar um langt árabil kynnt nýjar
lausnir og leiðir tengdar tækni og
tónlistarkennslu um allt land og
unnið þar brautryðjendastarf.
Skólahljómsveitirnar í Reykjavík
eru fjórar, hver í sínum borgarhluta.
Um 130 börn eru í hverri þeirra;
nemendur á hljóðfæri eins og þarf
svo úr verði lúðrasveit. Fagottið er
hljóðfæri Snorra, bæði í leik og
kennslu, en aðrir sinna kennslu á
básúnu, klarinett, þverflautu, saxó-
fón og trompet svo nokkur hljóðfæri
séu nefnd. Stefnan var sú að vor-
tónleikar sveitarinnar í Breiðholtinu
yrðu 28. mars en þeim er frestað
fram til 2. maí. Tónleikaferð til Ca-
lella á Spáni sem áformað var um
miðjan júní hefur ekki verið slegin
af, séð verður til hvernig mál þróast.
„Tæknin býður upp á marga
möguleika í tónlistarnámi. Núna er-
um við með nemendum, hálftíma í
senn, í hljóði og mynd í forritinu
Microsoft Teams – þar sem kenn-
arinn er hér í Breiðholtsskóla en
nemandinn heima,“ segir Snorri
Heimisson og heldur áfram:
Kennarinn setur fyrir
„Milli tíma, sem eru tvisvar í viku,
setur kennari fyrir verkefni svo sem
að nemendi eigi að æfa ákveðin lög
eða atriði betur og skila inn hljóð-
upptökum sem svo eru yfirfarnar og
gefnar leiðbeiningar samkvæmt.
Þetta kemur vel út. Hins vegar er
handavinna sem fylgir því þegar
þarf að koma nótum til nemenda eða
verkefnum í tónfræði, sem eru
skannaðar og svo sendar í gegnum
spjallforritin eða í tölvupósti. En
þetta gengur allt upp í þeirri æv-
intýraveröld sem tónlistin er.“
Tónlistin heim
Kennt með nýju sniði Lúðrasveit
stefnir á tónleika Upptökur og mynd
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Tónlist Fagottið er hljóðfæri Snorra
Heimissonar hljómsveitarstjóra.
Frá tilnefningarnefnd vegna aðalfundar
Haga hf. 2020
Aðalfundur Haga hf., kt. 670203-2120, verður haldinn þriðjudaginn
9. júní 2020.
Þeim hluthöfum sem vilja eiga fund með tilnefningarnefnd eða koma
skilaboðum á framfæri við tilnefningarnefnd í aðdraganda aðalfundar
2020 er bent á að hafa samband við tilnefningarnefnd eigi síðar en kl.
16:00 þann 14. apríl nk. á netfangið tilnefningarnefnd@hagar.is.
Þeim sem vilja gefa kost á sér til setu í stjórn Haga hf. er bent á að
tilkynna það skriflega til tilnefningarnefndar Haga hf. eigi síðar en
kl. 16:00 þann 30. apríl 2020 á netfangið tilnefningarnefnd@hagar.
is. Nauðsynlegt er að frambjóðendur notist við framboðseyðublað
sem finna má á vefsíðu Haga en þar þarf meðal annars að upplýsa
um bakgrunn og hæfi frambjóðanda, auk þess að gera grein
fyrir hvernig frambjóðandi uppfyllir skilyrði sáttar Haga hf. við
Samkeppniseftirlitið frá september 2018.
Framboðseyðublað og nánari upplýsingar um viðmið tilnefningar-
nefndar við mat á frambjóðendum má finna á vefsíðu Haga hf.,
www.hagar.is/fjarfestaupplysingar/adalfundur.
Tillögur tilnefningarnefndar um frambjóðendur til stjórnar verða
tilkynntar þann 19. maí nk.
Tilnefningarnefnd Haga hf.